Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 49

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 49
LÆKNAblaðið 2019/105 305 Einn þeirra sem minntust Bjarna Pálsson­ ar landlæknis á Seltjarnarnesi var Ágúst Einarsson prófessor emeritus og fyrrum alþingismaður. Hann hefur nýlega gef­ ið út bók, allnokkra að vöxtum, sem ber titilinn Íslensk heilbrigðismál í alþjóð- legu samhengi og helgar hana minningu Bjarna. Ágúst hefur á undanförnum árum gefið út bækur og ritgerðir um hlutdeild ýmissa þátta í íslensku hagkerfi og nú er röðin komin að heilbrigðiskerfinu. Hann rekur í stuttu máli sögu lækninga, bæði á Íslandi og í heiminum. Síðan ræðir hann alþjóðavæðingu og sérstöðu heilbrigðis­ mála innan hennar, fjallar um sjúkdóma og tryggingar, veitendur, þiggjendur og greiðendur heilbrigðisþjónustu, gæði þjón ustunnar og tölulegar upplýsingar. Fjölgun aldraðra, lyfjamál og framfarir í heilbrigðisþjónustu eru skoðuð og loks setur hann fram stefnumótun fyrir heil­ brigðiskerfið í 18 liðum. Hér er ekki um ritdóm að ræða en þó er ljóst við fyrstu sýn að þessi bók gerir alvarlega tilraun til að mæta þeim skorti á þekkingu og innsýn sem oftar en ekki einkennir íslenska umræðu um heilbrigð­ ismál. Hér er farið yfir vítt svið og það er mikið um tölur og súlurit í bókinni. En þeir sem virkilega vilja setja sig inn í mál­ in ættu að finna umtalsverðan efnivið í umræðuna á þessum 360 blaðsíðum. brigðiskerfi fátækrar þjóðar sem taldi um 40.000 manns. Til þess hafði hann greini­ lega rétta viðhorfið því um hann var sagt „trautt héldu honum veður, sjór eða úrtöl­ ur, er hans var vitjað til veikra“. Rétt eins og nú til dags þarf heilbrigð­ iskerfi á fleiri höndum að halda en lækna og Bjarna var uppálagt að mennta lækna og yfirsetukonur, sjá um lyfsölu og sinna sótt­ vörnum. Einu starfi vék hann sér þó undan þegar biskupar landsins fengu þá hugmynd að mennta presta í læknisverkum. Það tók Bjarni ekki í mál, hann vildi koma upp vel lærðum læknum en ekki skottulæknum – með fullri virðingu fyrir prestum. Hann átti sér draum um að reisa Land­ spítala. „Það tókst honum ekki og hefur það reyndar vafist fyrir mönnum allar götur síðan“, svo vitnað sé til orða Ölmu. Að hefja land og lýð Auk þess að sinna stjórnun eins og það heitir nú til dags og kenna fólki var hann líka vel liðtækur í lækningum. Hann þótti hafa góða þekkingu á læknisfræði á mæli­ kvarða síns tíma og var sagður duglegur, hjálpfús og ósérhlífinn. Trúmaður var hann mikill og hafði þann sið þegar hann kom úr læknisferðum að ganga til kirkju, læsa að sér og leggjast flatur á gólf hennar, þakka guði þegar vel gekk en ákalla hann um hjálp þegar miður gekk. Eftir að hafa vikið að kulnun og fleiri þáttum sem hafa áhrif á heilsu nútíma­ mannsins sagði Alma: „Bjarni hefur eflaust skynjað þessa áhrifaþætti heilsu enda var hann fjölfróður og hafði áhuga á hverju því sem gæti komið að gagni við að „hefja land og lýð“. Það hefur án efa verið fyrirmynd að lýðheilsustarfi okkar tíma.“ Alma D. Möller, 19. landlæknir Íslands, flytur ávarp sitt í Seltjarnarneskirkju. Fróðlegt yfirlit um íslensk heilbrigðismál gefið út Ágúst Einarsson flytur erindi sitt um Bjarna Pálsson í Seltjarnarneskirkju 19. maí síðastliðinn.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.