Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2019/105 303
Arndís Sue-Ching Löve, lyfja-
fræðingur og doktorsnemi, er þegar
búin að mæla magn fíkniefna í skólpi
ársins 2019 en á ólokið að rýna í
niðurstöðurnar. Hún hefur rýnt í
skólpið í fimm ár. Mynd/gag
og vinnuafl en einnig þurfi að taka tillit
til persónuverndarsjónarmiða. Tekin séu
sýni úr tveimur hreinsistöðvum í Reykja
vík. „Sýnin endurspegla mestan hluta
stórReykjavíkursvæðisins, utan Hafnar
fjarðar.“ Sýnasöfnunin sé unnin í góðu
samstarfi við Veitur og Verkís.
Hún segir hægt að nota þessa aðferða
fræði með öðrum, til að mynda með sam
anburði við tölur um akstur undir áhrif
um fíkniefna eða haldlagt magn fíkniefna
af lögreglu.
Arndís stefnir á að útskrifast með dokt
orspróf frá læknadeild um næstu jól og
vonar að hægt verði að halda rannsóknun
um áfram enda mikil vinna við uppsetn
ingu rannsóknarinnar að baki.
Xarelto 15 mg/20 mg filmuhúðaðar töflur – Skyldutexti
Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Tilkynna
skal Lyfjastofnun um allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu. Virkt efni: Rivaroxaban. Ábendingar:
Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilaslagi og segareki hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif án lokusjúkdóms og einn
eða fleiri áhættuþætti, svo sem hjartabilun, háþrýsting, aldur ≥ 75 ára, sykursýki, sögu um heilaslag eða skammvinnt
blóðþurrðarkast. Meðferð við segamyndun í djúplægum bláæðum og segareki í lungum og til að fyrirbyggja endurtekna
segamyndun í djúplægum bláæðum og segarek í lungum hjá fullorðnum. Frábendingar: •Ofnæmi fyrir virka efninu eða
einhverju hjálparefnanna. •Virk blæðing sem hefur klíníska þýðingu. •Áverki eða ástand þar sem talið er að hætta geti verið
á mikilli blæðingu. Um getur verið að ræða sár sem er eða hefur nýlega verið í meltingarvegi, illkynja æxli þar sem mikil hætta
er á blæðingu, nýlegan áverka á heila eða mænu, nýlega aðgerð á heila, mænu eða auga, nýlega innankúpublæðingu,
þekkta æðahnúta í vélinda eða grun um slíkt, missmíði slag- og bláæðatenginga, æðagúlp, eða mjög afbrigðilegar æðar
í mænu eða heila. •Samhliða meðferð með öðrum segavarnarlyfjum, t.d. ósundurgreindu (unfractionated) heparíni, léttu
(low molecular weight) heparíni (enoxaparin, dalteparin o.s.frv.), heparín afleiðum (t.d. fondaparinux), segavarnarlyfjum
til inntöku (warfarín, dabigatran etexilat, apixaban o.s.frv.), nema við þær sérstöku aðstæður að verið sé að skipta um
blóðþynningarmeðferð eða ef ósundurgreint heparín er gefið í skömmtum sem duga til að viðhalda opnum æðalegg í
miðlægri bláæð eða slagæð. •Lifrarsjúkdómur með blóðstorkutruflunum og blæðingarhættu sem hefur klíníska þýðingu
þar með talið hjá sjúklingum með skorpulifur af flokki Child Pugh B og C. •Meðganga og brjóstagjöf. Heimild: Unnið í
október 2018 úr Samantekt á eiginleikum lyfs (ágúst 2018). Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð
og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Vinsamlegast kynnið ykkur fræðsluefni
ætlað læknum og sjúklingum áður en meðferð lyfsins hefst. Afhenda skal öllum sjúklingum öryggiskort áður en
meðferð er hafin. Markaðsleyfishafi: Bayer AG. Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf. Vinsamlegast hafið samband í
síma 821 8046 ef óskað er eftir fræðsluefni eða frekari upplýsingum um lyfið. Afgreiðslumáti og greiðsluþátttaka: R, G.
Hámarkssmásöluverð þynnupakkninga (október 2018): 12.082 kr. (28 stk.), 17.357 kr. (42 stk. – 15 mg eingöngu), 36.686
kr. (98 stk.), 37.824 kr. (100 stk.).
BAY181001