Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 34
290 LÆKNAblaðið 2019/105
Ólafsfirðingurinn og erfðalæknirinn Reyn
ir Arngrímsson tók við forystu Læknafé
lagi Íslands haustið 2017. Þá var verið að
umbylta skipulagi félagsins og sú breyting
hefur óneitanlega sett svip sinn á störf
stjórnar þessi tvö ár. – Já, þessi tvö ár hafa
verið nokkuð sérstök út af þessum miklu
breytingum á félaginu. Það hefur farið
mikill tími í þær breytingar og að halda
öllu í jafnvægi við þær, segir hann og bætir
því við að tvö ár séu í það stysta til þessa
að ná tökum á starfinu við þessar aðstæður.
Samhliða breytingunum átti Lækna
félagið aldarafmæli í fyrra og það jók enn
á annríkið. Fljótlega eftir að nýja stjórnin
tók við var hafist handa um endurbætur á
húsnæði félagsins í Hlíðasmára. Félagsað
staðan var tekin í gegn, veggir fjarlægðir
og allt endurnýjað, þar á meðal sett upp ný
hljóð og myndkerfi. – Nú býr félagið að
gífurlega góðri aðstöðu til fundarhalda og
félagsstarfs.
Reynir segist líta á þessa niðurstöðu
sem traustsyfirlýsingu. – Auðvitað er ekki
hægt að gera allt svo öllum líki en ég er
þakklátur fyrir þau jákvæðu viðbrögð sem
ég fékk frá félagsmönnum í kringum fram
boðið núna.
Meiri nánd
En hver er reynslan af þessu nýja skipulagi fé-
lagsins?
– Það jákvæða er að það endurspegl
ar betur en fyrra kerfi hvar hagsmunir
félagsmanna liggja. Það eykur nándina
milli félaganna og félagsmannanna, enda
gefa nýju aðildarfélögin skýrari mynd af
því hverjir hagsmunirnir eru og hvernig
verkaskiptingin milli aðildarfélaganna og
móðurfélagsins á að vera. Nú sitja formenn
aðildarfélaganna í stjórn og það eykur upp
lýsingaflæðið milli þeirra. Ég hef haft þá
stefnu að ýta verkefnum sem áður voru hjá
LÍ út til félaganna.
Ekkert kerfi fæðist fullkomið og ým
islegt á eftir að laga í nýja skipulaginu.
Mesta gagnrýnin hefur verið á stöðu eldri
félagsmanna í félaginu. Við eigum eftir að
ræða betur hvernig við tökum á því. Einnig
þarf að efla LÍ sem fagfélag sem ég tel að
gerist með nánara samstarfi við stærstu
sérgreinafélögin, lyflækna, skurðlækna,
barnalækna, rannsóknalækna og fleiri fé
lög. Þar held ég að Fræðslustofnun lækna
hafi miklu hlutverki að gegna.
Hún gegnir einnig stóru hlutverki í einu
stærsta verkefni sem bíður okkar í stjórn
inni sem er símenntunin. Við gerðum
könnun á stöðu símenntunar lækna í lok
síðasta árs og komumst að því að læknar
nýta ekki námsréttindi sín að fullu. Þegar
læknar sjá sér ekki fært að nýta nema rétt
um helming námsréttinda sinna er það
alvarleg staða. Það hefur áhrif á starfsþró
un lækna og þróun heilbrigðiskerfisins. Nú
eru því miður ýmsar innbyggðar brems
ur sem verka letjandi á lækna í að taka út
námsleyfin sín. Þetta þurfum við að laga
með stjórnvöldum, segir Reynir.
Jafnlaunavottun á villigötum
Nú blasa við þér tvö ný ár við stjórnvölinn, hvað
er brýnast?
– Það sem nú er efst á dagskránni eru
nýir kjarasamningar. Samningar eru laus
Annasöm breytingatíð að baki
Reynir Arngrímsson fékk ekki mótframboð og verður því formaður LÍ næstu tvö árin
Reynir Arngrímsson: Kjarasamningar og jafnlaunavottun eru brýn úrlausnarefni núna en símenntun lækna og lækna-
leysi á landsbyggðinni eru langtímaverkefni sem taka verður á.
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson