Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 43

Læknablaðið - jún. 2019, Blaðsíða 43
LÆKNAblaðið 2019/105 299 Áhrif af tréspíra- drykkju Fyrstu áhrif af drykkju tréspíra eru sljóleiki, skert samhæfing hreyfinga, uppköst og kviðverkir. Eituráhrif geta komið fram eftir neyslu á litlu magni af tréspíra og jafnvel leitt til dauða. Langvinnar afleiðingar hjá þeim sem lifa af eitrunina geta orðið blinda og nýrnabilun. Áfengi getur bjargað Rætt var á aðalfundi Félags áhugam­ anna um sögu læknisfræðinnar að drykkja alkóhóls gæti bjargað þeim sem drekka tréspíra. Efnasamsetn­ ingin sé lík þótt áhrifin á líkamann séu ólík. „Metanól (tréspíri) og etanól eru lík efnafræðilega og sami hvatinn í líkam anum (alcohol dehydroge­ nasi) brýtur þessi efni niður. Við niðurbrot etanóls myndast vatn og koltvísýringur en við niðurbrot trés­ píra myndast maurasýra, formalín og format sem eru öll eitruð. Maurasýran sýrir blóðið og leiðir til þess að sýru­basajafnvægi líkamans raskast og sýrustig lækkar hættulega mikið sem veldur vefjaskemmdum.“ Meðferðin beinist að því að leið­ rétta sýrustig líkamans og reyna að draga úr styrk þeirra eiturefna sem myndast við niðurbrot tréspírans. „Sé etanól í blóði á sama tíma og tré­ spíri brotnar etanólið niður en ekki tréspírinn og kemur það í veg fyrir að eitruð niðurbrotsefni mynd ist. Ef þéttni tréspíra er há geta komið fram bein eituráhrif af honum, til dæmis á taugakerfi og nýru.“ 9. ágúst og líklega lést hann aðfararnótt mánudags.“ Ragnar lýsti ítarlega hvernig Hjörtur dreifði tréspíranum og skildi eftir flöskur hér og þar í hvítum tjöldum hátíðargesta. Hann lýsti einnig hvernig Hjörtur vaknaði með einkenni tréspíraeitrunar á sunnu­ deginum. „Er hann vaknaði og frameftir degi var hann ringlaður og utan við sig og sjón hans óskýr,“ sagði hann. Hjörtur hafi lifað en aðrir fóru að deyja: Þorlákur Sverrisson kaupmaður, drakk um 750 ml og lést 9. ágúst. Árný Guðjónsdóttir á Sandfelli, talin hafa drukkið 200­300 ml og lést 9. ágúst. Ingvi Sveinbjörnsson, 300­400 ml, lést 9. ágúst. Þórarinn Bernódusson, nokkur hundruð ml og lést 9. ágúst. Daníel Loftsson, verulegt magn eða um lítri og lést 9. ágúst. Guðmundur Guðmundsson, lést 10. ágúst. Sveinjón Ingvarsson, lést 10. ágúst. Jón Gestsson andast aðfararnótt þriðjudags 10. ágúst. Ólafur Davíðsson, skipstjórinn, látinn 11. ágúst. Bróðir Jóns Gestssonar, Andrés, var einn þeirra sem veiktust hastarlega. „Er hann vaknaði á mánudagsmorgni, var hann með uppköstum og leið illa. Þá hafði hann fulla sjón. Er á daginn leið, dapraðist sjónin, og um kvöldið sá hann allt í þoku. Á þriðjudagsmorgni var hann fluttur á sjúkrahús. Hann fékk aldrei sjónina aftur og var ætíð kallaður Andrés blindi í Eyj­ um eftir þetta,“ sagði Ragnar og að saga hafi komist á kreik um að Andrés hafi verið úrskurðaður látinn og kominn út í líkhús, en hafi þá hreyft fingur og verið fluttur til baka. „Ég fann þó hvergi neitt skrifað um þetta,“ sagði Ragnar en fékk þá stuðning úr sal og sagðist einn fundar­ gesta hafa heyrt þetta frá fyrstu hendi. Ólafur Davíðsson, skipstjóri á Stakksár­ fossi, sem hafði fundið og flutt tunnuna í land, andaðist síðastur, en hann lést miðvikudaginn 11. ágúst. „Sagan segir að eftir að hann hafði gert sér grein fyrir afleiðingum tunnufundarins og dreifingu innihaldsins, hafi hann tekið þá ákvörðun að taka forlögin í eigin hendur og nýtti hann sér tréspírann til þess,“ sagði Ragn­ ar. Af lítrunum 150 virðist sem um fimm­ tíu hafi verið neytt með þessum alvarlegu afleiðingum. „Eftirleikur þessa máls var að þrír voru kærðir. Einn sýknaður og tveir dæmdir, annar í tólf mánaða fangelsi og hinn í sex mánuði fyrir manndráp af gáleysi.“

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.