Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 3

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 3
Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Magnús Gottfreðsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður Elsa B. Valsdóttir Gerður Gröndal Hannes Hrafnkelsson Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Magnús Haraldsson Sigurbergur Kárason Tölfræðilegur ráðgjafi Thor Aspelund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is Auglýsingastjóri og ritari Esther Ingólfsdóttir esther@lis.is Umbrot Sævar Guðbjörnsson saevar@lis.is Upplag 1850 Prentun, bókband og pökkun á Íslandi Prenttækni ehf. Vesturvör 11 200 Kópavogi Áskrift 16.900,- m. vsk. Lausasala 1690,- m. vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfundar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSe- arch), Journal Citation Reports/Science Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 LÆKNAblaðið 2019/105 259 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL www.laeknabladid.is „Já, vissulega kom valið mér verulega á óvart, en ég skráði mig til leiks og vonaði það besta,“ segir Þórir Einarsson Long sem útnefndur var ungur vísindamaður Landspítala á ráðstefnunni Vísindum á vordögum sem haldin er árlega. Jón Jóhannes Jónsson kynnti valið fyrir hönd Vísindaráðs og fær Þórir fjárupphæð til að kynna rannsókn sína erlendis. „Ég lít á þetta sem hvatn­ ingu til að halda áfram rannsóknum.“ Þórir segir rannsóknarstörf fara vel með klínískri vinnu við lækningarnar. „Þetta er ákjósanleg leið til að velta hlutum fyrir sér og hvaða aðferðum er best að beita til að fá sem réttasta niðurstöðu. Rannsóknarstarfið er líka svolítið frí frá hefðbundinni klínískri vinnu um leið og það hjálpar til við að hugsa akademískt um það sem við læknar gerum í daglegu starfi.“ Þórir stendur á þrítugu og útskrifaðist með kandidatspróf í læknisfræði frá Háskóla Íslands 2015. Hann lauk kandídatsári á Landspítala 2016 og stefnir á að verja doktorsritgerð sína í desember. Titill ritgerðar hans er „Bráður nýrnaskaði – Nýgengi, áhættuþættir, endurheimt nýrnastarfsemi og lifun.“ En af hverju lyf og nýru? „Samspil lífeðlis­, lyfja­ og sjúkdómafræði er heillandi við fagið. Lífeðlisfræðilegar pælingar eru miklar og bæði áhugaverðir og skemmtilegir sjúkdómar fylgja þessu fagi.“ Þórir ákvað á síðasta ári í Menntaskólanum við Hamrahlíð að fara í læknisfræði. „Mér líkar vel og sé ekki eftir þessu vali.“ Þórir Einarsson Long er ungur vísindamaður Landspítala ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Helga heiðurs- vísinda maður Landspítala Helga Jónsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við hjúkrunar­ fræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna í samtengdri stöðu á Landspítala, er heiðursvís­ indamaður Landspítala 2019. Helga hefur komið að birtingu ríflega 70 ritrýndra tímaritsgreina og hafa á þriðja tug hjúkrunarfræðinga lokið meist­ araprófi undir hennar leiðsögn. Kári kjörinn í eina virtustu akademíuna Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein­ ingar, hefur verið kjörinn í bandarísku vísinda­ akademíuna, National Academy of Sciences (NAS). Kári er fyrstur Íslendinga inn í hana. Inngöngu fá menn aðeins eftir tilnefningu kjör­ ins meðlims í henni. 100 nýir félagar úr hópi vísindamanna voru kjörnir í þetta sinn, þar af 25 erlendir. Kjör í akademíuna er viðurkenning á mikilvægu framlagi til vísinda en NAS er ein virtasta stofnun bandarísks vísindasamfélags. Runólfur fær fimm milljóna verðlaunafé Runólfur Pálsson yfirlæknir hefur hlotið fimm milljóna króna verðlaun úr Verðlauna­ sjóði í læknisfræði og skyld­ um greinum. Árni Kristinsson og Þórður Harðarson, fyrrum prófessorar við Háskóla Íslands og yfirlæknar við Landspítala, stofnuðu verðlaunasjóðinn árið 1986. Verðlaunin eru ein þau stærstu sem veitt eru fyrir vísindastörf hér á landi.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.