Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jun 2019, Page 4

Læknablaðið - Jun 2019, Page 4
267 Signý Rut Kristjánsdóttir, Þóra Steingrímsdóttir, Gerður Gröndal, Ragnheiður I. Bjarnadóttir, Kristjana Einarsdóttir, Björn Guðbjörnsson fyrir hönd ICEBIO Fæðingarsaga kvenna með alvarlega liðbólgusjúkdóma Iktsýki, sóragigt og hryggikt teljast til liðbólgusjúkdóma og leggjast gjarnan á konur á barneignaraldri. Þetta eru ónæmismiðlaðir sjúkdómar sem einkennast af langvarandi bólgu í liðum og í iktsýki er einnig sjálfsmótefnamyndun til staðar. Margt er enn óljóst varðandi tilurð þessara sjúkdóma. Íslenskar konur með alvarlega liðbólgusjúkdóma eru líklegri til að fæða með keisaraskurði en heilbrigður viðmiðunarhópur. 277 Kristín Siggeirsdóttir, Ragnheiður D. Brynjólfsdóttir, Sæmundur Ó Haraldsson, Ómar Hjaltason, Vilmundur Guðnason Nýsköpun: Getur gervigreind gert endurhæfingu skilvirkari? Síðustu tvo áratugi hefur starfsendurhæfing skipað mikilvægan sess í íslensku samfélagi og fjöldi þeirra sem leita eftir þjónustu eykst með hverju árinu sem líður. Aðsókn ungs fólks er þar hlutfallslega mest. Miklu máli skiptir að fjármunum samfélagsins sé vel varið án þess að gæði og þjónusta skerðist. Sú spurning vaknar því hvort gervigreind geti stuðlað að auk- inni skilvirkni þessa geira. 283 Úlfur Thoroddsen, Tómas Guðbjörnsson Tilfelli mánaðarins: Skyndilegur brjóstverkur og raddbreyting eftir notkun rafsíga rettu Tæplega tvítugur, áður hraustur, fyrrverandi reykingamaður leitaði á bráðamóttöku Landspítala vegna skyndilegra brjóstverkja. Tveimur klukkustundum áður hafði hann notað rafsígarettu sem olli kröftugu hóstakasti. Verkurinn versnaði við djúpa innöndun en hann fann einnig fyrir verkjum við hreyfingu og kyngingu, auk þess sem rödd varð rámari. 260 LÆKNAblaðið 2019/105 F R Æ Ð I G R E I N A R 6. tölublað ● 105. árgangur ● 2019 263 Bæklunarskurð­ lækningar í úlfa­ kreppu Yngvi Ólafsson Um eiginlega uppbyggingu hefur varla verið að ræða og þaðan af síður hefur verið unnið eftir nokkurri heildstæðri áætlun þótt þjóðhagslegir vísar um mannfjöldaþróun, breytingar á samsetningu þjóðarinnar, komur ferðamanna og fleira liggi fyrir á hverju ári. 264 Sjálfbært mataræði til bjargar Jóhanne E. Torfadóttir Thor Aspelund Í flexitarian-mataræði eru viðmiðin fyrir helstu prótein- gjafana eftirfarandi miðað við vikuskammt: 100 g af rauðu kjöti, 200g af alifuglakjöti, 200 g af fiski, 350 g hnetur, 90 g egg og 525 g baunir/belgjurtir. L E I Ð A R A R Kápumynd Myndina tók Þorkell Þorkelsson ljósmyndari á rannsóknastofum Landspítala. Hún sýnir eftirmála algengustu rannsóknaraðferðar lækna. Eftir blóðsýna- töku þarf að merkja og raða sýnunum svo ekki fari milli mála úr hverjum þau eru og til hvers eigi að nota þau.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.