Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 9

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 9
LÆKNAblaðið 2019/105 265 R I T S T J Ó R N A R G R E I N má í sjávarfangi sem erfitt er að fá annars staðar úr fæðunni, svo sem joð, D­vítamín og langar omega­3 fitusýrur (tvö síðastnefnd aðallega frá feitum fiski). En þá verður framleiðslan að vera sjálf­ bær. Í dag horfum við fram á að breytinga er þörf og það strax ef tak­ ast á að fæða 10 milljarða manna. Stór þáttur í þeirri breytingu er að minnka neyslu á rauðu kjöti og auka neyslu á fæðu úr jurtarík­ inu.­Samkvæmt­síðustu­mataræðiskönnun­frá­2010/11­sást­að­tíðni­ kjötneyslu jókst frá árinu 2002. Einnig hefur EL fylgst með matar­ æði landsmanna gegnum fæðuframboðstölur sem gefa ákveðna vísbendingu sem taka þarf þó með fyrirvara þar sem fjöldi ferða­ manna og rýrnun getur haft talsverð áhrif. Síðstu fæðuframboðs­ tölur frá árinu 2014 sýna að hver landsmaður neytti að meðaltali 93 g af rauðu kjöti daglega sem er rétt um ráðlagður skammtur heillar viku samkvæmt viðmiðum úr EAT­greininni. Rannsókn um Heilsu og líðan Íslendinga (18­79 ára) á vegum EL frá 2017 sýnir að það vantar mikið uppá að farið sé eftir ráðlegging­ um um mataræði með tilliti til neyslu ávaxta og grænmetis. Mögu­ lega eru sóknarfæri núna þar sem sífellt fleiri eru orðnir meðvit­ aðir um það hvaða umhverfisáhrif matvælaframleiðsla hefur og vilja breyta mataræði sínu til að leggja sitt af mörkum til að draga úr þeim áhrifum. Ennfremur mætti endurskoða ráðleggingar um mataræði á vegum EL og taka tillit til sjálfbærni og umhverfis­ áhrifa eins og vísindamenn EAT­hópsins leggja til. Flexitarian mataræði getur verið viðmið til að stefna að fyrir þá sem vilja breyta neysluvenjum til bættrar heilsu og minnka ágang á gæði jarðar. Heimildir 1. Willett W, Rockstrom J, Loken B, Springmann M, Lang T, Vermeulen S, et al. Food in the Anthropocene: the EAT­Lancet Commission on healthy diets from sustainable food systems. Lancet. 2019;393(10170):447­92. 2. Global Panel on Agriculture and Food Systems for Nutrition. Food systems and diets: Facing the challenges of the 21st century. London, UK. 2016. 3. Aspelund T, Gudnason V, Magnusdottir BT, Andersen K, Sigurdsson G, Thorsson B, et al. Analysing the large decline in coronary heart disease mortality in the Icelandic population aged 25­74 between the years 1981 and 2006. PloS one. 2010;5(11):e13957. 4. Springmann M, Wiebe K, Mason­D‘Croz D, Sulser TB, Rayner M, Scarborough P. Health and nutritional aspects of sustainable diet strategies and their association with environ­ mental impacts: a global modelling analysis with country­level detail. Lancet Planet Health. 2018;2(10):e451­e61. Lynghálsi 13 . 110 Reykjavík . Sími 540 8000 . www.icepharma.is

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.