Læknablaðið - jun. 2019, Síða 12
268 LÆKNAblaðið 2019/105
R A N N S Ó K N
hafa áður verið gerðar hérlendis á því hvernig konum með alvar
lega liðbólgusjúkdóma vegnar á meðgöngu og hvort búast mætti
við verri fæðingarútkomu hjá þessum konum miðað við hjá heil
brigðum konum.
Efni og aðferðir
Rannsóknin náði til allra kvenna á Íslandi sem fengið hafa með
ferð með TNFi við iktsýki, sóragigt, hryggikt eða óskilgreindri
liðbólgu, á árunum 1999 til 2016, og hafa eignast barn á árunum
19812017. Þessar konur voru fundnar með samkeyrslu á kennitöl
um úr ICEBIOgagnagrunninum við Fæðingaskrá Embættis land
læknis.
ICEBIO (Icelandic Bioregistry of Biologic Treatment in
Rheumato logy) er rafræn sjúkraskrá sem inniheldur kerfisbundna
skráningu yfir alla gigtarsjúklinga á líftæknilyfjum á Íslandi.
Ítarlegar upplýsingar um sjúkdóm sjúklings eru skráðar af gigtar
læknum í kerfið þegar ákveðið er að viðkomandi sjúklingur þurfi
á líftæknilyfjameðferð að halda, og síðan árlega er meðferðar
leyfi eru endurnýjuð.11,12 Eftirfarandi breytur fengust úr ICEBIO:
kennitala, sjúkdómsgreining (iktsýki, hryggikt, sóragigt eða óskil
greind liðbólga), mánuður og ár sjúkdómsgreiningar, dagsetning
fyrstu meðferðar með TNFi og hvaða TNFi varð fyrir valinu.
Í Fæðingaskrá er að finna allar fæðingar kvenna á Íslandi frá
og með árinu 1972 en skráin er rafræn frá árinu 1981.13 Sóttar voru
eftirfarandi breytur fyrir móður: aldur við fæðingu, hjúskapar
staða, þjóðerni, starf, búseta, aðrar sjúkdómsgreiningar og hvort
móðir var frumbyrja eða fjölbyrja. Breytur sem safnað var úr
Fæðingarskrá um barnið voru eftirfarandi: fæðingarmánuður og
ár, kyn, þyngd og meðgöngulengd við fæðingu, fæðingarmáti,
Apgareinkunn eftir 5 mínútur, innlögn á vökudeild, sjúkdóms
greiningar barns ef við átti og hvort barnið dó á fyrstu viku og þá
dánardagur. Meðgöngulengd var skráð samkvæmt ómun eða síð
ustu tíðablæðingum og fyrirburar því ekki fundnir út frá ICD10
Tafla I. ICD-10 greiningar sjúkdóma sem útilokuðu þátttöku kvenna sem heilbrigð viðmið og yfirlit um meðgöngusjúkdóma og fæðingarmáta sem leiðrétt var fyrir við
útreikning á áhættuþáttum.
Sjúkdómar sem útiloka þátttöku viðmiða ICD-1
Brátt hjartavöðvadrep og langvinnir blóðþurrðarsjúkdómar I21.0-9 , I25.2
Hjartabilun I11.0 , I13.0 , I13.2 , I42.0-9 , I50. , I51.7
Útlægir æðasjúkdómar I70.0-9 , I73.1-9 , I77.1
Heilaæðasjúkdómar H34.0 , I60.0-9 , G45.0 , G45.1 , G45.2 , G45.8 , G45.9 , R47.0
Vitglöp F00.0 – F03. , G31.0-1
Krónískir lungnasjúkdómar I27.0 , I27.8 , I27.9 , I26.0 , J41.0-J47.
Gigtarsjúkdómar M05.01-99 , M08.00-49 , M12.00-09 , M32.0-9
Maga- og skeifugarnarsár/brátt ætisár K25.0-K28.9
Vægir lifrarsjúkdómar K70.2 , K70.3 , K72.1 , K73. , K74. , K76.0
Sykursýki (væg til miðlungs) E10.00-16 , E10.9 , E11.00-16 , E11.9 , E12.10 , E12.11 , E13.00-16 , E13.9 ,
E14.00-16 , E14.9
Sykursýki með krónískum vandamálum. E10.20-8 , E11.20-81 , E12.20-81 , E13.20-81 , E14.20-81
Helftarlömun eða þverlömun G81.0-G83.9 , S14.70-78
Nýrnasjúkdómar N18. , N19. , Z49. , Z94.0 , Z99.2
Krabbamein, þar með talið eitilfrumukrabbamein og hvítblæði C00.0-C76.8 , C81.0-C96.9
Lifrarsjúkdómar (miðlungs til alvarlegir) I85. , K72. , K75.0 , K75.1 , K76.6 , K76.7 , I98.
Meinvörp krabbameins C77.0-C80. , C97.
Eyðniveirusjúkdómar B20.-B24.
Fyrirverandi háþrýstingur O10.0
Fyrirverandi sykursýki O24.0-1
Meðgöngusjúkdómar sem leiðrétt var fyrir
Meðgönguháþrýstingur 013
Meðgöngueitrun O14.0, O14.1, O14.9
Burðarmálskrampi O15.0, O15.1, O15.2
Meðgöngusykursýki O24.4, O24,9
Mæðrahjálp vegna óeðlilegs fósturvaxtar O36.0, O36.1, O36.2, O36.3, O36.4, O36.5, O36.6
Fæðingarmáti sem leiðrétt var fyrir
Sjálfkrafa leggangafæðing O80.0, O80.1, O80.8, O80.9
Áhaldafæðing O81.0, O81.1, O81.2, O81.4, O81.5
Keisaraskurður O82.0, O82.1, O82.2