Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 28

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 28
284 LÆKNAblaðið 2019/105 T I L F E L L I M Á N A Ð A R I N S Svar: Sjálfsprottið loftmiðmæti (spontaneous pneumomediastinum) Sjúklingurinn er með dæmigerð einkenni og teikn loftmiðmætis en á mynd 1 sést greinileg loftrönd í kringum hjartað. Loftið teygir sig upp í miðmæti og háls þar sem loft undir húð er áberandi, og kallast húðnetjuþemba (subcutaneous emphysema). Greiningin var staðfest með tölvusneiðmynd sem sýnd er á mynd 2, en þar sést loftið í miðmæti og undir húð enn betur en á hefðbundinni lungnamynd. Jafnframt sýna tölvusneiðmyndirn­ ar hvorki loftbrjóst, sem er helsta mismunagreiningin, né blöðrur (blebs) í lungum. Loftmiðmæti er oftast af óþekktum orsökum og er þá kallað sjálfsprottið (spontaneous). Aðrar ástæður geta verið af læknisvöld­ um (vélindaspeglun, berkjuspeglun, sýnatökur á lungum, yfir­ þrýstingur í öndunarvél), eftir háorkuáverka eða sem afleiðingar sjúkdóma eins og langvinnrar lungnateppu, lungnatrefjunar (interstitial lung disease) eða krabbameins í lungum.1 Loftmiðmæti vegna rofs á vélinda getur fylgt miðmætisbólga (mediastinitis) sem er lífshættuleg sýking sem mikilvægt er að útiloka. Sjúklingurinn í þessu tilfelli hafði hvorki hita né hækkun á C­reactive próteini (CRP) eða hvítum blóðkornum sem fylgir mið­ mætisbólgu og því ekki talin ástæða til frekari myndrannsókna eins og skuggaefnisrannsóknar á vélinda eða tölvusneiðmynda­ rannsóknar á vélinda og miðmæti. Hann var lagður inn og fékk verkjalyf. Endurteknar mælingar á CRP og hvítum blóðkornum sýndu eðlileg gildi og röntgenmyndir af lungum sem teknar voru næstu tvo daga sýndu minnkandi loftmiðmæti. Sjúklingurinn var útskrifaður heim við góða líðan tveimur sólarhringum frá upphafi einkenna. Við eftirfylgd rúmri viku síðar sýndi röntgenmynd af lungum (mynd 3) að loft sást ekki lengur í miðmæti. Líkleg orsök fyrir loftmiðmæti í þessu tilfelli er yfirþrýstingur (barotrauma) sem myndaðist í lungum og berkjum. Það má rekja til hóstakasta eftir innöndun á ertandi gufum úr rafsígarettu en þessum gufum er oft andað djúpt inn í lungu og haldið niðri til að fá sem mest nikótín inn í blóðrásina. Loftið hefur rifið gat á lungað og brýtur sér síðan leið inn í miðmæti, í stað þess að fara út í gegnum fleiðru lungans (parietal pleura) og valda loftbrjósti. Til eru mörg sjúkratifelli af loftmiðmæti eftir kannabisreyk­ ingar2­ og­neyslu­krakks/kókaíns­ (crack cocaine)3 en einungis einu tilfelli hefur áður verið lýst eftir notkun rafsígarettu.4 Í öllum til­ vikum er reynt að halda vímuefninu sem lengst í lunganu, sem veldur hóstakasti, jafnvel á lokaðan öndunarveg. Sjálfsprottið loftmiðmæti er ekki algengur sjúkdómur hjá full­ orðnum en greinist helst hjá ungum karlmönnum5­6. Algengasta einkennið, eins og í þessu tilfelli, er skyndilegur brjóstverkur, yf­ irleitt­undir­bringubeini,­sem­leiðir­upp­í­háls­og/eða­aftur­í­bak.­ Einnig­ eru­andnauð,­hósti,­ verkur­ í­ hálsi,­ ógleði­ og/eða­uppköst­ algengar kvartanir auk óþæginda við kyngingu og raddbreytingu sem skýrist af loftsöfnun við raddbönd.5,6 Þótt rafsígarettur geti hjálpað fólki að hætta reykingum7 getur þeim fylgt erting í öndunarvegum sem jafnvel getur valdið alvar­ legum fylgikvillum eins og loftmiðmæti. Heimildir 1. Vasileios K. Kouritas, Konstantinos Papagiannopoulos, George Lazaridis, Sofia Baka, Ioannis Mpoukovinas, Vasilis Karavasilis, et al. Pneumomediastinum. J Thorac Dis. 2015;7:S44–9. 2. Hazouard E, Koninck JC, Attucci S, Fauchier­Rolland F, Brunereau L, Diot P. Pneumorachis and pneumomediastinum caused by repeated Müller’s maneuvers: complications of mariju­ ana smoking. Ann Emerg Med. 2001;38:694–7. 3. Janes S.M., Ind P.W., Jackson J. Images in thorax. Crack inhalation induced pneumomedi­ astinum. Thorax. 2004;59:360. 4. Rita D. Marasco, Domenico Loizzi, Nicoletta P. Ardò, Fabio N. Fatone, Francesco Sollitto. Spontaneous Pneumo mediastinum After Electronic Cigarette Use. The Annals of Thoracic Surgery. June 2018;6:e269­71. 5. Macia I, Moya J, Ramos R, et al. Spontaneous pneumomediastinum: 41 cases. Eur J Cardiothorac Surg. 2007;31:1110–4. 6. Manuel Caceres, Syed Z.Ali, Rebecca Braud, Darryl Weiman, H. Edward Garrett Jr. Spontaneous Pneumomediastinum: A Comparative Study and Review of the Literature. The Annals of Thoracic Surgery, 2008;3:962­6. 7. Peter Hajek, Anna Phillips­Waller, Dunja Przulj, Francesca Pesola,, Katie Myers Smith, Natalie Bisal, et al. A Randomized Trial of E­Cigarettes versus Nicotine­Replacement Therapy. N Engl J Med 2019; 380:629­37. Mynd 3. Lungnamynd viku frá útskrift sem sýnir að loft í miðmæti er horfið. Mynd 2. Tölvusneiðmynd af brjóstkassa tekin nokkrum klukkustundum frá komu. _______ Case of the month: Sudden chest pain and changed voice after the use of an electronic cigarette Úlfar Thoroddsen1 Tómas Guðbjartsson1,2 1Department of Cardiothoracic Surgery, Landspitali University Hospital, 2Faculty of Medicine, University of Iceland. Keywords: Pneumomediastinum, E-cigarette, Electronic cigarette, chest pain, change in voice, vocal change, Spontaneous pneumomediastinum. Correspondence: Úlfur Thoroddsen, ulfurtho@landspitali.is Barst til blaðsins 2. apríl 2019, samþykkt til birtingar 8. maí 2019. Porsche Cayenne E-Hybrid: Hestö : 462 | Hámarkstog: 700Nm | Hröðun: 5.0 sek. 0-100 km.klst. Porsche á Íslandi | Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000 | benni.is | porsche.is | Opið virka daga frá 9:00 til 18:00 og um laugardaga frá 12:00 til 16:00 Það er líf eir vinnu. Cayenne E-Hybrid.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.