Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jun 2019, Page 32

Læknablaðið - Jun 2019, Page 32
288 LÆKNAblaðið 2019/105 Jáeindaskanninn hefur gjörbylt þjónustu við krabbameinssjúka, meðferð og eftirliti með árangri. „Sýnt hefur verið fram á að rannsóknaraðferðin breytir til dæmis með­ ferð hjá allt að þriðjungi þeirra sem glíma við lungnakrabbamein. Óþarfa skurðað­ gerðum hefur fækkað. Nú fá þess ir sjúk­ lingar viðeigandi meðferð,“ segir Pétur Hannesson yfirlæknir röntgendeildarinn­ ar. „Sjúklingar eru ekki skornir nema þeir sem hafa gagn af því og fá frekar geisla­ eða lyfja meðferð,“ segir hann. „Notkun skann­ ans hefur því fækkað ónauðsynlegum skurðaðgerðum. Hann er einnig gagnlegur til þess að fylgjast með árangri meðferðar.“ 300 farið í skannann Yfir 300 sjúklingar hafa farið í jáeindaskann­ ann á fyrstu 8 mánuðunum sem hann hef­ ur verið í notkun. Árlega fóru rúmlega 250 utan í rannsóknir og því ljóst að fleiri njóta nú þessarar nútímatækni en áður. Pétur segir að alls kosti tæplega 230.000 kr. að rannsaka hvern sjúkling hér heima, sem sé ríflega helmingi minna en kostaði að jafnaði að senda hvern sjúkling úr landi. Það hafi kostað um milljarð að koma þjón­ ustunni við skannann, sem DeCode stóð fyrir og gaf þjóðinni, á laggirnar. Pétur segir skannan geta afkastað meiru en stígandi hefur verið í notkuninni undan­ farna mánuði. „Í framtíðinni verða fleiri sporefni í boði en nú er notað svo kall að FDG­sporefni sem sýnir bruna í frumum. Notkun jáeindaskanna er í flest um tilfell­ um til þess að meta krabbamein með FDG og eru 90% rannsóknanna í þeim tilgangi,“ segir hann. Rannsaka Alzheimer „Núna er verið að innleiða hjá okkur spor­ efni sem heitir flutemetamol sem notað er til að greina Alzheimer­sjúkdóminn,“ segir hann og að það sé fyrst og fremst ætlað í rannsókarskyni. „Við erum svo að skoða hvað verður í framtíðinni, hvaða önnur sporefni við tökum upp og beinast sjónir okkar að sértæku sporefni fyrir blöðru­ hálskrabbamein.“ Pétur segir nú heyra til algerra undantekninga að fólk þurfi að fara utan í jáeindaskanna og þá aðeins til að komast í önnur sértæk sporefni en hér eru framleidd. Hann segir fimm starfsmenn koma að framleiðslu sporefnanna. Þekkingin hafi verið byggð upp hér á landi en fyrir hafi hún engin verið. Efnið sé geislavirkt og róbótar því nýttir til að sprauta því í sjúk­ linga. Það hafi afar stuttan líftíma og ekki sé hægt að fljúga því til landsins. „Helm­ ingunartími lyfsins er 120 mínútur og efnið hefði rýrnað mjög á leiðinni.“ Vilja ekki leita annað Pétur segir áskorun fyrir Landspítala að halda úti þjónustunni en að það sé byggða­ mál fyrir Ísland að heilbrigðisþjónustan sé á pari við það sem gerist í nágrannalöndun­ um. „Við viljum ekki þurfa að leita annað,“ segir hann. Þá séu jáendaskannarannsókn­ ir lykill að framtíðar heilbrigðisþjónustu. Stefnt sé að því á nýjum spítala að hafa tvo jáeindaskanna með möguleika á að fjölga þeim enn frekar, enda útlit fyrir mikinn vöxt á þessu sviði. „Sporefnin sem við notum sækja í meinin sem við skoðum hverju sinni og í Jáeindaskanninn hefur sannað sig Jáeindaskanninn sem tekinn var í notkun í september hefur bætt greiningu verulega, fækkað óþarfa skurðaðgerðum og breytt meðferð hjá allt að þriðjungi þeirra sem glíma við lungnakrabbamein. Þetta segir Pétur Hannesson röntgenlæknir. Pétur Hannesson röntgenlæknir segir þau þrjú ár sem tók að koma starfseminni af stað frá fjármögnun sé í öllum saman­ burði stuttur. „Þar sem við þekkjum til hefur tekið mun lengri tíma að koma starfsemi af þessu tagi í gang og allt að tíu ár á þeim stöðum þar sem hremmingarnar hafa verið mestar,“ segir hann. „Hanna þurfti sérhæft húsnæði fyrir hringhraðal og framleiðslu sporefnis en við bjuggum að því að hafa spekúlerað mikið í þessu fyrir nýja spítalann. Það gekk því vel að hanna húsnæðið, finna því stað og byggja,“ seg­ ir hann. Framleiðsla á sporefninu hefur að mestu ráðið tímalengdinni. Lyfjafram­ leiðslan er flókin og flóknari en almennt vegna geislavirku efnanna sem notuð eru í þau. „Við erum að tala um geislavirk innrennslislyf,“ segir hann. „Að kaupa skanna og taka myndir er ekkert mál en það tekur tíma að byggja upp þekkingu og standast þær kröfur sem stífar reglur um lyfjaframleiðslu setja. Við erum ákaf­ lega stolt af því hvað allt hefur gengið vel.“ Blæs á gagnrýni um seinagang á lokametrunum ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.