Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 33

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 33
LÆKNAblaðið 2019/105 289 framtíðinni er stefnt að því að nota sömu aðferðir fyrir krabbameinslyf. Þá er beitt sömu aðferðum við greiningu og meðferð, svo kallað theragnostics. Það gæti orðið mik­ il bylting, því þá hafa lyfin ekki sömu auka­ verkanir á krabbameinssjúklinga og nú er.“ Skanninn sannað sig Pétur segir því ekki nokkra leið að stunda læknisfræði á þessu stigi nema með já­ eindaskanna. Vissulega hefði því verið gott að geta tekið hann í notkun fyrr. „Það eru um 15 ár síðan fyrst var farið að ræða jáeindaskannann.“ Þessi uppbygging var lengi tengd byggingju nýs Landspítala. Stefnt sé að því að færa starfsemina og skannann þegar nýi spítalinn rísi og bæta allt að tveimur skönnum við enda hafi hann sannað sig. Spurður að því hvort jáeindaskanninn hafi bjargað mannslífum svarar hann: „Já, án efa. Þetta var heillaspor og notkunin hefur gengið vonum framar.“ Pétur Hannesson yfirlæknir á röntgendeild Landspítala segir jáeindaskannann framtíðartækni í greiningu og meðferð. Hann hafi bætt meðferð verulega. Mynd/gag Miklar breytingar á starfsferlinum Umfang röntgenlækninga hefur aukist mikið og tækjabúnaður breyst, seg­ ir Pét ur Hannesson röntgenlæknir, spurður hvort starf hans hafi breyst mikið frá því að hann hóf störf á Landspítala árið 1995. Nú síðast hafi jáeindaskanninn bæst við og brjósta­ rannsóknirnar sem áður voru hjá Krabbameinsfélaginu. „Nú vinna 23 sérfræðingar á röntgendeildinni en þeir þyrftu að vera 28­29,“ segir hann. Spítalinn er alltaf á höttunum eftir starfsfólki en skortur er á röntgen­ læknum í heiminum. Hann er lítt sann­ færður um að tæknin muni leysa rönt­ genlækna af hólmi. „Svo hefur verið sagt í 20 ár en ekki gengið,“ segir hann og hlær. „Það gerist kannski núna með gervig reind. Það er gott því vinnuálagið og magn upplýsinga hefur aukist með hverju árinu. Rannsóknum er alltaf að fjölga og fólkið eldist. Það væri því mjög gott að fá hjálp í sjálfvirkum úrlestri.“

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.