Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Jun 2019, Page 35

Læknablaðið - Jun 2019, Page 35
LÆKNAblaðið 2019/105 291 Fjölskyldu- og styrktarsjóður lækna Læknar sem starfa hjá hinu opinbera eiga rétt á styrk úr sjóðnum en þeir sem stunda sjálfstæðan rekstur verða að velja sjálfir að sækja um aðild að FOSL (Fjölskyldu- og styrktarsjóður LÍ) á vefsíðu Læknafélagsins. KYNNTU ÞÉR RÉTTINDI ÞÍN www.lis.is ir og við erum á kafi í viðræðum við ríkis valdið, höfum verið að vinna í kröfu­ gerðinni okkar. Annað stórmál er jafn launa ­ vottun sem þarf að ljúka fyrir áramót hjá öllum heilbrigðisstofnunum. Land spít ali ber að sjálfsögðu höfuð og herðar yfir aðrar stofnanir og því miður fór stjórn hans inn á braut sem við erum ekki sátt við. Spítalinn hyggst taka upp enskt kerfi sem ekki nær til lækna, þeir hafa hreinlega ekki verið með í því og tilraunir spítalans til að laga lækna að því hafa ekki tekist vel. Við höfum þurft að beita okkur til þess að fá störf lækna rétt metin, enda er ósanngjarnt að taka upp jafnlaunavottun sem ekki tekur tillit til eðl­ is og inntaks náms lækna sem eru ein mik­ ilvægasta stétt heilbrigðiskerfisins. Þriðja málið sem bíður nýrrar stjórn­ ar eru samningsmál sjálfstætt starfandi lækna. Þau eru í höndum Læknafélags Reykjavíkur en LÍ þarf að styðja við bakið á samninganefnd lækna. Við teljum að ein ástæða þess að íslenska heilbrigðiskerfið er svo gott sem raun ber vitni sé þetta samspil milli sjálfstætt starfandi lækna og opinbera kerfisins. Fjórða málið er svo læknaskortur­ inn á landsbyggðinni. Hann hefur borið á góma í kjaraviðræðunum og við höfum gert tillögu um að heilbrigðis­ og fjármála­ ráðuneyti ásamt LÍ skipi starfshóp til að leysa þann mikla vanda sem þar ríkir. Það er mjög alvarlegt að stór hluti læknisstaða á landsbyggðinni sé ekki setinn af föst­ um heimilislæknum. Verktökulækningar geta verið ágætar til að leysa tímabundinn vanda en þær duga ekki til að byggja upp lífvænlegt fyrirkomulag í heilbrigðismál­ um landsbyggðarinnar. Fundað á Siglufirði í haust Reynir segir að þessi mál muni bera á góma á aðalfundi LÍ á Siglufirði í haust þótt von­ andi verði samningamál Lí og LR frá þegar hann verður haldinn. – Á síðasta aðalfundi var talsvert rætt um stefnu hins opinbera í heilbrigðismálum, enda lá þá fyrir skjal frá heilbrigðisráðherra sem umræðugrund­ völlur. Það gekk mjög vel en nú finnst mér röðin komin að því að læknar líti í eigin barm og skoði hver stefna LÍ í heilbrigðis­ málum eigi að vera og hver séu helstu gildi lækna. Loks þarf að ræða um símenntun­ ina. Þetta verða væntanlega stærstu málin, auk þess að slípa nýja skipulagið aðeins til, segir Reynir Arngrímsson formaður LÍ. Stjórnarkjör á aðalfundi Þann 15. maí rann út frestur til að til­ kynna framboð til formanns í Læknafé­ lagi Íslands, Sitjandi formaður, Reynir Arngrímsson, var sá eini sem sendi inn framboð og var hann því sjálfkjörinn formaður félagsins til næstu tveggja ára. Aðrir stjórnarmenn verða tilnefndir af aðildarfélögum sínum fyrir aðalfund sem haldinn verður á Siglufirði dagana 26. og 27. september. Ný stjórn tekur svo við á fyrsta fundi eftir aðalfund.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.