Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 40

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 40
296 LÆKNAblaðið 2019/105 gruna að við værum ekki á réttri leið. Var þá sest niður í skjóli undir stórum steini og tekið upp kort til að finna GPS­punkta sem myndu skila okkur á áfangastað. Þetta gekk eftir þó kortið væri bæði blautt og tætt og reyndist auðvelt að þræða punkt­ ana yfir heiðina. Á miðri Kjarrdalsheiði dró svo frekar til tíðinda. Við vorum öll orðin svolítið mædd, enda veður válynd, en vindur þó að mestu á hlið. Einn okkar varð þó sýnu mæddastur, og eftir nokkra hríð kvað hann upp úr með það að hann væri kom­ inn með gáttatif, 150 slög á mínútu, vílaði ekki fyrir sér að stilla slíka greiningu á þessum stað, enda langreyndur og sleipur í faginu. Hann hafi fengið gáttatif áður, var með sotalol í pokanum og bruddi það sem ákafast. Hægði þá á hjartslætti, en hrökk þó ekki í takt. Eftir nokkuð basl komumst við í bíl Bjarna, og sá með gátta­ tifið hinn hressasti. Hinn læknirinn varð samt náttúrulega áhyggjufullur og krafðist þess að komið væri við á Höfn í Hornafirði og tekið hjartalínurit. Hefði getað vitnað til Guðbergs Bergssonar sem sagði löngu síðar að „læknar væru kurteisir, þeir taka hjartalínurit“. Greining var staðfest, ekki meira gert, enda höfðu allar alvöru lækn­ ingar farið fram uppi á Kjarrdalsheiði. Um miðjan maí árið eftir fór jökla­ klúbburinn aðra ferð á sömu slóðir og voru nú í för með okkur Brynjólfur Mog­ ensen og Björn Marteinsson. Að þessu sinni var heiðskírt og glampandi sólskin í Goðahnjúkum og gafst okkur þá tæki­ færi til að skoða okkur um þar, ganga á Grendil og næstahæsta tindinn sem liggur suðvestan við Grendil og er nefndur Deil­ ir á kortum en við kusum að nefna Hnátu vegna lögunar sinnar. Við slíkar aðstæður er óviðjafnanleg náttúrufegurð og útsýni sem blasir við til allra átta og ferð á Goða­ hnjúka því vel áhættunnar virði. Á Lambatungnajökli að nálgast Goðahnjúka á fyrsta degi. Tindurinn í baksýn líkist Grendli en var nefndur Hnáta í ferðinni. Læknagolfið í ár Sumarið 2019 verða fjögur golfmót á vegum Læknagolfsins og auk þess verður einvígi við tannlækna á Nesinu. Eftir síðasta mótið í Garðabænum 30. ágúst verður útnefndur „punktameistari” golfsum- arsins. Þann heiður (farandbikar) hlýtur sá keppandi sem flesta punkta fær samtals út úr mótum sumarsins. Þrjú bestu mótin telja. Við munum eins og undanfarin sumur reyna að ræsa út á fleiri en einum teig í einu. Það tekst ekki alltaf því vellirnir eru mikið bókaðir. Vonandi sjá sem flestir sér fært að vera við verðlaunaafhendingu og taka þátt í mótunum til enda. Í sumum tilfellum mun það þýða nokkra bið fyrir þá sem koma fyrstir í hús. Hvetj- um alla til að skrá sig sem fyrst þegar skráning í mótin opnar á golf.is. Það auðveldar alla framkvæmd. Gert er ráð fyrir um 40 rástímum í hverju móti. Fyrsta mótið er að baki, það var haldið 31. maí. 18. júní Golfklúbbur Mosfellsbæjar (Kjölur). Punktakeppni með og án forgjafar. Rástímar frá kl. 13:00. Bókun á golf.is undir mótaskrá. 21. júlí Brautarholtsvöllur, Kjalarnesi. Punktakeppni með og án forgjafar. Rástímar frá kl. 13:00. Bókun á golf.is undir mótaskrá. Styrktaraðili: Fastus 30. ágúst Leirdalur, Garðabæ (GKG). Punktakeppni með og án forgjafar. Rástímar frá kl. 13:30. Bókun á golf.is undir mótaskrá. Styrktaraðili: Lyfja 15. september Nesvöllur, Seltjarnarnesi - einvígi við tannlækna. Holukeppni með forgjöf. Ræst út á öllum teigum kl. 09:00.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.