Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 45

Læknablaðið - jun. 2019, Síða 45
LÆKNAblaðið 2019/105 301 um öflugt gæðastýrt starf, opið aðgengi byggt á góðri heilbrigðisþjónustu og að réttur sjúklingur sé að réttum stað. Heilsugæslan verði fyrsti viðkomustaður sjúklinga á höfuðborgarsvæðinu eins og hún er víðast hvar á landsbyggðinni. Öldr­ un þjóðar er mikil áskorun og þar erum við á heilsugæslunni algerir lykilaðilar til að vel takist til. Þá er mikilvægt að tryggja öflugt samstarf við sveitarfélög, sérgreinalækna, spítalann og einkareknar heilsugæslustöðvar svo dæmi sé tekið,“ segir Óskar. 700 starfsmenn á 20 stöðum Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er með um 700 starfsmenn í vinnu og er með rekstrareiningar á um 20 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða 15 heilsugæslustöðvar, göngudeild sóttvarna, geðteymi og Þroska og hegðunarstöð. (Fjórar heilsugæslustöðvar á höfuð­ borgarsvæðinu eru einkareknar og eru þá samtals 19 stöðvar). Þá er núna rekin Þró­ unarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu sem er mikilvæg eining í því að þróa starfið og umbreyta eftir því sem best verður gert. 300 viðtöl á hverjum degi Þegar Óskar er spurður út í þjónustu­ stig Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og helstu tölur í því sambandi kemur fram að bráðaþjónustan er mjög góð á heilsugæslunni. Ástæðan er sú að á hverj­ um tíma eru um 40 starfsmenn, bæði læknar og hjúkrunarfræðingar, sem taka á móti fólki sem ekki getur beðið eftir hefðbundnum pöntuðum tíma. Þetta eru bráð og hálfbráð mál. Heilsugæslan sinnir meira en 60% allra viðtalsbeiðna innan tveggja sólarhringa. Þar að auki eru um 300 viðtöl daglega á síðdegisvöktum heilsugæslustöðva. Það eru því um 1000 höfuðborgarbúar sem daglega fá þjónustu heilsugæslunnar án þess að eiga pantaðan tíma. Sumir mæta á dagvinnu heilsugæsl­ unnar, aðrir á síðdegisvöktum og enn aðrir á Læknavaktinni í Austurveri en það er vaktþjónusta heilsugæslunnar eftir lokun. Með græna fingur Að endingu er Óskar beðinn um að segja frá helstu áhugamálum sínum en þau eru fjölmörg. „Já, ég er nú svo heppinn að hafa mörg áhugamál. Sum hver sem tengjast vinnunni og sum allt öðru. Ég hef gaman af því að ferðast og nýt þá mest að vera innan um fjölskylduna, með börn­ unum mínum og barnabörnum. Ég hef mjög gaman af því að vinna í garðinum, hann er stór og skemmtilegur. Þar er ég alltaf eitthvað að smíða og vinna. Ég hef afskaplega gaman af að vera úti í nátt­ úrunni að ganga, skoða og njóta. Ég hef gaman af að taka myndir af náttúrunni og landinu og vinna með þær. Svo fer ég í ræktina og hoppa þar eitthvað, sit stund­ um lengi í heita pottinum og læt hugann reika. Þá er notalegt að lesa góðar bækur, leysa sudoku, spjalla við vini og kunn­ ingja og fara í bíó, svo eitthvað sé nefnt.“ Sumarið leggst mjög vel í Óskar og hans fjölskyldu, þau ætla að reyna að nýta tímann vel með barnabörnunum, fara með þau á reiðnámskeið og vera dugleg að nota sundlaugarnar á höfuðborgarsvæðinu. Í ágúst verður svo farið með stórfjöl­ skylduna í vikuferð til Danmerkur. Þetta verða lokaorð Óskars: „Ég hef mikla trú á heilbrigðismálum hér á Íslandi og er sann­ færður um að við berum gæfu til að gera þjónustuna en betri en verið hefur og með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi“. Óskar Sesar Reykdalsson sem tók við stöðu forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 1. janúar 2019, skipaður af heilbrigðisráðherra. Óskar er fæddur og uppalinn á Selfossi. Mynd/ LSH/Þorkell

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.