Hugur og hönd - 01.06.1983, Side 38
prjón, brugðna hliðin snýr út á réttu.
Fellið laust af frá röngu.
Frágangur: Brjótið kantinn að hálfu
yfir á röngu og Ieggið niður við í
höndum. Saumið saman ermar.
Gangið vel frá öllum lausum endum.
Þvoið treyjuna úr mildu volgu sápu-
vatni, setjið svolítið edik í síðasta
skolvatn ef loðbandið lætur lit.
Leggið á slétta plötu, sléttið vel með
hendinni og strekkið með ryðfríum
títuprjónum til að fá fallegt lag á
treyjuna og kanturinn verði jafn og
beinn.
Pils, lítið útsniðið: Þar sem pilsið er
prjónað með garðaprjóni er þægi-
legast að prjóna bak- og framstykki
hvort fyrir sig. Prjónið garðaprjóns-
jaðar - takið síðustu L af óprj, en
prjónið alltaf fyrstu lykkju. Þá er
auðvelt að jaðra saman brúnir, svo
garðar stemmi í hliðum. Byrjað er að
prjóna frá mitti og niður, með því er
hægara að ákveða um sídd og vídd.
Strengur: Fitjið upp 72 (80) 88 L á
prjóna nr 4 með einföldum plötu-
lopa, prjónið slétt prjón 8 umf.
Prjónið 1 garð sem myndar brún
strengsins. Prjónið 1 sl 1 br 8 umf og
aukið í 8 L með jöfnu millibili í síð-
ustu umf. Skiptið yfir á pr nr 5 og prj
pilsið með garðaprjóni. Prjónið 4
garða.
Útaukning: Aukið er út í báðum hlið-
um fyrir innan tvær fyrstu og síðustu
lykkjurnar, auk þess þrisvar sinnum á
eftirfarandi hátl. Prj 2 L, aukið í 1 L,
prj 24 L, aukið í 1 L, prj þar til 26
L eru eftir á prjóninum, aukið í 1 L,
prj 24 L, aukið í 1 L, prj 2 L. Prj 12
garða endurtakið þá útaukningu sem
fyrr, ath. að bil milli útaukninga
stækkar um 1 L, verður næst 25 L.
Endurtakið þrisvar sinnum. Aukið
síðan út í hliðum eftir hverja 12
garða. Ef óskað er eftir meiri vídd
má fjölga útaukningum á mjöðmum
eða prjóna færri garða milli útaukn-
inga. Prjónið kant neðst á pilsið á
eftirfarandi hátt:
1. umf slétt prjón frá röngu loðband.
2. umf gatasnar prjónað með lopa.
3. umf slétt prjón loðband.
4. -5. umf 1 garður með lopa.
Og að lokum kantur með sléttu
prjóni 8 umf ranga út. Fellið laust af
frá röngu. Þvoið pilsið úr mildu volgu
sápuvatni, setjið svolítið edik í síð-
asta skolvatn ef loðbandið lætur lit.
Leggið dúkana á slétta plötu, sléttið
vel og strekkið með ryðfríum títu-
prjónum og fáið fallegt lag á pilsið.
Fóðrið pilsið með þunnu silkifóðri,
sníðið það eftir prjóninu. Saumið í
vél. Gangið frá fóðri í höndum við
streng. Setjið teygju í mittisstreng.
K. J.
38
HUGUR OG HÖND