Hugur og hönd - 01.06.1983, Blaðsíða 48
peysa úr eingirni
Það hefur verið mikið í tísku undan-
farið að prjóna peysur á ská, þ. e. frá
einu horni til annars þangað til kom-
ið er ferkantað stykki. Þegar búið er
að prjóna þannig framstykki og bak
eru þau saumuð saman, lykkjur tekn-
ar upp að neðan og prjónaður
strengur. Að ofan eru líka teknar
upp lykkjur og prj brugðning f
hálsmál og axlarstykki, saumað
saman á hliðum og skilið eftir op f
ermum. Ekkert garn er eins fallegt í
svona peysur og íslenskt eingirni. -
Eitt svona skáprjónað stykki getur
líka verið fallegt í sessuborð.
A þeirri peysu sem hér er sýnd er
byrjað á hvítum þríhyrningi þannig:
Fitjið upp 3 L, prj næstu umf
brugðið. Aukið út á endum næsta
prjóns sem er prj sl, 1 L hvoru
megin. Aukið þannig um 2 lykkjur á
endum hvers slétts prjóns þangað til
f5 lykkjur eru á prjóninum. Þá 4 umf
sauðsvart garðaprjón og haldið áfram
að auka út á réttunni um 2 L (og
stöðugt annanhvern prjón þangað til
Í40 L eru á prjóninum), nú hvítt og
slétt 8 umferðir, 2 sl umf silfurvír, iO
umf milligrátt með gataröð í miðju, (í
5. umf 7 L sl, brugðið uppá prjóninn,
2 L saman, allar lykkjur brugðnar til
baka); f garður hvítt angora, Í2 umf
dökkgrátt m perluprjóni, 4 umf sauð-
svart garðaprjón, 16 umf hvítt með
hnútaröð í miðju (5 L sl, þá hnútur:
fitjið upp 5 L eins og heklaðar
loftlykkjur í næstu lykkju en haldið
henni á prjóninum, prj síðan lykkj-
una og bregðið uppfitjuðu lykkjunum
yfir) prj brugðið til baka. Þá silfur-
rönd 2 umf og 20 umf Ijósast grátt.
Þar eru götin hvert uppaf öðru, sjötta
hver lykkja og tvær umferðir á milli
og mynda þannig gatarendur. Haldið
svona áfram eftir smekk og tilfinn-
ingu, misjafnlega breiðar rendur með
gata og hnútamunstri á víxl og rend-
48
urnar afmarkaðar ýmist með silfur-
garni eða angóra og stundum með
sauðsvörtum görðum.
Efni: Hvítt, ljósgrátt, milligrátt,
dökkgrátt og sauðsvart eingirni.
Hnota af silfurgarni, svolítið hvítt an-
gora- eða mohairgarn (má sleppa).
Prjónar nr 3. Hringprjónn og erma-
prjónn.
Þensla: 20 L x 20 umf = 7x7 cm.
Framstykki: Prjónið fram og aftur á
hringprjóninn, slétt á réttu, brugðið á
röngu. Aukið út á endum hvers slétts
prjóns þangað til 140 L eru á prjón-
inum. Prjónið þá 2 saman í byrjun og
á enda annarshvers prjóns þar til 3 L
eru eftir.
Bak prjónað eins.
Aður en stykkin eru saumuð saman
eru teknar upp 88 L að neðan á
hvoru stykki og prjónaður strengur 5
cm, 1 sl, 1 br. Fellt af, ekki of fast.
Teknar upp 100 L á hvoru stykki fyr-
ir sig að ofan og prjónaðar 6-8 umf,
1 sl, 1 br.
Ermar: Prjónaðar í hring nema stúk-
urnar. Fitjið upp 60 L og prj 1 sl 1
br 5 cm. Prjónið nú slétt á erma-
hringprjón og aukið strax í fyrstu umf
uppí 100 L. Þá er fyrsti munsturbekk-
ur prjónaður sem er hvítur með hnút-
aröð í miðju, síðan silfur, þá gata-
rendur í ljósasta gráu, o. s. frv. End-
að á breiðri hvítri hnútarönd. Fellt af
þegar ermin er 42 cm. Hliðar á boln-
um saumaðar saman og gert ráð fyrir
jafnbreiðu opi og ermarnar eru.
Saumað saman á öxlunum þannig að
gott op sé fyrir hálsmáli; ermarnar
saumaðar í og peysn pressuð léttilega
á röngunni. A. S.