Hugur og hönd - 01.06.1993, Page 20
Engar sagnir eru til sem greina frá upphafi flókagerðar, en víst
er að það hefur verið fyrir árþúsundum. í grárri forneskju hafa
menn byrjað að nota skinn og húðir veiðidýra til fatnaðar og í
skýli sín og ef til vill ull eða dýrahár í undirbreiðslur og til skjóls.
Elstu skriflegar frásagnir um flókateppi er að finna í kínverskum
ritum frá því um 230 f.Kr. Þar er sagt frá því að hermenn noti
flókaklæði og jafnvel flókaskildi til varnar í orrustum. Til eru, frá
þessum tíma, skrifaðar pantanir á stórum flókateppum. Þau
voru þá þegar orðin mikilsverð verslunarvara og fjölbreytt
flókagerð orðin alþekkt og almenn í Austur- og Mið-Asíu. Þessi
verktækni barst snemma vestur á bóginn, til landanna við
austanvert Miðjarðarhaf, síðan til Grikkja og Rómverja og þaðan
til annarra Evrópuþjóða.
Þó flókafatnaður væri aðallega notaður af almúgafólki má
finna sagnir um notkun hans hjá keisurum, hershöfðingjum og
3.
20
Ullin bleytt og bald.
5.
Teppið tilbúið.
HUGUR OG HÖND