Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 29

Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 29
steinasöfnunina og leit að hug- myndum um hvernig nota mætti þá í listaverk. Víða má finna fallega steina. Ágúst segist alltaf hafa gætt þess að fá leyfi hjá viðkomandi land- eigendum ef hann leitaði að steinum í byggð. Hann nefnir nokkra staði, en líklega hafi hann fundið sérkennilegustu steinana í grjótinu sem var sprengt úr Múlagöngunum. Ágúst hafði auðvitað oft séð hve fagrir steinar geta verið þeg- ar þeir eru brotnir, jafnvel steinar sem allajafna vekja enga athygli geta verið heill heimur fagurra lita og forma sem koma í ljós ef steinninn er klofinn. Hann kom sér upp tækjum til að saga steina í sundur og til að slípa þá. Ágúst náði fljótt mikilli tækni við að saga steina niður í örþunnar flögur, allt frá 1/2 mm - 2 mm á þykkt, þær voru svo þunnar að það mátti lýsa í gegn- um þær og skoða í venjulegri litskyggnuvél. Þannig gat hann lyft huliðshjálmi þessarar ótrú- legu fegurðar og leyft okkur að sjá inn í veröld sem okkur flest- um, ef ekki öllum, var áður hul- in. Ágúst hófst nú handa við að mynda steinþynnurnar á lit- skyggnur. Ýmsir sáu myndirnar, Ágúst var beðinn að sýna þær á fundum og ýmsum samkomum. Eitt sinn sýndi hann þær á kvöldvöku í Hveragerði. Þar var LitbrigSi íslenskra steina eru ótrúleg. Sú hugmynd vaknaði hjá Ágústi að þessar undramyndir gætu verið kjörinn sköpunarvaki fyrir ljóðskáld og tónskáld. Hann þekkti ljóð Kristjáns frá Djúpalæk og mörg þeirra höfðuðu sterkt til hans. Ekki þekkti hann skáldið persónulega og kom sér ekki að því að tala um þennan áhuga sinn við það. Sonur Ágústs, Jón Geir, vissi um þessa hugmynd föður síns. Hann fór dag einn með nokkrar litskyggnur á fund skáldsins, sýndi honum þær og sagði frá hugmynd föður síns. Þegar Kristján frá Djúpalæk fékk að sjá inn í þá undraveröld Jón Kaldal ljósmyndari. Hann tilurð þeirra. Fékk hann eina hreifst mjög af myndunum og skyggnu lánaða og lét stækka fékk upplýsingar hjá Ágústi um hana á pappír. Hann hvatti Ágúst mjög til að taka fleiri myndir og yfirfæra þær á pappír. HUGUR OG HOND 29

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.