Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 42

Hugur og hönd - 01.06.1993, Síða 42
borgarinnar og einnig hefur hann náð sér í rekavið í fjörunum við Grindavík, þar má stundum finna gott efni. Aðallega rennir Bjarni úr birki, fyrst beinist verkið að því að ná fullkomlega fram því formi sem hann hefur hugsað sér og teikn- að, síðan tekur slípunin við, og að lokum vaxber hann munina og slípar þar til hann er fullkomlega ánægður með árangurinn. Vax- meðferðin er vandasöm og sein- leg, með því að reyna ýmsar vaxgerðir og önnur efni sem Bjarni blandar saman við vaxið hefur hann nú loks fundið sam- setningu eða uppskrift sem hann er fullkomlega sáttur við, en eðli- lega er uppskriftin enn atvinnu- leyndarmál. Allt þetta tekur sinn tíma, hvern verkþátt þarf að vanda vel til þess að heildarár- angurinn verði góður. Munir þeir sem Bjarni rennir bera með sér ákveðin sérkenni, bæði hvað varðar form og áferð, hann er stöðugt að reyna fyrir sér með ný form og nýja hluti. Þegar hann hefur rennt úr birki hefur hann gjarnan látið börkinn vera ósnertan á hluta munanna, þá sést upprunalegt form og litur viðarins sem gripurinn er smíð- aður úr og þá koma líka vel fram andstæður í áferð þar sem stærsti hlutinn af yfirborði gripsins er fullkomlega sléttur og silkimjúkur en þar má líka finna hrjúft yfir- borð barkarins. Skálar sem Bjarni rennir úr rekaviði eru athyglis- verð tilraun til að tefla saman andstæðum í formi og áferð. Litur rekaviðarins getur stundum verið dálítið sérstæður og svo geta göng trjámaðksins gefið munum úr rekaviði sérkennilegt og ein- stakt yfirbragð. Framtak Bjarna ætti að vera þeim hvatning sem skapa fagra listmuni, það er hægt að hasla sér völl og vinna markað ef munirnir eru nægilega vandaðir, hönnunin listræn og allur frágangur í besta lagi. Þórir Sigurðsson Ljósmyndir: Bjarni Þórðarson. 42 HUGUROG HOND

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.