Hugur og hönd - 01.06.1997, Page 35
Þrjár ástæður til að yfirvega
list(ir)
1. Þríþætt gildi listar:
a. Ytra gildi/þjóðfélagslegt gildi
b. Innra gildi/sjálfstætt gildi
(huglægni / hlutlægni)
c. Persónulegt gildi (ónauðsyn-
leg afþreying/lífsnauðsyn)
2. Sérhvert þessara þriggja
gilda er umdeilanlegt og býður
heint sérstakri gagnrýninni
rökræðu:
a. Rökræðan um þjóðfélagslegt
gildi listar snýst um tilkostn-
að/ávinning af list (hagnýtt
gildi)
b. Rökræðan um innra gildi list-
ar snýst um það hvort list sé
huglæg/hlutlæg (sannleiks-
gildi)
c. Rökræðan um persónulegt
gildi / lífsgildi lista snýst um
það hvort list sé ónauðsynleg
afþreying/lífsnauðsyn (lífs-
gildi)
3. Af þessari þrískiptingu má
sjá að rökræðan um listina
verður að fara fram í tveimur
stigum:
a. Fyrst verður að gera sér grein
fyrir því að þessi þrjú svið
rökræðunnar eru í eðli sínu
ólík. Til sanns vegar má færa
að drjúgur hluti þeirrar ó-
reiðu sem einkennir orðræð-
una um listina skapist af því
að þessum þáttum er ekki
haldið nægilega vel aðgreind-
um í upphafi. Slík aðgreining
er nauðsynleg forsenda fyrir
því að skapa skynsamlegan
grundvöll fyrir rökræðuna
um listina. Að öðrum kosti
hangir hún í lausu lofti, eins
og glöggt kemur fram í því al-
genga viðhorfi að „um list
verði ekki rætt af viti". Til að
leið rökræðuna til lykta á
þessum ólíku sviðum verðum
við að beita ólíkum mæli-
kvörðum:
• Rökræðan um þjóðfélagslegt
gildi listar er hagnýt og mæli-
kvarði hennar því árangur
eða árangursleysi fram-
kvæmda og athafna
• Rökræðan um innra gildi list-
arinnar er fræðileg og mæli-
kvarði hennar því sannleiks-
gildi setninga
• Rökræðan um persónulegt
gildi listarinnar er tilfinninga-
leg og mælikvarði hennar því
vellíðan eða vanlíðan einstak-
lingsins
b.Síðan má spyrja hvort þessi
þrjú svið rökræðunnar séu
ekki aðeins ólík, heldur jafn-
framt ósambærileg, eða hvort
þau eigi sér sameiginlega rót
og í hverju hún væri fólgin,
þ.e. hvort lögmætt sé að tala
um „list(ina)" í eintölu. En
það er önnur saga, sem ekki
verður sögð hér.
Páll Skúlason
Lesendur!
Hafið þið athugað að með því að gerast félagar í
Heimilisiðnaðarfélagi Islands fáið þið:
10% afslátt í versluninni íslenskum Heimilisiðnaði
10% afslátt af námskeiðsgjöldum í
Heimilisiðnaðarskólanum
Ársrit Hug og hönd innifalið í árgjaldinu
Fréttabréf félagsins og fréttabréf Handverks -
reynsluverkefnis með upplýsingum um allt
sem er á döfinni varðandi málefni handverks-
fólks, um sýningar, kynningar o.fl.
Tekið er á móti skráningum á skrifstofu
Heimilisiðnaðarfélagsins, í síma 551 5500 eða 551 7800.
Einnig er hægt að gerast áskrifandi að Hug og hönd.
Nýir áskrifendur og félagar fá þrjú eldri blöð af
Hug og hönd í kaupbæti.
Hugur og hönd 1997 35