Fréttablaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Daginn sem Trump lokaði
landamærum Bandaríkjanna
tók ég á móti 129 afbókunum,
þær komu alls staðar að úr
heiminum.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóakims Tryggva
Andréssonar
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fossheima
fyrir kærleiksríka umönnun.
Sigríður A. Jónsdóttir
Andrés Yngvi Jóakimsson Kristbjörg S. Richter
Auðunn Ingi Jóakimsson Hekla Sørensen
Birkir Hrafn Jóakimsson Jóhanna V. Ingvarsdóttir
Víðir Örn Jóakimsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Ingimundarson
Þorsteinsgötu 17,
Borgarnesi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu
Brákarhlíð í Borgarnesi 6. mars.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu mun útförin fara fram í
kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Brákarhlíð.
Margrét Guðmundardóttir Jóhannes Ellertsson
Pálmi Guðmundsson Elín Magnúsdóttir
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Emilía Viggósdóttir
tannsmiður,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
laugardaginn 14. mars. Í ljósi hinna
óvenjulegu aðstæðna í samfélaginu um
þessar mundir mun útför fara fram í kyrrþey.
Minningarathöfn verður haldin síðar og verður
auglýst þegar þar að kemur.
Gunnar Valdimarsson
Viggó Valdimarsson
Hörður Valdimarsson Þórunn Gunnarsdóttir
Haukur Valdimarsson Linda Björk Elíasdóttir
Margrét Valdimarsdóttir Niels Kalhave
Lene A. Valdimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Leó Kristjánsson
vísindamaður emeritus,
lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi
föstudaginn 13. mars. Í ljósi hinna
óvenjulegu aðstæðna í samfélaginu
um þessar mundir mun útför fara fram í kyrrþey.
Minningarathöfn verður haldin síðar og verður auglýst
þegar þar að kemur.
Elín Ólafsdóttir
Kristján Leósson Margrét Leósdóttir
Hildigunnur Sverrisdóttir Kristján Bragason
Nanna Kristjánsdóttir Elín Kristjánsdóttir
Tómas Leó Kristjánsson María Ósk Kristjánsdóttir
Kristján Nói Kristjánsson
Okkar ástkæri
Birgir Bjarnason
Aðalstræti 20,
Bolungarvík,
áður bóndi á Miðdal,
lést á hjúkrunarheimilinu Bergi
í Bolungarvík 12. mars.
Jarðsungið verður frá Hólskirkju, Bolungarvík,
laugardaginn 21. mars klukkan 14.00. Vegna sérstakra
aðstæðna þarf að takmarka fjölda í kirkju. Útförinni verður
útvarpað í bíla fyrir utan kirkju sem og yfir Bolungarvík.
Jónína Birgisdóttir
Lárus Guðmundur Birgisson Hugrún Alda Kristmundsdóttir
Guðný Eva Birgisdóttir Elías Þór Elíasson
barnabörn, makar og barnabarnabörn.
Elsku faðir minn, stjúpfaðir
og frændi okkar,
Magnús Guðmundsson
blómaskreytir og nuddari,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi föstudaginn 6. mars 2020.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 20. mars kl. 13.00.
Guðmundur Ás Magnússon
Eva Kristín Arndal
Stefanía M. Arndal
Guðbjörg Arndal
Jóhann Róbert Arnarsson
Elva Dögg Gunnarsdóttir og
Sigríður Helga Þorsteinsdóttir
Elsku pabbi minn,
bróðir okkar og mágur,
Guðmundur S. Ingimarsson
Tunguheiði 6,
Kópavogi,
andaðist á líknardeildinni í Kópavogi,
þriðjudaginn 10. mars. Sökum aðstæðna
fer útförin fram í kyrrþey en minningarathöfn verður
auglýst síðar.
Alexander Már Guðmundsson
Guðrún Kristinsdóttir Helgi Stefánsson
Alexander Ingimarsson Edda Ástvaldsdóttir
Birna Rúna Ingimarsdóttir Friðþjófur Th. Ruiz
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Pálsson
málari, veiðimaður,
fluguhnýtari og náttúruvinur,
lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
mánudaginn 16. mars sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Hallur Ægir
Páll Daníel og Linda
Edda Huld
Eggert og Ásta Björk
barnabörn og barnabarnabörn. Hér hefur næturgestum fækkað mjög mikið á síðustu sólarhringum og af bókanir streyma inn fyrir mars, apríl og maí,“ segir Þorbjörg
Arnórsdóttir á Hala í Suðursveit. „Allt
hefur þetta gerst mjög hratt og staðan
er orðin gerbreytt bara frá því fyrir viku
síðan. Daginn sem Trump lokaði landa-
mærum Bandaríkjanna tók ég á móti
129 af bókunum, þær komu alls staðar
að úr heiminum.“
Þorbjörg rekur gistingu á Hala
með fjölskyldu sinni, auk Þórbergs-
seturs, þar sem föst sögusýning er og
veitingasala. Fram að þessu segir hún
hópa hafa komið reglubundið í mat á
Þórbergssetri í hádeginu en býst við að
hlé verði á því nú í einhverja mánuði.
Líklega verði þó setrið opið áfram yfir
daginn, þannig að hægt sé að skoða
sýninguna þar og þá verði kaffið á könn-
unni.
Þrettán starfsmenn vinna við ferða-
þjónustuna á Hala, auk heimafólks,
að sögn Þorbjargar. Meirihluta starfs-
liðsins segir hún fastráðinn, eða átta
manns, en fimm starfsmenn lausráðna.
Sumir þeirra hafi ætlað að hætta í vor
og kannski fari þeir eitthvað fyrr en
áætlað hafi verið, fyrst ástandið sé eins
og raun ber vitni. „Við viljum í sjálfu
sér ekki senda neinn í burtu enda er
þetta fólk sunnan úr Evrópu og á ekk-
ert auðvelt með að komast heim til sín á
þessum tímum, bæði er Covid-19 gras-
serandi þar og landamærum hefur víða
verið lokað. Fólkinu finnst það eiginlega
öruggast hér, eins og staðan er núna og
ég skil það vel.“
Þorbjörg hugsar í lausnum og í stað
þess að setjast niður og leggja kapal
ætlar hún að nota rólega tímann til upp-
byggingar fyrir f leiri. „Ég hef ákveðið að
setja upp íslenskunám fyrir útlending-
ana sem starfa á Hala. Mig hefur lengi
dreymt um það en hef bara ekki gefið
mér tíma til þess fyrr. Nú er lag,“ segir
Þorbjörg, sem er kennaramenntuð og
var skólastjóri árum saman í Suðursveit,
áður en skólahald þar var lagt niður. „Ég
er búin að setja mig í samband við Mála-
skólann Mími, og á von á kennsluefni frá
honum sem hentar okkur.“
gun@frettabladid.is
Ætlar að kenna erlendu
starfsfólki íslensku á Hala
Ferðamenn hafa farið óhindrað um landið síðustu vikurnar, að vanda, en nú fækkar
þeim ört sem sækja Ísland heim. Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala í Suðursveit horfir
fram á rólegheit í ferðaþjónustu næstu mánuði. Þá kemur kennarinn upp í henni.
„Fólkinu finnst það eiginlega öruggast hér eins og staðan er núna,“ segir Þorbjörg.
1 8 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT