Fréttablaðið - 18.03.2020, Blaðsíða 34
Tilkostnaðurinn
af því að gera
aðeins of mikið verður
alltaf minni en tjónið af
því að gera of lítið.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra.
17.03.2020
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 18. mars 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Helgi Vífill
Júlíusson
SKOÐUN
PwC | Bókhald & laun | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar
Með nýjum rafrænum lausnum sjáum við um bókhald þitt á
einfaldan og öruggan hátt meðan þú sinnir rekstrinum og hefur
góða yfirsýn yfir stöðuna.
Taktu skrefið inn í framtíðina með okkur, útvistaðu bókhaldinu
og njóttu þess að hafa meiri tíma fyrir þig.
Sjá nánar á www.pwc.is/bokhald
Enginn
tími fyrir
bókhaldið?
Bókhald & laun
Kórónaveiran mun veita fyrirtækjum þungt högg. Allmörg verða gjaldþrota.
Það er óhjákvæmilegt þegar þau
verða nánast tekjulaus í ein-
hvern tíma.
Hve mörg munu falla mun
ráðast af björgunaraðgerðum
stjórnvalda og hve löng kreppan
verður. Hópur fyrirtækja í ferða-
þjónustu mátti ekki við frekari
áföllum enda sum hver enn að
sleikja sárin eftir að ferðamönn-
um fór að fækka eftir gjaldþrot
WOW air.
Við fordæmalausar aðstæður
er mikilvægt að skilja eðli efna-
hagsvandans. Hafa ber í huga að
hann er mun nær því að minna
á efnahagsáfallið sem skapaðist
í kjölfar hryðjuverka al-Kaída
hinn 11. september árið 2001
á hendur Bandaríkjunum en
bankahrunið 2008.
Eftir að hryðjuverkamenn
rændu fjórum f lugvélum og
tvær skullu á Tvíburaturnunum
í New York óttuðust margir
að Osama Bin Laden myndi
leika sama leik innan tíðar. Það
myndi því stefna lífi fólks í voða
að ferðast og því sat það heima
hjá sér. Tekjur fyrirtækja í ferða-
þjónustu hrundu samstundis.
Vandinn árið 2008 var
kerfislægur skuldavandi á
Vesturlöndum. Ekkert slíkt er
til umræðu nú. Bankar, bæði
hér og víða erlendis, eru vel
fjármagnaðir, ólíkt því sem var
fyrir tólf árum. Fyrir hrun voru
íslensku bankarnir allt of stórir
miðað við hagkerfið og skuldum
hlaðnir í ofanálag.
Skuldsetning hér á landi er
sömuleiðis nú mun minni en
í aðdraganda bankahrunsins.
Auk þess búum við að digrum
gjaldeyrisvaraforða en hann var
rýr við bankahrunið. Staðan
er því allt önnur og betri til að
mæta áföllum.
Þegar sést til sólar eftir ein-
hverja mánuði í ferðaþjónustu
munu há laun í alþjóðlegum
samanburði verða þeim fjötur
um fót. Það er erfitt að ímynda
sér að bróðurpartur þeirra geti
staðið undir þeim hækkunum
sem samið var um í lífskjara-
samningum. Aðstæður eru
enda allt aðrar nú en reiknað
var með þegar samið var. Það er
nauðsynlegt að bíða með þær
launahækkanir sem eru handan
við hornið til að verja störf og
atvinnulífið.
Áskoranir sem þessar minna
á að hagsmunir landsmanna og
atvinnulífsins er f léttað saman.
Fyrirtæki veita fólki atvinnu og
þau greiða skatta til að standa
undir velferðarkerfinu. Það á
því ekki að líta atvinnulífið sem
andstæðing heldur samherja
sem þarf gefa svigrúm til að fóta
sig, oft við erfiðar aðstæður.
11. september
en ekki 2008
Flugfélagið Cabo Verde Airlines á Græn-höfðaeyjum, sem er að hluta til í eigu Icelandair Group, hefur ákveðið að
fella niður allar ferðir í að minnsta kosti 30
daga frá og með deginum í dag.
Ákvörðunin var tekin vegna ferðabanna
sem ríkisstjórnir víða heim heim hafa sett á
síðustu dögum vegna kórónafaraldursins, þar
meðal ríkisstjórn Grænhöfðaeyja.
Loftleiðir Cabo Verde, sem er í eigu Loftleiða
Icelandic, Björgólfs Jóhannssonar, fyrrverandi
forstjóra Icelandair Group, og Kjálka-
ness, systurfélags útgerðarinnar
Gjögurs, keyptu í febrúar í fyrra 51
prósents hlut í Cabo Verde Airlines.
Ríkisstjórn eyjaklasans hélt eftir 49
prósenta eignarhlut.
Cabo Verde Airlines tapaði liðlega
21 milljón dala í fyrra en flugfélagið
leitar nú langtímafjármögnunar.
Erlendur Svavarsson var ráðinn for-
stjóri í byrjun febrúar. -þfh
Fella niður öll flug frá eyjaklasanum
Erlendur
Svavarsson