Gríma - 15.03.1931, Side 5

Gríma - 15.03.1931, Side 5
Þáttur af Árna Jónssyni. (Eftir handriti Hannesar Jónssonar í Hleiðargarði, eftir munnmælum í Eyjafirði). 1. Viðurelzn Árna oz Rafns. Árni hét maður og var Jónsson. Hann bjó á Æsu- stöðum í Eyjafirði á fyrri hluta 19. aldar. Að afli og atgervi var hann talinn einn af tólf jafningjum, er þá áttu að vera uppi í Eyjafirði. Á yngri árum var hann oft í suðurferðum, er þá voru tíðar af Norðurlandi. Kom það sér þá oft vel, bæði honum sjálfum og félögum hans, að hann hafði krafta í kögglum, því að einatt sló í illdeilur á ferðum þess- um. — ólafur hét maður og bjó á Möðruvöllum í Eyjafirði. Átti hann sökótt við ýmsa Skagfirðinga og þó mest við mann þann, er Rafn hét. Var Rafn þessi burðamaður hinn mesti, svo að fáir þorðu við hann að fást. Upp frá því þorði ólafur ekki annað en að hafa Árna á Æsustöðum í för með sér, þegar hann fór suður til skreiðarkaupa, því að jafnan bjóst hann við því að hitta Rafn og hina aðra söku-

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.