Gríma - 15.03.1931, Side 26

Gríma - 15.03.1931, Side 26
24 GEITABRÚ inn, en fundu ekki, sem von var, og hurfu heim við það. Jón hafðist við í eynni og undi sér þar furðanlega vel, þótt vistin væri dauf. Þegar frost voru, lagði jafnan ísspöng yfir að eynni; gat þá bróðir hans komið til hans til viðtals og fært honum vistir og aðrar nauðsynjar, en oft liðu svo langir tímar, að þeir gátu ekki hitzt. Ekki vita menn, hve lengi Jón dvaldi í eynni, en margir segja, að það hafi skift mörgum árum. Svo var það eina nótt að vetrarlagi, að Rauðárbóndann dreymdi að Jón kæmi til hans; var hann daufur í bragði og mælti fram erindi þessi: 3>Góð var hún Geitabrú, — Guð veit eg þarf ei nú að lengur þreytir þú með þolinmæði og trú, bróðir, að bjarga mér, burtvikinn því eg er þangað, sem þraut ei sér, þakka slíkt guði ber. Beinin mín bið eg þó byrgir í klettaþró; sef eg þá sætt með ró, sorgin mér dauða bjó. Hlakkar nú hrafn á klett’, honum finnst orðið létt matar síns neyta nett, að ná mínum hefur sett. — Góð var hún Geitabrú; gagnlegri verður sú, er þegnar Þórs á frú þar setja, mín er trú.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.