Gríma - 15.03.1931, Side 40

Gríma - 15.03.1931, Side 40
38 FRÁ BIRNINGI, GEIRM, HLAÐG. OG STÍGANDA yrði eftir hjá sér til vorsins«. Hlógu þau við orðum Birnings, en Hlaðgerður svaraði, án þess að roðna: »Rétt er til getið«. Nokkrum dögum síðar lögðu þeir af stað félagar, Stígandi og Birningur; voru þeir ágætlega útbúnir að nesti og skjólfötum. Höfðu þeir langa útivist og erfiða, áður en þeir næðu byggðum, en komust loks heilu og höldnu heim til karls og kerlingar, foreldra Birnings. Var þeim vel fagnað og þóttu þeir hafa mikla tíðindasögu að segja. Fóru þeir til sýslumanns og tjáðu honum allt, sem farið hafði. Varð hann uppi til handa og fóta, þegar hann heyrði sögu þeirra, sérstaklega af því að það kom upp úr dúrn- um, að Stígandi væri systursonur hans. En þeim kom saman um, að allt yrði kyrrt að liggja til vors- ins, er snjóa leysti. — Dvaldi Stígandi oftast með Birningi það sem eftir var vetrar og urðu þeir alúð- arvinir. Leið eigi á löngu, að hann og Þórleif bónda- dóttir felldu hugi saman og meinaði það enginn. Leið svo fram á vordaga. Þegar snjóar voru leystir og fært yfir fjöll, lagði sýslumaður af stað með marga menn til dalsins. Voru þau Hlaðgerður og Geirmundur þar fyrir í góðu gengi og fögnuðu byggðarmönnum hið bezta. Lét sýslumaður menn sína síga niður í gjána til úti- legumannanna; voru þeir í góðum holdum eftir vet- urinn, því að ekki hafði Geirmundur dregið mat við þá, en svo voru þeir dasaðir orðnir í prísundinni, að þeir gátu litla mótstöðu veitt. Voru þeir dregnir upp og bundnir ramlega. — Síðan var allt fémætt bundið í klyfjar, sauðfé öllu hóað saman og öll bú- slóð útilegumannanna, ásamt sjálfum þeim, flutt til byggða. Voru útilegumennirnir þegar dæmdir í hér-

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.