Gríma - 15.03.1931, Side 41
FRÁ BIRNINGI, GEIRM., HLAÐG. OG STÍGANDA 39
aði og teknir af lífi, en máli þeirra systkina skotið
til alþingis. Fyrir tilstilli sýslumanns voru þau þar
dæmd sýkn og frjáls, þar sem þau höfðu nauðug
dvalið með útilegumönnunum og ekki tekið neinn
þátt í illverkum þeirra. Með fé útilegumannanna var
þannig farið, að þýfi var skilað og rán rétt, svo sem
til náðist, sumt féll undir konung, en nokkru voru
þau systkin látin halda, svo sem til bóta fyrir yfir-
gang útilegumannanna við þau.
Síðla sumars riðu systkinin suður um land til að
finna foreldra sína. Var þeim þar fagnað svo sem
heimtum úr trölla höndum. Um haustið hurfu þau
aftur og voru þá haldin brúðkaup þeirra Hlaðgerðar
og Geirmundar, Þórleifar og Stíganda. Fóru þau að
búa vorið eftir á góðum jörðum þar í sveit, en Birn-
ingur tók við föðurleifð sinni og kvæntist skömmu
síðar dóttur sýslumannsins.
Sumir segja, að Geirmundur og Stígandi hafi
nokkrum árum síðar flutzt búferlum í dal útilegu-
mannanna, vegna hinna ágætu landkosta, er þar
voru; hafi þeir búið þar til elli og farnast vel. Skal
látið ósagt, hvort sögusögn þessi muni vera sönn eða
ekki, en hafi þeir búið þar, þá er byggð sú löngu
komin í eyði vegna eldgosa eða annara orsaka.