Gríma - 15.03.1931, Side 62

Gríma - 15.03.1931, Side 62
60 SKELKUSSABREIÐAN inn, sem er uppi í Saurbæjarhaga. Hefur löngum þótt reimt í kringum hólinn og málmlogar hafa sézt þar á nóttum, jafnvel til skamms tíma. Séra Einar Thorlacius var prestur í Saurbæ 1822 —66. Hjá honum var vinnumaður skagfirzkur, er Ásgrímur hét. Svo bar við eitt sinn, að Ásgrímur gekk hjá hólnum að kvöldlagi og sá hann þá stóra skelkussabreiðu á hólnum. Hélt hann að börn af næstu bæjum hefðu borið kussana þangað sér til gamans og hirti ekki um. Samt greip hann tvo kussa, um leið og hann gekk hjá breiðunni, og stakk þeim í vasa sinn. Þegar hann kom heim í Saurbæ, ætlaði hann að taka upp kussana, en þeir voru þá horfnir og í vasa hans voru tveir gamlir peningar. Þóttist hann nú vita, að draugurinn, sem peningana átti, hefði verið að leika sér að þeim, þegar hann bar þar að; hefði draugurinn ekki haft tóm til að koma þeim undan, en breytt þeim í skelkussa til þess að villa honum sýn. Brá Ásgrímur þegar við og skund- aði aftur til hólsins, ef ske kynni að breiðan væri þar enn. En þá var allt horfið og sá hann aldrei neitt þvílíkt framar. — Hallgrímur heitinn Kráks- son, póstur, átti heima í Saurbæ, þegar hann var unglingur. Sagði hann að séra Einar hefði fengið peninga þessa hjá Ásgrími. Höfðu það verið æva- gamlar krónur, stærri en spesíur.

x

Gríma

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.