Gríma - 15.03.1931, Page 19
SKYGGNI SÉRA JÓNS Á ÁLFTAMÝRI 17
var hann nokkur ár prestur að Rafnseyri við Arn-
arfjörð. Þá bar svo við einn sunnudagsmorgun, að
hann reið til Álftamýrar, og ætlaði að messa þar um
daginn. Þórður hét vinnumaður hans og var hann
við sjóróðra. Þenna morgun kom Þórður úr róðri;
mættust þeir prestur og hann á förnum vegi og töl-
uðust við. Var Þórður hinn kátasti, því að hann
hafði aflað vel. Skildu þeir síðan; hélt Þórður áfram
heimleiðis, en prestur reið til kirkjunnar og mess-
aði eins og til stóð. Lagði hann síðan af stað heim
og slóst í för með honum bóndi, er Bjarni hét, frá
Tjaldanesi; lézt hann vera fjölkunnugur og gumaði
mikið af kunnáttu sinni. Héldu þeir áfram ferð
sinni, unz þeir komu að stórum steini skammt frá
Tjaldanesi; lá gatan ofan við steininn. Þá nam
prestur staðar og sagði: »Sérðu Bjarni, hver er ofan
við steininn?« Bjarni neitaði því og kvað þar engan
vera. Þá mælti prestur: »Þér ferst ekki að láta mik-
ið af kunnáttu þinni, úr því að þú sérð ekki að þar
stendur Þórður vinnumaður minn, og er hann nú
dauður. Skulum við ríða neðan við steininn og ekki
verða fyrir honum«. Gerðu þeir svo. — Reyndist
þetta rétt, sem prestur sagði, að Þórður var látinn;
hafði hann orðið bráðkvaddur þá um daginn á
Rafnseyrartúni; en engar fregnir höfðu presti bor-
izt um lát hans.
(í »lslenzkar sögur og sagnir«, sem Þorsteinn Erlingsson
safnaði, og komu út sem fylgirit »Ingólfs«, 1906, eru all-
margar sagnir um séra Jón Ásgeirsson).
Srlma IV.
2