Gríma - 15.03.1931, Síða 39

Gríma - 15.03.1931, Síða 39
FRÁ BIRNINGI, GEIRM., HLAÐG. OG STÍGANDA 37 þá heldur hlegið, svo að það var ekki að furða, þótt hlátrar ómuðu öðru hvoru um hellinn, en þess á milli heyrðist daufur ómur af blótsyrðum og ragni útilegumannanna í gjánni. Snemma morguns hljóp Hlaðgerður að sauðahell- inum til þess að segja Stíganda bróður sínum og Birningi frá því, hvernig komið væri, en Geirmund- ur gætti hellisins á meðan. Þótti Stíganda tíðindi þessi gleðileg og skunduðu þau öll til Geirmundar. Bjuggu þau nú sem bezt um sig og könnuðu hellinn. Fundu þau þar allmikið fé í skinnum, ull og ýmsum matvælum, en auk þess var þar talsvert af pening- um og ýmsum dýrum munum, sem útilegumennirnir höfðu stolið og rænt víðsvegar um land. Síðan opn- uðu þau gjáropið og létu síga niður talsvert af vist- um til þess að útilegumennirnir hefðu einhvers að neyta í prísundinni. Kölluðu þau niður til þeirra og óskuðu þeim góðrar saðningar, þar til yfirvöldin kæmu og sæktu þá. Svöruðu þeir bræður með vænni dembu af fúkyrðum og blóti. — Sátu þau nú þarna í góðum fagnaði og undu hag sínum hið bezta. Sett- ust þau á ráðstefnu um kvöldið og ræddust um, hvað þau skyldu til bragðs taka. Kom þeim saman um að ekki mundu vera tiltök á að flytja neitt burtu úr dalnum, kvikfé eða muni, fyrr en voraði, en vildu þó fegin koma boðum til byggða, svo að menn óttuðust ekki um líf þeirra. Varð síðan umtal þeirra á milli um það, hverjir skyldu halda af stað til byggða. Þá mælti Birningur: »Það er mitt ráð, að við Stígandi förum til byggða, þegar veður og færi gefst; Hlað- gerður getur hvort sem er ekki farið svo langa og örðuga leið í ófærð og frostum, en hinsvegar hef eg grun um, að hún mundi helzt kjósa, að Geirmundur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Gríma

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gríma
https://timarit.is/publication/1422

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.