Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017 Hönnunarteymið Terta Duo á Selfossi hefur vakið athygli fyrir að nýta sér eyrnamörk úr íslenskri sauðfjárrækt sem hráefni í listmunasköpun. Hönnuðirnir María Marko og Þórunn Vilmarsdóttir skipa þetta hönnunarteymi. Segir María að Eyrnamarkaveggspjöldin þeirra hafi vakið mikla lukku. „Við höfum líka verið að nýta eyrnamörkin á ýmislegt fleira og þróuðum munstrið aðeins lengra til að nýta á púðaver. Þá höfum við líka verið með eyrnamörkin á dagatölum. Þetta hefur verið pantað úti um allt land. Þá er líka skemmtilegt að heyra frá útlendingum ágiskanir um hvað þarna sé um að ræða. Sumir hafa talið að þetta sýndi einhvers konar steinamyndanir eða jafnvel gömul höfðingjaspjót. Þá eru líka til margir Íslendingar sem þekkja þetta ekki og átta sig ekki á hvað eyrnamörkin eru.“ Rótgróinn partur af menningu okkar og sögu Fyrir þá sem ekki þekkja til eru eyrnamörk mynstur sem klippt eru í eyrun á lömbum og löghelgar mark- eigandanum eignarréttinn á sauð- fénu. Það er einmitt það skemmti- lega við Eyrnamarkaveggspjöldin að margra mati. Fyrir suma eru mörkin mjög persónuleg og fyrir aðra eru þau safn af abstrakt munstrum og hver og einn nýtur verksins á sínum forsendum. Eyrnamörkin eru rótgróinn partur af menningu okkar og sögu og eiga erindi inn á hvert heimili að mati Maríu, enda hafi sauðkindin haldið í okkur lífinu í mörg hundruð ár. Sorglega vannýtt María segir að útlit eyrnamerkjanna séu mjög skemmtileg og fjölbreytt og þeim hafi fundist þau sorglega vannýtt. „Það er í raun markvert að mörkunum hafi ekki verið hampað meira en raun ber vitni í listum og menningu til þessa enda aldagamall siður og merkileg tákn og heiti. Við höfum þó verið að þróa fleiri vörur út frá eyrnamerkjamynstrinu. Þar má nefna útikertastjaka þar sem við erum svolítið að vinna með steypu.“ Til að byrja með voru mörkin sett upp sem plakat og seinna var tekin annars konar stefna og þau þróuð í örvaodda á púðaver og dagatöl. Á næstu misserum munu koma fram fleiri vörur með mörkunum að sögn Maríu sem hvetur fólk til að fylgjast með. Rekur einnig Kastalann María hefur síðan í nóvember 2015 einnig rekið Kastalann á Selfossi sem er eiginlega afsprengi af hönnunarteyminu Terta Duo. Þar ræður hún ríkjum og segist hún bæði vera að vinna ýmis sérverkefni fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Kastalinn byrjaði sem hönnunar- stúdíó með sölumögu leikum en þegar á hólminn var komið var hann orðinn hönnunarverslun með litlu stúdíói. Nafnið var innblástur af orðunum „Heimili manns er kastalinn hans“. Í upplýsingum um Kastalann segir María að eigendurnir vilji hjálpa til við að móta heimili sem passa við eigendurna – sama hvort það er mjúk og hlý stemning eða litrík og leikglöð. Kastalinn byrjaði á því að selja einungis íslenska hönnun og er nú með vörur frá rúmlega 30 íslenskum hönnuðum. Með aukinni eftirspurn bættust við skemmtilegu tækifærisgjafirnar fá Blue-q. Þegar verslunin varð eins árs var vöruúrvalið aukið um helming með huggulegum vörum frá Danmörku og hressilega öðruvísi vörum frá Hollandi. /HKr. Terta Duo og Kastalinn á Selfossi hafa vakið athygli með áhugaverðri hönnun: Sauðfjármörk sorglega vannýtt auðlind Eyrnamarkaveggspjöldin eru af ýmsum toga. Myndir /MM María Marko og Þórunn Vilmarsdóttir. Myndir /MM Myndir /MM Þórunn með sýnishorn af hönnunarverkefnunum. Eyrnamörkin eru rótgróinn partur af menningu okkar og sögu og eiga erindi inn á hvert heimili að mati Maríu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.