Bændablaðið - 24.05.2017, Síða 26
26 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Lambakjöt verður í brennidepli í kynningarherferð Whole Food Markets á íslenskum vörum:
Bragðgæði á borð Bandaríkjamanna
Bandaríska verslunarkeðjan
Whole Foods Market hyggst hygla
íslenskum matvörum á haust-
dögum. Markaðsherferðin hefur
verið lengi á teikniborði verslun-
arkeðjunnar en hvalveiðar hafa
aftrað framkvæmd hennar.
Á dögunum voru staddir hér á landi
starfsmenn bandarísku verslunar-
keðjunnar Whole Foods Markets,
Joe Wood kjötinnkaupastjóri
og John Blair Gordon heildsali.
Verslunarkeðjan Whole Foods sér-
hæfir sig í vistvænum og lífræn-
um matvörum. Nær 450 verslanir
eru reknar í nafni Whole Foods og
er keðjan talin sú stærsta sinnar
tegundar þar í landi. Verslanirnar
Whole Foods bjóða til sölu nokkr-
ar vörur frá Íslandi, þ.á m. bleikju,
salt og sælgæti en sérvara þeirra er
íslenska lambið.
„Við höfum ákveðna sérstöðu í
íslensku vöruúrvali og við teljum
að það sé meðal þess sem skil-
ur okkur frá samkeppnisaðilum
okkar. Sérstök markaðssetning
fyrir íslenskar vörur hefur verið til
umræðu hjá okkur í mörg ár. Ég vil
að þetta verði árið sem við fram-
kvæmum hugmyndina. Markmiðið
er að gera íslenskum vörum sér-
stök skil í mánaðarlangri kynn-
ingarherferð,“ segir Joe.
Íslenskt lambakjöt er árstíðar-
bundin vara í Whole Foods Market,
og hefur verið seld í verslunum þrjá
mánuði á ári. Ef af verður, mun
markaðsherferðin líklegast eiga sér
stað í októbermánuði. „Þá myndum
við afmarka íslenskar vörur í öllum
verslunum okkar og standa fyrir
ýmsum viðburðum. Við sjáum til
dæmis fyrir okkur að íslenskir mat-
reiðslumenn kæmu og matreiddu
lamb fyrir gesti,“ segir Joe.
Hvalveiðar torveldu markaðsstarf
Þrátt fyrir að hafa selt íslenskar
vörur í áraraðir hefur verslunar-
keðjan þó ekki þorað í umfangs-
mikla kynningarherferð. Ástæðan
eru hvalveiðar, að sögn Joes. „Við
höfum verið uggandi yfir því að
hvalveiðar Íslendinga hefðu slæm
áhrif á ímynd okkar fyrirtækis.
Við gerum miklar kröfur og lofum
ákveðnum siðferðislegum og líf-
rænum gæðum. Við höfum talað
fyrir sjálfbærni og hreinleika
íslenskra vara. Við sjáum tækifæri
í að kynna eðli okkar starfsemi í
gegnum íslensku vörurnar. Á meðan
samkeppnisaðilarnir eru varkárir í
fullyrðingum erum við það ekki.
Þar af leiðandi erum við auðveld
skotmörk ef eitthvað kemur upp á.
Hvalveiðar hafa því verið vanda-
samt málefni og hefur verið talið
líklegt til að geta haft neikvæð áhrif
í för með sér.“ Nú þegar ljóst sé að
engar hvalveiðar verði stundaðar í
sumar sé líklegra að ráðist verði í
kynningarherferðina.
Stenst hæstu gæðakröfur
Íslenska lambakjötið selst upp ár
hvert hjá Whole Foods, þeir félagar
hyggja að verslanirnar hafi selt um
190 tonn á síðasta ári og ætla að
veðja á aukna sölu í ár með því að
auka innflutning í um 230 tonn.
Kjötið er selt ferskt úr kjötborði.
„Við flytjum inn alla hluta lambsins
og seljum þá úr kjötborði og er þá
skorið til á staðnum eftir óskum
neytenda,“ segir Joe.
Joe og Blair segja bragðgæði
vera ástæðu vinsælda lambsins í
Bandaríkjunum. Bragðið sé einstak-
lega milt og ljúft. Ástæða þess liggi
í aldri við slátrun og heilbrigðum
lífsferli. Þau lifi á hreinu fæði, góðu
vatni, frelsi og fjallalofti. „Þvílíkt
líf sem þau lifa. Aðeins einn slæmur
dagur,“ segir Blair.
Gríðarlegar kröfur eru gerðar
til vörutegunda hjá Whole Foods
Market. Vörur þurfa að standast
alþjóðleg gæðaviðmið en einnig
hefur keðjan þróað sína eigin
staðla, t.d. fyrir kjötafurðir sem
kallast GAP sem stendur fyrir
Global Animal Partnership. Kerfið
metur velferð dýra á meðan þau lifa
en þar er lagt upp úr bæði líkamlegu
og andlegu heilbrigði dýra.
Enn fremur starfar keðj-
an náið með Sláturhúsi KVH á
Hvammstanga, en þaðan kemur allt
það kjöt sem flutt er út til Whole
Foods-verslananna. Joe nefnir að
Sláturhúsið á Hvammstanga hafi
síðast skorað 95 stig í slíkri mæl-
ingu en 88 stig þarf til að uppfylla
hæstu gæðakröfur. /ghp
Íslenskt lambakjöt er árstíðarbund-
Foods Market í þrjá mánuði á ári.
Karlar úr Hveragerði:
Berrassaðir á svið
Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið hefur valið leikritið
„Naktir í náttúrunni“, sem leikfé-
lagið sýndi fyrir fullu húsi í vetur,
athyglisverðustu áhugaleiksýn-
ingu leikársins. Leikritið verður
sýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtu-
dagskvöldið 15. júní kl. 19.30.
„Þetta er að sjálfsögðu mik-
ill heiður og sómi sem okkur er
sýndur, okkur leikurunum og
Leikfélagi Hveragerðis. Þetta er
án efa hápunktur okkar margra
á listaferlinum enda er spennan
í algleymi. Þetta er án efa mikil
heiður, líka fyrir bæjarfélagið
okkar sem hefur stutt okkur ötul-
lega gegnum árin. Hér hefur leik-
list blómstrað í 70 ár og mörg verk
verið sýnd svo eftir hefur verið
tekið, enda Hveragerði löngum
verið menningar- og blómabær,“
segir Hjörtur Benediktsson, for-
maður Leikfélags Hveragerðis.
Naktir í náttúrunni í uppsetningu
Leikfélags Hveragerðis er leik-
gerð leikstjórans, Jóns Gunnars
Þórðarsonar, sem byggð er á The
Full Monty. /MHH
Leikarar í verkinu „Naktir í náttúrunni“. Mynd / MHH