Bændablaðið - 24.05.2017, Síða 26

Bændablaðið - 24.05.2017, Síða 26
26 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017 Lambakjöt verður í brennidepli í kynningarherferð Whole Food Markets á íslenskum vörum: Bragðgæði á borð Bandaríkjamanna Bandaríska verslunarkeðjan Whole Foods Market hyggst hygla íslenskum matvörum á haust- dögum. Markaðsherferðin hefur verið lengi á teikniborði verslun- arkeðjunnar en hvalveiðar hafa aftrað framkvæmd hennar. Á dögunum voru staddir hér á landi starfsmenn bandarísku verslunar- keðjunnar Whole Foods Markets, Joe Wood kjötinnkaupastjóri og John Blair Gordon heildsali. Verslunarkeðjan Whole Foods sér- hæfir sig í vistvænum og lífræn- um matvörum. Nær 450 verslanir eru reknar í nafni Whole Foods og er keðjan talin sú stærsta sinnar tegundar þar í landi. Verslanirnar Whole Foods bjóða til sölu nokkr- ar vörur frá Íslandi, þ.á m. bleikju, salt og sælgæti en sérvara þeirra er íslenska lambið. „Við höfum ákveðna sérstöðu í íslensku vöruúrvali og við teljum að það sé meðal þess sem skil- ur okkur frá samkeppnisaðilum okkar. Sérstök markaðssetning fyrir íslenskar vörur hefur verið til umræðu hjá okkur í mörg ár. Ég vil að þetta verði árið sem við fram- kvæmum hugmyndina. Markmiðið er að gera íslenskum vörum sér- stök skil í mánaðarlangri kynn- ingarherferð,“ segir Joe. Íslenskt lambakjöt er árstíðar- bundin vara í Whole Foods Market, og hefur verið seld í verslunum þrjá mánuði á ári. Ef af verður, mun markaðsherferðin líklegast eiga sér stað í októbermánuði. „Þá myndum við afmarka íslenskar vörur í öllum verslunum okkar og standa fyrir ýmsum viðburðum. Við sjáum til dæmis fyrir okkur að íslenskir mat- reiðslumenn kæmu og matreiddu lamb fyrir gesti,“ segir Joe. Hvalveiðar torveldu markaðsstarf Þrátt fyrir að hafa selt íslenskar vörur í áraraðir hefur verslunar- keðjan þó ekki þorað í umfangs- mikla kynningarherferð. Ástæðan eru hvalveiðar, að sögn Joes. „Við höfum verið uggandi yfir því að hvalveiðar Íslendinga hefðu slæm áhrif á ímynd okkar fyrirtækis. Við gerum miklar kröfur og lofum ákveðnum siðferðislegum og líf- rænum gæðum. Við höfum talað fyrir sjálfbærni og hreinleika íslenskra vara. Við sjáum tækifæri í að kynna eðli okkar starfsemi í gegnum íslensku vörurnar. Á meðan samkeppnisaðilarnir eru varkárir í fullyrðingum erum við það ekki. Þar af leiðandi erum við auðveld skotmörk ef eitthvað kemur upp á. Hvalveiðar hafa því verið vanda- samt málefni og hefur verið talið líklegt til að geta haft neikvæð áhrif í för með sér.“ Nú þegar ljóst sé að engar hvalveiðar verði stundaðar í sumar sé líklegra að ráðist verði í kynningarherferðina. Stenst hæstu gæðakröfur Íslenska lambakjötið selst upp ár hvert hjá Whole Foods, þeir félagar hyggja að verslanirnar hafi selt um 190 tonn á síðasta ári og ætla að veðja á aukna sölu í ár með því að auka innflutning í um 230 tonn. Kjötið er selt ferskt úr kjötborði. „Við flytjum inn alla hluta lambsins og seljum þá úr kjötborði og er þá skorið til á staðnum eftir óskum neytenda,“ segir Joe. Joe og Blair segja bragðgæði vera ástæðu vinsælda lambsins í Bandaríkjunum. Bragðið sé einstak- lega milt og ljúft. Ástæða þess liggi í aldri við slátrun og heilbrigðum lífsferli. Þau lifi á hreinu fæði, góðu vatni, frelsi og fjallalofti. „Þvílíkt líf sem þau lifa. Aðeins einn slæmur dagur,“ segir Blair. Gríðarlegar kröfur eru gerðar til vörutegunda hjá Whole Foods Market. Vörur þurfa að standast alþjóðleg gæðaviðmið en einnig hefur keðjan þróað sína eigin staðla, t.d. fyrir kjötafurðir sem kallast GAP sem stendur fyrir Global Animal Partnership. Kerfið metur velferð dýra á meðan þau lifa en þar er lagt upp úr bæði líkamlegu og andlegu heilbrigði dýra. Enn fremur starfar keðj- an náið með Sláturhúsi KVH á Hvammstanga, en þaðan kemur allt það kjöt sem flutt er út til Whole Foods-verslananna. Joe nefnir að Sláturhúsið á Hvammstanga hafi síðast skorað 95 stig í slíkri mæl- ingu en 88 stig þarf til að uppfylla hæstu gæðakröfur. /ghp Íslenskt lambakjöt er árstíðarbund- Foods Market í þrjá mánuði á ári. Karlar úr Hveragerði: Berrassaðir á svið Þjóðleikhússins Þjóðleikhúsið hefur valið leikritið „Naktir í náttúrunni“, sem leikfé- lagið sýndi fyrir fullu húsi í vetur, athyglisverðustu áhugaleiksýn- ingu leikársins. Leikritið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu fimmtu- dagskvöldið 15. júní kl. 19.30. „Þetta er að sjálfsögðu mik- ill heiður og sómi sem okkur er sýndur, okkur leikurunum og Leikfélagi Hveragerðis. Þetta er án efa hápunktur okkar margra á listaferlinum enda er spennan í algleymi. Þetta er án efa mikil heiður, líka fyrir bæjarfélagið okkar sem hefur stutt okkur ötul- lega gegnum árin. Hér hefur leik- list blómstrað í 70 ár og mörg verk verið sýnd svo eftir hefur verið tekið, enda Hveragerði löngum verið menningar- og blómabær,“ segir Hjörtur Benediktsson, for- maður Leikfélags Hveragerðis. Naktir í náttúrunni í uppsetningu Leikfélags Hveragerðis er leik- gerð leikstjórans, Jóns Gunnars Þórðarsonar, sem byggð er á The Full Monty. /MHH Leikarar í verkinu „Naktir í náttúrunni“. Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.