Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Það hefur rignt mikið í Breiðdal,
Breiðdalsáin er vatnsmikil og
það hefur verið erfitt að eiga við
bleikjuveiðina, sem átti að byrja
núna 1. maí, en það hefur stytt upp
og áin hefur minnkað verulega.
Það er það góða,“ sagði Sigurd
Oliver Staples, Súddi, sem var að
kíkja eftir bleikjunni er við hittum
hann í Breiðdal fyrir fáum dögum.
,,Já, það er búið að vera erfitt að
veiða bleikjuna í vor, mikið vatn í
ánni.“ Súddi var þá að gera sig kláran
í veiði í ósinn í Fögruhlíðará, þar sem
hann hefur oft veitt af bleikjunni.
,,Ég er á báðum áttum með lax-
veiðina í Breiðdalsána en Jöklan
verður örugglega góð í sumar. Það
veiðist vonandi eitthvað af tveggja
ára laxi samt í Breiðdalsánni, maður
er jú alltaf bjartsýnn með veiðina,“
segir Súddi.
Vatnið hefur minnkað í ánni,
veiðimenn eru að gera sig klára
næstu daga. Bleikjan er örugglega
mætt, það er bara að finna hana og fá
hana til að taka réttu fluguna.
Breytingar hafa orðið á leigumál-
um í Tungulæk í Skaftafellssýslu
en Valur Blomsterberg hafði tekið
svæðið á leigu til 10 ára og greiddi
vel fyrir það á hverju ári en er nú
að hætta.
Samningnum hefur verið sagt
upp við Val, en hann rak staðinn í
eitt og hálft ár með miklum myndar-
brag.
Valur sagði í samtali við fjölmiðla
þegar hann tók lækinn á leigu að
Tungulækur væri besti sjóbirtings-
lækur heims, sem eru orð að sönnu.
Veiðin hefur verið ævintýraleg oft
og tíðum og fiskurinn vænn.
Vel hefur gengið að veiða í lækn-
um í vor og veiðimenn fengu fína
veiði. Þórarinn Kristinsson, sonur
Kristins heitins í Björgun, er víst
kominn aftur með veiðimálin í lækn-
um eftir þetta leiguævintýri. En ein-
hverjar meiri hræringar eru í gangi
á svæðinu.
GSÍ, Golfsamband Íslands, var
stofnað þann 14. ágúst árið 1942
og er elsta sérsamband innan
ÍSÍ. Golfíþróttin er gífurlega
vinsæl meðal Íslendinga en
16.823 manns voru skráðir
meðlimir í golfklúbb á Íslandi
í fyrra.
Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar voru Íslendingar 332.529
þann 1. janúar árið 2016 og voru
því um 5% þjóðarinnar skráðir
kylfingar í fyrra. Klúbbar innan
GSÍ eru sextíu og tveir, um það
bil einn klúbbur á hverja 5.300
Íslendinga. 9-holu vellirnir eru
46 talsins og 18-holu vellirnir
eru 18, sem gera í heildina 738
golfholur, eða um eina golfholu á
hverja 450 íbúa þessa lands. Eins
og okkur Íslendingum einum er
lagið skulum við bara gera ráð
fyrir að allt þetta sé heimsmet
miðað við höfðatölu.
Eins og flestir vita er golf
spilað með golfkylfum og
golfbolta og takmarkið er
einfalt, koma boltanum ofan í
þessa agnarsmáu holu sem er á
hinum enda golfbrautarinnar í
sem fæstum höggum. Þó svo að
takmarkið sé einfalt er meira en
að segja það að koma boltanum
á áfangastað á tilætluðum
höggafjölda.
Í raun má segja að golf sé
tvíþætt. Langt spil og stutt spil.
Langa spilið eru högg eins og
teighögg og lengri högg á braut,
stutta spilið eru þá högg eins og
styttri högg á braut inn á flatir,
vipp og pútt. Öll þessi högg
krefjast mismunandi kylfna, því
styttra sem höggið á að vera þeim
mun meiri flái er á kylfuhausnum
sem gerir það að verkum að
boltinn flýgur bæði hærra og
styttra. Kannski mætti bæta
þriðja þættinum við, hugarfarið,
sem er stór partur af því að spila
golf. Eða eins og einhver sagði:
„Golf er spilað á 20 sentimetra
löngum velli á milli eyranna á
þér.“
Það getur verið mjög
fullnægjandi að eiga gott „dræv“,
smellhitta kúluna svo hún þeytist
þráðbeint á þann stað sem henni
var ætlað. Raunin er nú samt sú að
meirihluti leiksins fer fram stutt
frá flötunum, í kringum þær eða
á þeim. Því er mikilvægt að eyða
ekki öllum sínum æfingatíma í
sveifluna heldur fara á þau svæði
sem eru í boði til að æfa högg inn
á flatir og pútt.
Golf á Íslandi hefur tekið
stórstígum framförum síðustu
ár sem má kannski rekja til
bættrar aðstöðu til æfinga
yfir veturna eins og til dæmis
Básar í Grafarholti, Hraunkot í
Hafnarfirði og æfingaaðstaða í
Kórnum sem hefur reyndar verið
flutt að mestu í nýtt klúbbhús
GKG. Einnig eru þó nokkrir
tæknilega fullkomnir golfhermar
á höfuðborgarsvæðinu sem
menn hafa nýtt sér. Fjöldinn
allur af efnilegum kylfingum
hafa undanfarin ár flutt til
Bandaríkjanna til að spila
háskólagolf og er það gífurlegur
stökkpallur þar sem hægt er að
spila og æfa golf utandyra allan
ársins hring. Til dæmis fóru
þær Valdís Þóra Jónsdóttir, sem
spilar á Evrópumótaröðinni, og
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, sem
spilar á PGA mótaröðinni og hafa
verið mikið í umræðunni, utan og
spiluðu háskólagolf.
Ég er nú enginn golf-
sérfræðingur sjálfur svo besta
ráðið sem ég get gefið er að
„setj’ann beint á pinnann“.
Gleðilegt golfsumar,
Jóhannes Frímann
Halldórsson
Boltann á
pinnann
STEKKUR
Þorsteinn Hafþórsson og Edda
Brynleifsdóttir á Blönduósi
stofnuðu fyrirtækið Vötnin
Angling Service vorið 2014 og
var hugmyndin að gera út á
veiðileiðsögn og að leigja fólki
veiðistangir til að fara að veiða í
einhverjum af fjölmörgum vötn-
um Austur-Húnavatnssýslu.
Við hittum Þorstein fyrir
skömmu en það styttist í að lax-
veiðin byrji fyrir alvöru, eins og í
Blöndu, þar sem Þorsteinn þekkir
sig vel.
,,Þetta vatt upp á sig mjög fljótt
með fyrirtækið og nú í apríl síð-
astliðnum var opnuð veiðibúð í
nýju húsnæði í gamla bænum á
Blönduósi,“ sagði Þorsteinn og
hélt áfram: ,,Þar eru leigðar út
fullbúnar veiðistangir, seld veiði-
leyfi í nokkur vötn og beita,“ segir
Þorsteinn enn fremur.
En boðið er upp á flugukastnám-
skeið á vorin og Þorsteinn starfar
sem stangveiðileiðsögumaður allt
sumarið. Á veturna má fá leigðan
eða keyptan búnað til ísdorgs. Með
haustinu er ætlunin að byrja að gera
út á kajakferðir með leiðsögn.
,,Hvað varðar mína uppáhalds-
veiði þá er það að komast í góða
sjóbirtingsá með vinum mínum á
haustin, slaka þar á og njóta lífsins
eftir sumartörnina í leiðsögn. Besta
minning er úr Vatnamótunum þar
sem ég setti í alvöru skepnu sem
þveraði yfir Skaftána eins og ég væri
ekki til. Lagðist svo við hinn bakk-
ann og til að gera langa sögu stutta
þá gafst ég upp eftir óralangan tíma
og lét reyna á græjurnar. Þá losnaði
út út honum og ég fékk þríkrækj-
una sex upprétta á tveimur krókum,“
sagði Þorsteinn og var allur á iði.
Veiðitíminn er stutt undan.
Færeyska tónlistarstjarnan Jógvan Hansen:
Ætla að veiða en
klikkað að gera
,,Jú, ég ætla alveg örugglega að
veiða í sumar, alveg pottétt, fátt
er skemmtilegra,“ sagði Jógvan
Hansen er við hittum hann á
hlaupum í vikunni.
Jógvan finnst gaman að renna
fyrir fisk, en þegar hann flutti frá
Færeyjum fyrir rúmlega 8 árum hafði
hann lítinn áhuga á veiði.
,,Jú, ég fer í Langá á Mýrum,
þar er gaman að veiða á hverju
sumri og svo fer maður nokkrum
sinnum í silung, silungsveiðin er
gefandi.
Ég fór í Veiðivötn í fyrra og
það er fallegt og gefandi að renna
fyrir silunginn þar,“ sagði Jógvan
enn fremur.
NYTJAR&VEIÐI
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Veiðitíminn er mjög stutt undan
Myndir / GB
Valur hættur í
Tungulæknum
Líst vel á sumarið
Byrjar laxveiðin með látum?
Það styttist í að laxveiðin byrji
í Straumunum í Borgarfirði og
svo Norðurá í Borgarfirði og
Blöndu. Lax er byrjaður að sjást
í ánum, eins og Laxá í Kjós. Verður
spennandi að sjá hvernig veiðin
byrjar, byrjar hún jafnvel með
látum? Smálaxinn gæti komið
snemma. Allt á þetta eftir að koma
í ljós.
Eldislax veiddist fyrir fáum
dögum í Hlíðarvatni í Selvogi,
sem yfirleitt hefur bara boðið upp
á bleikjuveiði. Laxinn var verulega
ljótur en fyrst héldu menn að þetta
væri regnbogasilungur, sem þetta
var alls ekki. Góð bleikjuveiði hefur
verið í Hlíðarvatni síðan það var
opnað í byrjun maí.
Það verður fróðlegt að sjá hvar
stærsti lax sumarsins veiðist þetta
árið en Laxá í Aðaldal hefur verið
sterk og skilaði þeim nokkrum stór-
um í fyrra, verulega stórum. En þetta
fer allt eftir því hvernig tveggja ára
laxinn og þaðan af stærri, skilar sér
aftur í veiðiárnar.