Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
bíður uppá alhliða lausn fyrir hótelherbergið eða gistiheimilið.
Bændablaðið
Næsta blað kemur út 8. júní
Nánari upplýsingar
www.fuglavarnir.is, sala@fuglavarnir.is, sími: 896 1013
Fuglavarnir
fyrir íslenskan
landbúnað
Scarcrow 360 er ný kynslóð fuglavarna sem er sér-
hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og þá fugla sem eru
hér á landi, líkt og íslenskar gæsir, álftir, máva, starra,
hrafna og fleiri tegundir. Notast er við byltingarkennda
tækni en aðvörunarhljóð í tækjunum eru þróuð og
unnin hér á Íslandi og í Bretlandi.
Kristmundur og Ásta Pálmadótt-
ir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar.
Skagafjörður:
Kristmundur
verðlaunaður
Samfélagsverðlaun Sveitar-
félagsins Skagafjarðar voru veitt í
annað sinn við setningu Sæluviku.
Verðlaunin eru árlega veitt þeim
einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða
félagasamtökum í Sveitarfélaginu
Skagafirði sem þykja standa sig
afburða vel í að efla skagfirskt
samfélag.
Atvinnu-, menningar- og
kynningarnefnd sveitarfélagsins
valdi úr fjölda tillagna sem bárust
og var úr vöndu að ráða. Niðurstaðan
var sú að Samfélagsverðlaun
Skagafjarðar árið 2017 hlaut
Kristmundur Bjarnason, fræðimaður
á Sjávarborg. Kristmundur var
fyrsti formlegi skjalavörður
Héraðsskjalasafns Skagfirðinga og
gegndi því embætti um áratuga skeið
eða allt til ársins 1990. Hann lagði
í sinni tíð grunninn að því einstaka
safni einkaskjala og ljósmynda sem
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga býr
yfir og munu ekki eiga sinn líka í
nokkru öðru héraðsskjalasafni. Hefur
safnið þannig notið einstakra ávaxta
af fræðistarfi, elju og útsjónarsemi
Kristmundar.
Kristmundur er löngu landskunnur
fyrir fræðastörf sín. Eftir hann
liggur fjöldi verka um söguleg efni.
Má þar nefna Sögu Sauðárkróks,
Sýslunefndarsögu Skagfirðinga,
Skagfirskan annál, Jón Ósmann
ferjumann og nú síðast ævisögu
Gríms Jónssonar; Amtmanninn á
einbúasetrinu, sem kom út árið 2008.
Kristmundur er einn af stofnendum
Skagfirðingabókar, ásamt Hannesi
Péturssyni skáldi og Sigurjóni
Björnssyni prófessor. Í þeim bókum
hefur birst gríðarmikið efni um
skagfirska sögu. Kristmundur var
afkastamikill þýðandi um áratuga
skeið. /MÞÞ