Bændablaðið - 24.05.2017, Side 2
2 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017
Mjög sveiflukennd tölfræði í alifuglaræktinni
Átak hefur verið í gangi hjá
Búnaðarstofu Matvælastofnunar
til að ná fram áreiðanlegri tölfræði
í alifuglarækt landsmanna. Þar
hefur tölfræðin í gegnum tíðina
einkennst af miklum sveiflum sem
erfitt hefur verið að sannreyna.
Nokkur vandi er á höndum í
skráningu á alifuglum m.a. vegna
örrar umsetningar og skamms
líftíma t.d. í eldi kjúklinga til
slátrunar. Tímasetningar samantektar
tölfræðigagna skipta því öllu máli þar
sem líftími fuglanna er fremur talinn
í vikum en mánuðum. Afföll sem
oft geta orðið í eldi geta líka ruglað
þessa mynd. Áreiðanlegustu tölurnar
varðandi kjúklingaframleiðsluna
sjálfa er þó án efa að finna hjá
sláturhúsunum. Þar er hægt að greina
daglegar rauntölur um þá kjúklinga
sem fara í vinnslu og á markað
hverju sinni Það eru líka tölurnar sem
endanlega skipta máli í samantekt á
hagtölum Íslands.
358.979 alifuglar á landinu öllu
Samkvæmt tölum MAST um
alifuglaeign landsmanna 2016–2017,
þá voru þeir samtals 358.979. Þar af
voru varphænsni eldri en 5 mánaða
samtals 196.206 á 301 búi. Þá voru
holdahænsni eldri en 5 mánaða
50.590 á 9 búum. Lífungar yngri en
5 mánaða voru 92.807 á 45 búum.
Þegar talað er um lífunga eru það
ungar sem verið er að ala upp í
sláturstærð sem kjúklinga.
Talnaskráning á lífungum hófst
ekki fyrr en 1992 þegar þeir voru
sagðir vera 24.020. Árið 1999 var
talan komin í 154.183 unga en hafði
hrapaði í 41.031 árið 2002. Þá rauk
talan aftur upp og var komin í 200
þúsund árið 2005 og fór mest í
258.543 árið 2007.
Engu er líkara en hrun hafi orðið
í lífungaeldinu á sama tíma og
efnahagshrunið varð 2008, en þá
fór talan niður í 75.964 fugla. Hvort
einhverjir þeirra nær 200 þúsund
lífungar sem fækkunin nam hafi
verið sendir í skyndi til Tortóla skal
ekki fjölyrt um. Í dag eru lífungar
skráðir 92.807 og flestir í Vogum,
eða 25.003.
Landsmenn áttu einnig 971 aliönd
á 75 búum og 183 gæsir á 17 búum.
Fullorðnir kalkúnar töldust vera
1.113 á 3 búum, þar af 1.110 í
Fljótsdalshreppi og 3 í Dalabyggð.
Þá voru 17.005 eldiskalkúnar
á 8 búum. Þar af voru 6.002 í
Dalabyggð, 6.000 í Ölfusi, 5.000 í
Hrunamannahreppi, 2 í Hornafirði
og 1 kalkúnn var skráður til heimilis
í Vopnafjarðarhreppi.
Af öðrum óskilgreindum
tegundum alifugla voru skráðir 104
fuglar á 11 búum.
Miklar sveiflur í
varphænsnatölum
Árið 1981 voru skráð 270.695
varphænsni í landinu. Flest voru
þau skráð 322.880 árið 1985. Síðan
fækkaði þeim jafnt og þétt samkvæmt
skráningu til 1997 þegar þau voru
154.884. Nokkuð flökt hefur verið
í tölunum síðan og flest urðu
varphænsnin á ný 221.167 árið 2011.
Síðan hafa verið gríðarlegar sveiflur
í skráningunni og munar t.d. um 100
þúsund varphænsni á milli áranna
2014 og 2015, en það ár fór talan
niður í 119.811. Nú eru varphænsnin
talin vera 196.206. Mestur fjöldinn,
eða 63.025 varphænsni, eru skráð í
Reykjavík (á Kjalarnesi) og 60.013
í Vogum á Vatnsleysuströnd. Þar á
eftir kemur Flóahreppur með 23.117
varphænur.
Tölur um holdahænsni hafa
sveiflast frá 8–290 þúsund
Mjög sveiflukenndar tölur eru líka
á holdahænsnum síðastliðin 35 ár.
Þar voru skráðir 144.721 fugl árið
1981. Fór fjöldinn hæst árið 1990
í 291.190 fugla, en var talinn tveim
árum seinna vera 44. 065 fuglar. Frá
þeim tíma hafa tölurnar sveiflast frá
20–90 þúsund fugla en fóru lægst í
8.397 holdahænsni árið 2013. Í dag
eru holdahænsnin skráð 50.590 og
flest í Ásahreppi, eða 21.161, og
15.100 í Ölfusi. /HKr.
FRÉTTIR
Fjöldi hrossa á Íslandi hefur
nánast verið sá sami og fjöldi
nautgripa fram undir 2012. Hefur
þróunin haldist nokkurn veginn í
hendur með litlum frávikum lengst
af frá 1981.
Samkvæmt nýjustu tölum
Búnaðarstofu Matvælastofnunar,
sem líka má sjá á vefsíðu Data
Market, voru hross frá hausti 2016 til
vors 2017 talin vera 67.186 á 2.470
búum. Árið 2012 voru þau hins vegar
talin 77.380 en voru flest 80.582 árið
1996.
Athyglisverð er fylgni í
stærð hrossastofnsins við stærð
nautgripastofnsins í landinu. Það
er að segja allt fram til 2012. Þá
varð greinilega einhver misbrestur
í talnaöflun sem líklega skýrir það
að árið 2013 voru einungis skráð
53.021 hross.
Við eftirgrennslan Bændablaðsins
á þeim tíma þótti ljóst að ekki hafði
verið slátrað eða flutt út ríflega 24
þúsund hross á einu ári. Frá þeim
tíma hefur verið gert mikið átak í
að efla skráningu á hrossum og fá
hestaeigendur til að skrá og
skila skýrslum um hrossa-
eign sína. Erfiðast virðist
hafa verið að fá þéttbýl-
isbúa til að gefa upp tölur
um hrossaeign, en starfs-
fólk Búnaðarstofu MAST
hefur lagt mikla áherslu
á að koma skikk á þessa
tölfræði.
Rétt skráning mikilvæg
Líkt og með skráningu á
hrossaeign landsmanna,
þá skipta allar búfjártöl-
ur miklu máli í hagtölum
landsins. Þá er það líka
hreint og klárt fjárhags-
spursmál fyrir bændur að
þeir skili inn skýrslum um búfjár-
eign sína ella detta þeir út úr kerf-
inu og missa tilkall til stuðnings-
greiðslna þar sem það á við.
Flest hross í Skagafirði
Þegar skoðaður er fjöldi hrossa sem
skráður er í einstökum sveitarfé-
lögum, þá skera þrjú sveitarfé-
lög sig algjörlega úr. Þar trónir
Skagafjörður efst með 6.836 hross.
Næst kemur Rangárþing eystra
með 6.251 hross og í þriðja sæti
er Borgarbyggð með 5.249 hross.
Áberandi mikil hrossaeign
er líka í Húnavatnshreppi, eða
4.166, Húnaþingi vestra þar sem
hrossin eru 4.032, Flóahreppi
sem er með 2.862 hross og
Skeiða- og Gnúpverjahreppi,
þar sem hrossin eru 2.011. Þar
á eftir kemur Bláskógabyggð
með 1.893 hross, Sveitarfélagið
Árborg með 1.627 hross,
Hrunamannahreppur með
1.450 hross, Ásahreppur
með 1.320 hross, Dalabyggð
með 1.279 hross og Akureyri
með 1.278 hross, en önnur
sveitarfélög eru með færri.
Í Reykjavík eru síðan
skráð 700 hross og 466
í Kópavogi. Samt mætti
ætla að þau væru þar enn
fleiri miðað við umfangið í
kringum þessa grein á höf-
uðborgarsvæðinu.
Ekkert hross lengur í
Árneshreppi
Ef skoðuð eru sveitarfélög
sem hafa fæst skráð hross
þá er ekkert hross skráð leng-
ur í Árneshreppi á Ströndum,
en 12 í Vestmannaeyjum
líkt og í Vesturbyggð og í
Tálknafjarðarhreppi. Þá kemur
Sandgerði með 17 hross og
Kaldrananes hreppur með 20 hross.
/HKr.
Suðurnes; 449; 1%
Suðurland frá Ölfusi
að Hornafirði;
26.762; 40%
Höfuðborgarsvæðið;
3.447; 5%
Vesturland; 10.450; 15% Vestfirðir; 834; 1%
Norðurland;
23.235; 35%
Austfirðir;
2.009; 3%
Heimild: Búnaðarstofa MAST Bændablaðið / HKr.
Samkvæmt nýjum búfjártölum
Búnaðarstofu Matvælastofnunar
2016–2017, þá telst búfé lands-
manna nú vera 665.386 gripir auk
358.979 alifugla. Það er samtals
1.024.365 ferfætlingar og fiður-
fénaður.
Af þessum fjölda eru 80.024
nautgripir á 645 búum. Þar af eru
26.347 þúsund mjólkurkýr og 2.176
holdakýr.
Sauðfé á fóðrum telst vera
475.893 skepnur á 2.481 býli. Þá eru
67.186 hross í landinu sem skráð eru
á 2.470 bú. Svín eru 3.510 talsins á
19 búum og þá er aðeins verið að
tala um fullorðnar gyltur og gelti,
en ekki grísi. Síðan eru 38.773 loð-
dýr, þ.e. fullorðnir högnar og læður
á 39 loðdýrabúum. Að auki teljast
alifuglar landsmanna vera 358.979
á 469 búum og þá eru 1.188 geitur
í landinu.
Nautgripabændur hafa verið að
svara ákalli um aukna mjólkur- og
nauta kjötsframleiðslu á liðnum
árum, m.a vegna aukins ferðamanna-
straums. Eftir fækkun í stofninum
í þrjú ár í röð frá 2010 hófst kröft-
ug fjölgun gripa á árinu 2013. Það
er þó ekki hrist fram úr erminni að
auka mjólk- og kjötframleiðsluna.
Meðgöngutími hjá íslensk-
um kúm er að meðaltali í
kringum 286 dagar. Kvíga
fer ekki að mjólka fyrr en
eftir fyrsta burð, eða um
tveggja til tveggja og hálfs
árs aldur. Þá tekur 18 til 24
mánuði að ala naut upp í
sláturstærð.
Kúastofninn aldrei stærri
Eigi að síður hefur verið að
fjölga nokkuð ört í stofnin-
um síðan 2013 sem hefur þá
þýtt um leið að færri grip-
ir hafa farið til slátrunar.
Þannig fjölgaði úr 68.776
gripum 2013 í 80.024 2016,
eða um 11.248 gripi. Hafa
nautgripir aldrei verið eins
margir í landinu og nú.
4,2 íbúar um hvern nautgrip
Sem dæmi þá voru þeir 52.998 árið
1981. Á árinu 1981 voru 4,3 íbúar
um hvern nautgrip, en þá voru íbúar
landsins samtals 229.327. Þann 1.
janúar 2017, þegar landsmenn voru
orðnir 338.349, voru 4,2 íbúar um
hvern grip. Þannig að miðað við
íbúaþróun stendur nautgripastofninn
hlutfallslega nánast í stað en þó með
örlítilli stækkun.
Gríðarleg fækkun sauðfjár
Töluvert aðra sögu er að segja af
sauðfjárstofni landsmanna. Á árinu
1981 voru 794.097 vetrarfóðraðar
kindur í landinu, eða um 3,5 sauð-
kindur á hvern einasta landsmann.
Á árinu 2016 var sauðfjárstofninn
kominn í 475.893 skepnur, eða um
1,4 kindur á hvern íbúa. Ljóst er að
sauðfé hefur því fækkað gríðarlega
á undanförnum áratugum eða um
hartnær helming að höfðatölu fjárins
og enn meira sem hlutfall af íbúa-
fjölda. Frá 1995 hefur sauðfé aldrei
farið yfir 500 þúsund vetrarfóðraðar
skepnur.
Eftir nokkurn stöðugleika í
sauðfjárstofninum frá 2003
til 2008 fór stofninn nokkuð
að vaxa á nýjan leik. Var
hann kominn í 487 þúsund
fjár árið 2014. Þá varð
fækkun um 14.540 fjár til
2015. Vetrarfóðruðu sauðfé
fjölgaði síðan aðeins á milli
áranna 2015 og 2016, eða úr
472.461 í 475.893. Það er
fjölgun upp á 3.432 skepnur
sem virðist samt vera meira
en markaðurinn tekur við.
Rætt um niðurskurðarþörf
Vegna birgðasöfnunar á
dilkakjöti í vetur hefur verið
rætt um þörf á töluverðum
niðurskurði. Binda menn þó
vonir við að yfirstandandi
átak í markaðssókn kunni að
bæta stöðuna umtalsvert.
Talið er að umtalsverðir sóknar-
möguleikar geti m.a. falist í að
kynna dilkakjöt betur fyrir erlend-
um ferðamönnum og virðist þar hafa
náðst töluverður árangur á síðustu
mánuðum. Fjöldi veitingastaða er
nú farinn að leggja aukna áherslu á
margvíslega matreitt íslenskt dilka-
kjöt á sínum matseðlum. /HKr.
Suðurnes; 0; 0%
Suðurland frá Ölfusi
að Hornafirði;
32.416; 41%
Höfuðborgarsvæðið;
1.279; 2%
Vesturland;
11.829; 15%
Vestfirðir;
2.483; 3%
Norðurland;
27.186; 35%
Austfirðir;
3.454; 4%
Heimild: Búnaðarstofa MAST Bændablaðið / HKr.
Búfé landsmanna telst vera rúmlega milljón dýr, bæði ferfætlingar og fiðurfé, samkvæmt nýjustu tölum MAST:
Nautgripir hafa aldrei verið fleiri en nú
– Hefur fjölgað nánast alveg í takt við fjölgun landsmanna frá 1981 en sauðfé hefur fækkað um nær helming á 35 árum
Hross landsmanna teljast nú vera 67.186
– Fjöldi hrossa í landinu hefur verið nær alveg samhliða nautgripafjöldanum frá 1981 með örlitlum frávikum