Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. maí 2017 Þann 27. október 1917 boðaði frú Stefanía Stefánsdóttir í Þingdal konur í Villingaholtshreppi í Flóa á fund til að stofna kvenfélag í sveitinni. Alls 16 konur mættu á stofnfundinn og var Guðrún Einarsdóttir á Urriðafossi kosinn fyrsti formaður félagsins. Tilgangur félagsins var „að hjálpa bágstöddum sjúklingum og fátækum sængurkonum“. Meðal annars stóðu konurnar fyrir stofnun Sjúkrahúss Suðurlands og styrktu skólann og kirkjuna, með ýmsum fjáröflunarleiðum, s.s. bögglasölu, hlutaveltum og sölu á kaffiveitingum m.a. í Dælarétt. Æ síðan hefur kvenfélagið selt veitingar og styrkt sjúkrahúsið, leikskóla og skóla í sveitinni, brunavarnir og félög fatlaðra. Hjálpum þar sem þörf er á „Það hefur ekki mikið breyst á þessum 100 árum, það er enn þá verið með veitingasölu til fjáröflunar og tilgangur félagsins er enn í dag að hjálpa þar sem þörf er á,“ segir Sólveig Þórðardóttir á Skúfslæk í Flóa, núverandi formaður Kvenfélags Villingaholtshrepps. Hún segir að félagið hafi þróast vel á þessari öld. „Já, alltaf er nú heldur að fjölga konunum í félaginu, fjáröflunarleiðir eru svipaðar og voru, sala á kaffiveitingum, þ.e. erfidrykkjur, kosningakaffi og fundarkaffi. Einnig höfum við gefið út tvær uppskriftabækur sem hafa selst mjög vel. Við höfum verið í auknu samstarfi við hin kvenfélögin í Flóahreppi, þ.e. kvf. Gaul verja- bæjarhrepps og kvf. Hraun- gerðishrepps, með að halda basar bæði haustin 2014 og 2016, og svo sjáum við sameiginlega um morgunverð á Fjöri í Flóa, seljum kaffi og erum með flóamarkað eða hlutaveltu. Við höfum leitast við að gera eitthvað fyrir konurnar, haldið námskeið og farið í skemmtiferðir, bæði sumar- og aðventuferðir,“ segir Sólveig. 30 konur í félaginu Í dag eru 30 konur í félaginu, þar af 20 virkar. Konurnar hittast á tveggja vikna fresti allan veturinn, spjalla og gera handavinnu. „Okkar markmið er og hefur verið að hlúa að þeim sem á þurfa að halda og því er okkur svo nauðsynlegt að selja veitingar til að geta gefið gjafir á þær stofnanir sem á þurfa að halda,“ segir formaður félagsins um leið og hún er spurð hvernig gangi að ná inn yngri konum í félagið. „Það hefur gengið misjafnlega, á tímabili komu inn margar ungar konur, sem hurfu á braut aftur vegna anna, náms, barneigna og vinnu, en við vonum að þær komi til okkar aftur. En margar ungar konur hafa líka komið inn á síðustu árum og eru mjög vel virkar. Bara á síðastliðnu ári hafa þrjár konur komið inn og er það mikið ánægjuefni. Nýliðun er algjörlega nauðsynleg, með nýjum konum koma nýjar hugmyndir og stundum þurfa hefðir að víkja, en við höfum nú oft grínast með að það sé nú ekki hefð fyrir því þegar rætt er um einhverjar breytingar.“ Aberdeen í Skotlandi Hápunktur afmælisársins verður helgar ferð í haust til Aberdeen í Skotlandi þar sem kvenfélags- konurnar ætla að skemmta sér saman, skoða sig um og njóta lífsins. Þá voru konurnar myndaðar í bak og fyrir á aðalfundi félagsins 12. mars af atvinnuljósmyndara til að setja í sögubækurnar. Aukið samstarf kvenfélaga Sólveig var að lokum spurð að því hvernig hún sæi framtíð félagsins fyrir sér. „Ég sé fyrir mér aukið samstarf á milli kvenfélaganna. Það sem hefur breyst er að meirihluti félagskvenna er útivinnandi sem gerir það að verkum að erfitt er að sinna veitingasölu á virkum dögum en við höfum verið að hjálpa aðeins til hjá hvert öðru, félögin hér í Flóanum. Ég hef svolítið velt því fyrir mér hvernig væri ef engin kvenfélög væru til, engin kona væri tilbúin að sinna sjálfboðaliðastarfi? Það væru fátækar sveitir sem ekki hefðu svona samtök hjá sér. Vinnustundirnar skipta hundruðum á ári hjá hverju félagi og gjafirnar út í samfélagið eru stundum í milljóna tali, bara hjá venjulegu meðalstóru kvenfélagi, og það skiptir máli,“ segir Sólveig. Hún segist vera stolt af því að vera kvenfélagskona því það gefi svo mikið þegar hægt er að styrkja þá sem á þurfa að halda. „Ég er mjög þakklát þeim sem gefa sér tíma til að vinna með okkur og þá ekki síður þeim sem kaupa af okkur veitingar. Ég hlakka til að starfa næstu árin með mínu kvenfélagi, það er svo mikið af flottum og duglegum konum í félaginu og gaman að vinna með þeim,“ segir formaðurinn. Með henni í stjórn eru Elfa Kristinsdóttir, Rimum 6, ritari og Fanney Ólafsdóttir, Hurðarbaki, gjaldkeri. /MHH Kvenfélag Villingaholtshrepps 100 ára: „Fátækar sveitir sem hafa ekki kvenfélög“ – segir núverandi formaður, Sólveig Þórðardóttir á Skúfslæk í Flóa Konurnar sem mættu á hundraðasta aðalfund Kvenfélags Villingaholtshrepps sunnudaginn 12. mars í félagsheimilinu Félagslundi. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Sjö formenn félagsins á þessum 100 árum, ásamt núverandi formanni, voru myndaðar á afmælisfundinum. Á myndinni eru í efri röð frá vinstri: Kristín Stefánsdóttir, Hurðarbaki, Elín Bjarnveig Sveinsdóttir, Egilsstaðakoti, Valgerður Gestsdóttir, Mjósyndi, Eydís Lilja Eiríksdóttir, Kolsholti 2. Neðri röð frá vinstri: Halla Aðalsteinsdóttir, Selfossi, áður Kolsholti 1, Sólveig Þórðardóttir, Skúfslæk 2 og Ásta Ólafsdóttir, Selfossi, áður Skúfslæk. Sólveig Þórðardóttir. 100. aðalfundur Kvenfélags Villingaholtshrepps haldinn í Þjórsárveri 12. mars 2017, lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu aldraðra og sjúkra á Suðurlandi. Það er algjörlega óásættanlegt að dvalarheimilunum á Kumbara- vogi og Blesastöðum, með sam- tals um 50 legurýmum, hafi verið lokað og ekkert komið í staðinn. Það er illt til þess að vita að fólk sé flutt um langan veg frá heimili og ættingjum, til dvalar um lengri eða skemmri tíma. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að grípa til aðgerða strax og leggja umtals- vert fjármagn í þennan málaflokk, svo hægt sé að veita öldruðum Sunnlendingum áhyggjulaust ævikvöld. Ályktun aðalfundar kvenfélagsins: Lýsir miklum áhyggjum af stöðu aldraðra og sjúkra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.