Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
Ostrusvepparæktun í endurunnum kaffikorgi
– Einnig tækifæri í aukabúskap fyrir kornbændur
Ostrusveppir þykja mikið lostæti
og það er lítið mál að rækta þá til
heimabrúks. Það sem meira er, þá
getur þú endurnýtt kaffikorginn
þinn og notað sem jarðveg fyrir
ræktunina.
Magnús Magnússon sameinar
áhuga sinn á endurnýtingu hráefna og
svepparækt í ostrusvepparæktuninni.
Hann er með umboð fyrir
ostrusveppagró – sem notuð er í
korginn – og kaupir það inn frá
Hollandi og Belgíu.
Emmson sveppir
„Ég fékk áhuga á endurnýtingu
hráefna fyrir nokkrum árum –
sérstaklega þeirra sem hafa lent
í urðun. Mér hefur líka fundist
svepparækt sérstaklega áhugaverð
og því má segja að þetta tvennt
sameinist í ostrusvepparæktuninni.
Ég hef sótt námskeið hjá RotterZwam
í Hollandi en þeir eru upphafsmenn í
því að nýta kaffikorginn í svepparækt
inni á heimilunum. Ég hef líka sótt
þekkingu til Grocycle í Englandi
og tekið þátt í Mushroom learning
network í Danmörku en það er
hreyfing fólks í Evrópu sem hefur
endurnýtingu að hugsjón,“ segir
Magnús, sem markaðssetur vöru sína
sem Emmson sveppi.
„Þessi vistvæna svepparæktun
hefur rutt sér mjög til rúms í
borgarsamfélögum bæði austan hafs
og vestan og það er ekki óalgengt að
ræktunin fari fram inni í miðri borg
þar sem kaffi- og tenotkun er mest,“
segir Magnús.
„Þess má geta að framleiðsla á
þessari hollustuvöru hefur gert það
að verkum að sveppaframleiðsla er
orðin jafnoki kaffiframleiðslunnar
í heiminum hvað verðmæti varðar.
Hún mun svo halda áfram að
aukast með meiri vitneskju um
efnainnihald þessara sveppa og
áhrifum framleiðslunnar á líf fólks
og áhrifa á umhverfið allt. Úrgangur
frá ræktuninni er lyktarlaus og laus
við mengun og einhver allra besta
gróðurmold sem völ er á. Erlendis er
moldin notuð til lífrænnar ræktunar.“
Bændur geta notað hálminn
Magnús býður fólki, sem fyrr segir,
upp á tilbúinn pakka sem dugar til
að hefja ostrusvepparæktunina – en
kaffikorgurinn kemur frá heimilinu
sjálfu eða úr nærumhverfinu, til
dæmis frá veitingahúsum eða
vinum. Hann bendir bændum líka
á möguleikann að nota hálm. „Það
er mjög gott að rækta ostrusveppi
í hálmi og tilvalið fyrir bændur
sem hafa góða aðstöðu til slíkrar
ræktunar að framleiða ostrusveppi
fyrir sjálfa sig og ef til vill til sölu
á næsta hóteli eða veitingahúsi.
Með því að framleiða þetta þannig
á hverjum stað minnkar allur
flutningur – og þar með vistsporið.
Til að framleiða úr hálmi þarf bara
að kaupa ræktunarílát, leiðbeiningar
og sveppaþræði.
Tilgangurinn með þessari ræktun
og þróunarstarfi í svepparækt er
meðal annars að minnka vistsporið
og aðstoða fólk við að hefja sjálft
sína ræktun. Á þriðja þúsund tonn
af kaffi er flutt til Íslands um langan
veg með tilheyrandi áhrifum á
umhverfið. Við gerð kaffidrykkjar
notast minna en eitt prósent af
kaffiduftinu. Svepparæktunin felst
í því að safna kaffikorgi og svo er
blanda búin til úr honum, kalki og
hálmi. Ostrusveppirnir vaxa í þessum
massa og eru mjög næringarríkir af
vítamínum og próteini – og sagðir
styrkja ónæmiskerfi mannsins. Þetta
er framleiðsla sem mengar ekki og
það þarf ekki að auka ræktarland.
Hún getur farið fram í ónotuðum
byggingum innan borga og bæja,
ef ætlunin er að rækta mikið magn.
Ræktunin þarf þó að fara fram við
eins hreinar aðstæður og mögulegt
er. Komist önnur sveppagró inn
í ræktunina utan frá er hún ónýt
í það skiptið. Við uppáhellingu
sótthreinsum við kaffikorginn, en
önnur efni eins og hálm til dæmis
– sem hægt er að nota líka – þarf að
sótthreinsa við um 62 gráðu hita í um
eina og hálfa klukkustund. Ræktunin
fer fram í endurunnu plasti, sem
sérstaklega er framleitt fyrir þessa
notkun,“ útskýrir Magnús.
Bera engin gró
Hráefnið til framleiðslunnar eru sem
fyrr segir gró frá sveppum sem Magnús
segir að komi frá Hollandi og/eða
Belgíu, með leyfi Matvælastofnunar.
„Þetta kemur frá tveimur stærstu
rannsóknarstofum í heiminum sem
framleiða sveppaþræði.
Ég hef svo sett saman pakka með
búnaði og leiðbeiningum þannig að
fólk getur ræktað sína ostrusveppi úr
kaffikorgi sem fellur til á heimilinu.
Þetta er bæði lærdómsríkt og
skemmtilegt. Latínuheiti sveppanna
er „Pleurotus Ostreatus“ (grár
ostrusveppur). Sveppirnir eru
ræktaðir þannig að þeir bera engin gró
(fræ) þannig að það er engin hætta á
smiti út í andrúmsloftið. Dósirnar eru
seldar hjá Innigörðum ehf. í Hraunbæ
117 og ég hef einnig sent þær eftir
pöntunum út á land.“
Gerir hversdagsmat
að hátíðarmat
„Ég sé svepparæktun sem möguleika
fyrir bændur og aðra sem eru í
ferðaþjónustu til þess að geta ræktað
sína eigin ostrusveppi úr kaffikorgi
og/eða hálmi og boðið upp á þessa
úrvalsfæðu sem gerir hversdagsmat
að hátíðarmat,“ segir Magnús og
hvetur þá sem hafa áhuga að setja sig
í sambandi við sig í gegnum netfangið
emmson@emmson.tv. Hann bendir
áhugasömum einnig á Facebook-
síðuna Sveppasamfélagið. /smh
Ostrusveppir eru úrvalsfæða, að sögn Magnúsar, sem getur gert hversdagsmat að hátíðarmat.
Emmson ræktunarsettið
Tilgangurinn með ræktunarsettinu er að geta breytt notuðum
kaffikorg í úrvals matvöru í stað þess að setja hann beint í ruslið
eða moltugerð.
Með þessari ræktunaraðferð er hægt að nota kaffikorginn sem fellur til í
eldhúsinu. Svo er bara bætt í ræktunarfötuna þegar kaffikorgur fellur til í
þínu eldhúsi. Ef áhugi er á meiri framleiðslu þá má nálgast kaffikorg víða; á
vinnustað eða næsta kaffihúsi. Það er hægt að nota margt fleira sem fellur til,
eins og hálm, bylgjupappa og fleira.
Notkunin á kaffikorginum er áhugaverð að því leyti að hann er aukaafurð af
kaffiframleiðslunni og það þarf enga umfram orku þegar hann er notaður
fljótlega eftir uppáhellingu. Við það ferli sótthreinsast hann, en önnur efni eins
og hálm þarf að sótthreinsa við um 62 gráðu hita í um eina og hálfa klukkustund.
Ræktunarsettið er búið til úr endurunnu plasti og álímdar prentaðar upplýsingar
á endurunninn pappír. Hægt er að nota ræktunarfötuna aftur og aftur – í
raun í mörg ár. Ef annað efni en plast væri notað undir ræktunina myndi
sveppurinn éta það.