Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Ærin Hetja á Hálsi í Dalvíkurbyggð bar fjórum lömbum á liðnu vori: Brögguðust vel í sumar og vógu yfir 200 kíló í haust Ærin Hetja á bænum Hálsi í Dalvíkurbyggð bar fjórum lömbum á liðnu vori, einni gimbur og þremur hrútum. Lömbin fjögur vógu rétt ríflega 200 kíló á fæti í haust. Hetja er fjögurra vetra og hefur um ævina borið 11 lömbum. Fyrsta vorið voru lömbin tvö, en annað fæddist dautt, næsta vor á eftir fæddust sprækir tvílembingar, þá bar hún þremur lömbum í fyrravor og nú í vor sem leið voru þau fjögur. „Nú er bara að vona að þau verði ekki fimm næsta vor,“ segir Arnfríður Friðriksdóttir, bóndi á Hálsi. Hetja er dugleg og stóð sig með prýði Hetja bar 13. maí og segir Arnfríður að hún hafi alls ekki átt von á að hún myndi ganga með öll lömbin fjögur yfir sumarið og var undir það búin að taka tvö undan henni. „Það varð aldrei úr því, ærin stóð sig með mestu prýði, hún mjólkaði sérlega vel, en það sem eflaust réði úrslitum var hvað lömbin voru jöfn að stærð, vorið var hlýtt og sumarið gott og grösugt. Hetja var með lömb sín hér í góðum heimahögum og hafði það ljómandi fínt. Hafði nóg að bíta og brenna. Sérlega gaman var að sjá þegar hún fór með alla kjóruna að læknum til að brynna þeim og létta þannig á sjálfri sér,“ segir Arnfríður. „Kindur eru nefnilega ekki sauðheimskar heldur skynsamar skepnur.“ Hún segir Hetju ekki sérlega gæfa, hún hafi lítið gert af því að kjassa hana um dagana. „Fólk heldur eflaust að ég hafi mokað í hana fóðurbæti, en sú er aldeilis ekki raunin. Ég gaukaði að henni einum og einum lófa af og til meðan hún var enn á húsi eftir burðinn en ekkert eftir að hún fór út. Ekkert til að hafa orð á og alls ekki þegar um fjórlembu er að ræða,“ segir Arnfríður. Þokkalegar afurðir Hrútarnir þrír voru sendir í sláturhús fyrir nokkru, sá þyngsti vó um 25,2 kíló, einn var 22 kíló og sá léttasti 19,5 kíló. Arnfríður ákvað á síðustu stundu að halda gimbrinni, en hún vegur um 46 kíló á fæti. Sjálf er ærin Hetja engin smásmíði, vegur 95 kíló. „Þetta eru alveg þokkalegar afurðir, hrútarnir voru helst til of feitir ef eitthvað er,“ segir Arnfríður. Hrútarnir fóru allir í E-flokk. Hún segir Hetju einstaklega duglega og henni hafi tekist vel til að halda hópnum saman. Oft sé sú hætta fyrir hendi að eitt til tvö lömb í svo stórum hópi dragist aftur úr, en lömb Hetju hafi verið býsna jöfn. „Það varð enginn út undan í hennar hópi,“ segir Arnfríður. /MÞÞ Arnfríður Friðriksdóttir, bóndi á Hálsi í Dalvíkurbyggð, með Hetju og gimbrinni sem hún ákvað á síðustu stundu að halda. Mynd / MÞÞ Hetja með fjórlembinga sína nú fyrr í haust. Öll lömbin eru nokkuð jöfn, hrútarnir þrír sem sendir voru í sláturhús á dögunum vógu frá 19,5 og upp í 25,2 kíló. Mynd / Halldór Ingi Ásgeirsson Hetju og gimbrin sem Arnfríður ákvað á síðustu stundu að senda ekki í sláturhús. Mynd / MÞÞ VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir vönduðum sumar húsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á lands byggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2017. Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði: - Lýsing á eign og því sem henni fylgir - Ástand íbúðar og staðsetning - Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár - Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.