Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Margir kjósa að hafa bílinn fjórhjóladrifinn, en vilja ekki endilega stóra jeppa eða jepplinga. Ekki er úrvalið mikið af fjórhjóladrifnum litlum bílum sem eru sparneytnir á eldsneyti. Suzuki hefur verið með litla og sparneytna fjórhjóladrifna bíla um nokkurt skeið. Nýlega kom á markaðinn með nýju og breyttu útliti Suzuki Swift sem er með 90 hestafla sparneytna vél og ók ég honum tæpa 100 km fyrir skemmstu. Þægilegur í akstri, en mætti vera með kraftmeiri vél Að keyra bílinn er þægilegt, fótapláss gott, sæti þægileg og stjórntæki öll staðsett þannig að ekki þarf að hreyfa hendur mikið til að nálgast þau. Uppgefin meðaleyðsla er 4,9 lítrar á hundraðið í blönduðum akstri og mér til furðu þá var mín eyðsla í lok prufuakstursins ekki nema 5,2 lítrar á hundraðið samkvæmt upplýsingum frá aksturstölvunni. Eitthvað sem ég átti ekki von á þar sem ég var ekkert að reyna að spara eldsneyti. Hin 90 hestafla vél virðist henta bílnum vel, en fyrir vindasamt land með mörgum brekkum mætti vélin vera aðeins kraftmeiri samanber Suzuki SX4 bílinn sem ég prófaði í nóvember 2011. Sá bíll var með yfir 110 hestafla vél og eftirminnilega skemmtilegur í akstri. Miðað við að hafa prófað Suzuki Swift með þessari 90 hestafla vél, myndi ég velja Swift sem er með næstu vél fyrir ofan sem er 112 hestöfl. Svo er það Swift Sport bíllinn sem er með 136 hestöfl sem er örugglega enn skemmtilegri – en mér er annt um ökuskírteinið mitt. Stöðugur á malarvegi og lítið steinahljóð upp undir bíl Á meðan prufuakstrinum stóð var sólin lágt á lofti og var aðeins að trufla útsýni úr bílnum, dæmigert „sólskyggnaveður“, en eini galli bílsins í þessum prufuakstri fannst mér vera að sólskyggnin eru of lítil og hefði ég viljað hafa haft derhúfu til að hjálpa við aksturinn. Tel reyndar gott ráð fyrir eigendur svona bíla að hafa alltaf derhúfu í bílnum til taks ef þeir lenda í svona akstursaðstæðum. Að keyra svona lítinn bíl í innanbæjarakstri er afar þægilegt, bíllinn lipur og þægilegur við þröngar aðstæður. Á malarvegi naut fjórhjóladrifið sín vel og er bíllinn hreint eins og límdur við veginn, lítið malarvegahljóð upp undir bílinn og fjöðrunin góð. Gott verð fyrir duglegan bíl Þegar komið er inn í sýningarsalinn hjá Suzuki Bílar í Skeifunni eru flestir bílar í sýningarsalnum sýndir án varadekks, en það er vinnuregla hjá Suzuki að allir seldir bílar fara frá þeim með varadekki. Góðir punktar: Speglar góðir, sæti, fótapláss, farangursrými og fl., en aðeins get ég sett út á tvennt. Það þarf alltaf að kveikja ljósin til að fá afturljósin á bílinn svo að maður sé löglegur í akstri og að loknum akstri þarf að muna að slökkva. Sólskyggni full lítil. Gott verð: Suzuki Swift er fáanlegur með þrem bensínvélum (90, 112 og 136 hestafla) og verðið er frá 2.080.000 og upp í 2.880.000, en bíllinn sem prófaður var kostar 2.550.000. Suzuki Swift. 4X4. Myndir / HLJ Þrátt fyrir að bíllinn sé lítill er farangursrýmið glettilega stórt. Finnst alltaf broslegt þegar smábílar eru með bakkmyndavélar, en kemur Sólskyggnin full lítil. Þyngd 960 kg Hæð 1.520 mm Breidd 1.735 mm Lengd 3.840 mm Helstu mál og upplýsingar É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Ókostur að þurfa alltaf að muna að kveikja og slökkva ljósin. að hafa náð 5,2 í blönduðum akstri og aldrei keyrt bílinn áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.