Bændablaðið - 02.11.2017, Side 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017
Margir kjósa að hafa bílinn
fjórhjóladrifinn, en vilja
ekki endilega stóra jeppa eða
jepplinga. Ekki er úrvalið mikið
af fjórhjóladrifnum litlum bílum
sem eru sparneytnir á eldsneyti.
Suzuki hefur verið með litla
og sparneytna fjórhjóladrifna bíla
um nokkurt skeið. Nýlega kom á
markaðinn með nýju og breyttu útliti
Suzuki Swift sem er með 90 hestafla
sparneytna vél og ók ég honum tæpa
100 km fyrir skemmstu.
Þægilegur í akstri, en mætti vera
með kraftmeiri vél
Að keyra bílinn er þægilegt,
fótapláss gott, sæti þægileg og
stjórntæki öll staðsett þannig að
ekki þarf að hreyfa hendur mikið
til að nálgast þau.
Uppgefin meðaleyðsla er 4,9
lítrar á hundraðið í blönduðum akstri
og mér til furðu þá var mín eyðsla
í lok prufuakstursins ekki nema
5,2 lítrar á hundraðið samkvæmt
upplýsingum frá aksturstölvunni.
Eitthvað sem ég átti ekki von á þar
sem ég var ekkert að reyna að spara
eldsneyti.
Hin 90 hestafla vél virðist henta
bílnum vel, en fyrir vindasamt land
með mörgum brekkum mætti vélin
vera aðeins kraftmeiri samanber
Suzuki SX4 bílinn sem ég prófaði í
nóvember 2011. Sá bíll var með yfir
110 hestafla vél og eftirminnilega
skemmtilegur í akstri.
Miðað við að hafa prófað Suzuki
Swift með þessari 90 hestafla vél,
myndi ég velja Swift sem er með
næstu vél fyrir ofan sem er 112
hestöfl. Svo er það Swift Sport
bíllinn sem er með 136 hestöfl sem
er örugglega enn skemmtilegri – en
mér er annt um ökuskírteinið mitt.
Stöðugur á malarvegi og lítið
steinahljóð upp undir bíl
Á meðan prufuakstrinum stóð var
sólin lágt á lofti og var aðeins að
trufla útsýni úr bílnum, dæmigert
„sólskyggnaveður“, en eini galli
bílsins í þessum prufuakstri fannst
mér vera að sólskyggnin eru of
lítil og hefði ég viljað hafa haft
derhúfu til að hjálpa við aksturinn.
Tel reyndar gott ráð fyrir eigendur
svona bíla að hafa alltaf derhúfu í
bílnum til taks ef þeir lenda í svona
akstursaðstæðum.
Að keyra svona lítinn bíl í
innanbæjarakstri er afar þægilegt,
bíllinn lipur og þægilegur við
þröngar aðstæður. Á malarvegi naut
fjórhjóladrifið sín vel og er bíllinn
hreint eins og límdur við veginn,
lítið malarvegahljóð upp undir
bílinn og fjöðrunin góð.
Gott verð fyrir duglegan bíl
Þegar komið er inn í sýningarsalinn
hjá Suzuki Bílar í Skeifunni eru
flestir bílar í sýningarsalnum sýndir
án varadekks, en það er vinnuregla
hjá Suzuki að allir seldir bílar fara
frá þeim með varadekki.
Góðir punktar:
Speglar góðir, sæti, fótapláss,
farangursrými og fl., en aðeins
get ég sett út á tvennt. Það þarf
alltaf að kveikja ljósin til að fá
afturljósin á bílinn svo að maður
sé löglegur í akstri og að loknum
akstri þarf að muna að slökkva.
Sólskyggni full lítil.
Gott verð:
Suzuki Swift er fáanlegur með
þrem bensínvélum (90, 112 og 136
hestafla) og verðið er frá 2.080.000
og upp í 2.880.000, en bíllinn sem
prófaður var kostar 2.550.000.
Suzuki Swift. 4X4. Myndir / HLJ
Þrátt fyrir að bíllinn sé lítill er farangursrýmið glettilega stórt. Finnst alltaf broslegt þegar smábílar eru með bakkmyndavélar, en kemur
Sólskyggnin full lítil.
Þyngd 960 kg
Hæð 1.520 mm
Breidd 1.735 mm
Lengd 3.840 mm
Helstu mál og upplýsingar
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Ókostur að þurfa alltaf að muna að kveikja og slökkva ljósin.
að hafa náð 5,2 í blönduðum akstri
og aldrei keyrt bílinn áður.