Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 13

Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 13
13Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Ný könnun sem greiningar- fyrirtækið Agri analyse vann fyrir Landbúnaðartryggingar í Noregi sýnir að einungis 19% bænda nota alltaf öryggisbelti þegar þeir keyra um á traktorum sínum. Niðurstöðurnar valda mönnum áhyggjum þar sem ökumaður traktors er í jafnmikilli hættu eins og aðrir bílstjórar á vegum úti og því skynsamlegt að nota þar til gerðan öryggisbúnað. Í könnuninni segja 29% svarenda að þeir noti oftast belti á meðan 23% svarenda segjast aldrei nota öryggisbelti þegar þeir keyri traktora sína. Það eru ekki í gildi lög í landinu sem kveða á um að ökumenn traktora skuli ávallt vera spenntir undir stýri eins á við um aðra ökumenn. Í sumum tegundum nýrra traktora er búið að koma fyrir svokölluðum fastspenntum búnaði sem á að nota þegar það er sýnileg hætta á veltu. Skýrsla sem Rannsóknarstofnun byggðamála í Noregi sendi nýverið frá sér sýnir að traktor er það tæki sem oftast er hægt að tengja við óhöpp og slys á bóndabæjum en um 14% af slysum tengjast traktorum beint. Á árunum 2011–2013 hafa níu af sautján banaslysum í landbúnaði tengst notkun á traktorum. /ehg - Bondebladet Sala og ráðgjöf Sími 540 1100 www.lifland.is Reykjavík Lyngháls Akureyri Óseyri Borgarnes Borgarbraut Blönduós Efstubraut Hvolsvöllur Ormsvöllur Úrval vöru fyrir sauðfjárbóndann Orkuríkt kjarnfóður með 24% próteini. eykur meltanleika próteina. Hentar þar sem þörf er á sterku fengieldi. Þú kaupir 1 stórsekk af Ærblöndum og færð 2 Sauðfjárfötur í kaupbæti. Þú kaupir 12 smásekki af Ærblöndum og færð 1 Sauðfjárfötu í kaupbæti. Þú kaupir 1 stórsekk af Ærblöndum og 4 Sauðfjárfötur. Þú kaupir 12 smásekki af Ærblöndum og 2 Sauðfjárfötur. Ærblanda LÍF Hagkvæmur valkostur með 15% próteininnihaldi sem byggir á jurtaafurðum. Hentar vel með miðlungsgóðum heyjum. Sauðfjárfatan er ný vara hjá Líflandi sem er sérstaklega ætluð íslensku sauðfé og er auðug af lífsnauðsynlegum stein- og snefilefnum. Fatan inniheldur AO-mix, blöndu náttúrulegra andoxunarefna sem minnka álag á frumur þegar efnaskipti eru hröð, t.d. á seinnihluta meðgön- gu og um burð. Í samspili við E-vítamín og selen hefur andoxunarblandan jákvæð áhrif á frjósemi, heilbrigði og ónæmiskerfi fjárins. Innbyrðis hlutfall kalsíum og fosfórs er til þess fallið að minnka líkur á stoðkerfisvandamálum og doða við burð. Sauðfjárfatan inni- heldur engin erfðabreytt hráefni. Kynntu þér kos ti óerfðab reytta kjarnfó ðursins NÝTT! Ærblanda háprótein Verð m. vsk. Án vsk. 25 kg 2.870 2.315 500 kg 52.499 42.338 Ærblanda Líf 25 kg 2.260 1.823 500 kg 41.720 33.645 Sauðfjárfata 20 kg 4.200 3.387 Verð Tilboðið gildir til og með 31. esember 2017. KYNNINGARTILBOÐ – SÆKTU EÐA FÁÐU SENT FRÍTT Helmingur norskra bænda sleppir öryggisbeltum í traktorum Innanlandsflug: Lítils háttar fjölg- un farþega Alls fóru um 385 þúsund farþegar um flugvelli landsins á fyrri helmingi ársins ef Keflavíkurflugvöllur er frátalinn. Fjöldinn er mun minni en í fyrri uppsveiflum. Þetta kemur fram á vefnum turisti.is. Nærri fjórtán þúsund fleiri farþegar nýttu sér ferðir frá innanlandsflugvöllunum á fyrri helmingi ársins og nam heildarfjöldinn 385 þúsundum. Hlutfallslega var aukningin langmest á Akureyri, eða um tíund, en samdrátturinn mestur á Húsavík og í Vestmannaeyjum, eða rúmlega 13 prósent, samkvæmt nýjum tölum frá Isavia. Á Ísafjarðarflugvelli jókst farþegafjöldinn lítillega, eða um 1,7 prósent. Þar sem flestar ferðir eru til og frá Reykjavík þá stóð flugvöllurinn í Vatnsmýri undir rúmlega helmingi farþegafjöldans og þar fjölgaði ferðum um 2,3% fyrstu sex mánuðina en á landsvísu nam aukningin 3,5%. Viðbótin á fyrri helmingi síðasta árs var nærri tvöfalt meiri, eða 6,7%. 40% vöxtur á Keflavíkurflugvelli Sem fyrr er vöxturinn á Keflavíkurflugvelli miklu meiri en í innanlandsfluginu en þar fjölgaði farþegum um 40% á tímabilinu janúar til júní og til samanburðar má nefna að það fer nærri að brottfarar- og komufarþegar á Keflavíkurflugvelli í febrúar hafi verið jafnmargir og heildarfjöldi farþega á innanlandsflugvöllunum fyrstu sex mánuði ársins. Fjöldi farþega í innanlandsflugi helst í hendur við almenna þróun í efnahagslífinu síðastliðinn aldarfjórðung. Þannig voru þeir langflestir í uppsveiflunum í kringum aldamótin og aftur á metárunum 2007 og 2008 þegar fjöldinn fór upp í um 480 þúsund fyrstu sex mánuðina. Hagvöxtur síðustu ára hefur hins vegar ekki skilað sér í álíka fjölda farþega í innanlandsfluginu og ekki heldur sú staðreynd að fjöldi erlendra ferðamanna hefur fimmfaldast á milli áranna 2008 og 2017, úr 184 þúsund í 974 þúsund á fyrri helmingi hvers árs. Vefurinn bendir á að hafi beri í huga nýlegar skekkjur sem fram hafa komið í talningu og veltir því einnig upp hvort farþegum í innanlandsflugi hefði í raun farið fækkandi síðustu ár ef ekki væri fyrir erlendu ferðamennina. /MÞÞ Mynd HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.