Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 02.11.2017, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2017 Harðari samkeppni og aukin sala í gegnum erlendar bókunarsíður er veruleiki sem ferðaþjónustubændur búa við. Áhersla á gæði og aukna þjónustu er það sem mun fleyta bændum áfram í samkeppninni að mati Sævars Skaptasonar, framkvæmdastjóra Hey Iceland, sem heldur um þessar mundir upp á eins árs afmæli nýja vörumerkisins sem tók við af Ferðaþjónustu bænda og Icelandic Farm Holidays. Sævar hélt erindi á uppskeruhátíð Félags ferðaþjónustubænda þar sem hann fór yfir helstu áskoranir og tækifæri sem liggja í greininni um þessar mundir. Miklar breytingar hafa orðið á síðustu árum en félagar í Hey Iceland eru nú 176 talsins. Í máli Sævars kom fram að gífurleg fjölgun hefur verið í hópi ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjenda á síðustu misserum. „Mikil og hörð samkeppni er við erlenda aðila en til að mynda er talið að AirBnB velti 4–6 milljörðum á Íslandi,“ sagði hann. Sævar sagði að ekki dygði að setja lappirnar upp í sófa og gefast upp heldur yrði að grípa tækifærin sem væru fjölmörg að hans mati. „Það er margt í gangi. Við á skrifstofunni höfum spýtt í lófana, sett okkur sóknaráætlun og unnið eftir henni. Við höfum bætt tæknina og eytt umtalsverðum fjármunum í endurnýjun á sölu- og bókunarhugbúnaði. Sóknarfærin felast í því að bæta og auka þjónustu við viðskiptavininn,“ sagði Sævar. Hann sagði að margt hefði breyst í ferðaþjónustu bænda og nýjar vörur spryttu fram. Þjónustan hefði þróast frá því að selja eingöngu gistingu í að selja samsetta þjónustu, s.s. bílaleigupakka (bíll, gisting og afþreying). Sýnileiki og framboð á afþreyingu hjá bændum væri líka vaxandi sem væri fagnaðarefni. Sævar sagðist telja að í framtíðinni þyrftu menn að ákveða hverjir hefðu aðgang að gistirýminu þegar upp er staðið og spurði hvort láta ætti erlendum bókunarþjónustum um að selja gistirýmið eða halda viðskiptunum hér heima. Hann sagði sambúð ferðaskrifstofu og gistiaðila þurfa að þjóna hagsmunum beggja en það væru mikil tækifæri í vöruþróun og gæðamálum. Sævar hvatti ferðaþjónustubændur að taka ákveðin skref inn í Vakann, sem er gæðakerfið sem Hey Iceland hefur tekið upp. Gengisáhættan veruleg Velta Hey Iceland var rúmlega 2,2 milljarðar í fyrra en Bændaferðir, sem er utanlandsdeild skrifstofunnar, er um 1/3 af rekstrinum. Að sögn framkvæmdastjórans gegna Bændaferðir mikilvægu hlutverki í því að minnka gengisáhættu sem er veruleg og hefur valdið aðilum í ferðaþjónustu hérlendis miklum erfiðleikum upp á síðkastið. „Fjársjóður okkar samstarfs er bændurnir og þær vörur sem hópurinn hefur fram að færa,“ sagði Sævar að lokum í sínu erindi um leið og hann fagnaði sérstaklega nýju fólki og nýrri kynslóð í ferðaþjónustunni. Samstarfssamningur undirritaður um uppsetningu á hleðslustöðvum til sveita: Bændur bjóða rafbílanotendum upp á hleðslu í hlaði Á nýliðinni uppskeruhátíð Félags ferðaþjónustubænda, sem haldin var á Smyrlabjörgum í Hornafirði fyrr í vikunni, var verkefninu „Hleðsla í hlaði“ formlega hleypt af stokkunum. Markmið þess er að hvetja bændur til þess að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á sínum búum og ýta þannig undir umhverfisvænni samgöngumáta. Áætlað er að fyrstu hleðslustöðvarnar verði teknar í gagnið á næstu mánuðum hjá nokkrum ferðaþjónustubændum. Undirbúningshópur á vegum Hey Iceland, Bændasamtakanna og Orkuseturs hefur unnið að verkefninu frá því í vor og nú þegar eru rúmlega 20 bændur og rekstraraðilar í ferðaþjónustu sem hafa sýnt áhuga á að setja upp hleðslustöð. Málið hefur meðal annars verið kynnt í Bændablaðinu og í beinum samskiptum við hóp ferðaþjónustubænda og fleiri aðila. Í haust bárust tilboð frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í uppsetningu og rekstri rafhleðslustöðva en gengið var til samninga við fyrirtækið Hleðslu ehf. sem hefur meðal annars annast uppsetningu á hleðslustöðvum við verslunina IKEA í Garðabæ. Bændur geta haft tekjur af rafmagnssölu Fjallað var um rafbílavæðinguna og tækifærin sem liggja í uppsetningu hleðslustöðva fyrir bændur á uppskeruhátíðinni. Ólafur Davíð Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hleðslu ehf., hélt erindi um kosti sem væru í boði og þá möguleika sem bændur hafa til þess að selja þjónustuna. Í máli hans kom fram að bændur séu sérlega heppilegur hópur til að sinna þessari þjónustu. Þróunin sé þannig að rafbílaeigendur hlaða bílana sína heima hjá sér á nóttunni og þess vegna sé minni áhersla á uppsetningu hleðslustöðva í borgum og bæjum. Hins vegar sé brýnt að byggja upp gott net hleðslustöðva í dreifbýli og þar séu fáir betri en bændur til að sinna þjónustunni. „Það eru ýmsir möguleikar í boði, bæði litlar hleðslustöðvar sem kosta ríflega 100 þúsund krónur og upp í stöðvar sem kosta um 450 þúsund krónur auk virðisaukaskatts. Hraðhleðslustöðvar eru dýrari en þær kosta á bilinu 1,5–2,4 milljónir króna auk vsk. Ýmsar greiðslulausnir eru fyrir hendi en seljandinn getur ákveðið hvort hann selur þjónustuna beint, í gegnum greiðslumiðlun á netinu eða hreinlega leyfir viðskiptavinum sínum að hlaða án endurgjalds,“ segir Ólafur Davíð. Nú eru um 1.500 rafbílar í landinu og þeim fer ört fjölgandi að sögn forsvarsmanna bílaumboða. Jafn sjálfsagt og þráðlaust net Tjörvi Bjarnason, sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum, tók þátt í starfi undirbúningshópsins. Hann segir að því sé spáð að rafhleðslustöðvar verði jafn sjálfsögð þjónusta í ferðaþjónustu og þráðlaust net er í dag. „Það er mikilvægt að bændur grípi tækifærið og láti til sín taka í rafbílavæðingunni. Með þessu leggjum við okkar af mörkum gagnvart umhverfinu, auk þess sem bændur geta haft af þessu tekjur. Það er líka mikilvægt fyrir byggðirnar að bjóða upp á hleðslu fyrir rafbílaeigendur og ferðamenn því með því móti eru þeir viljugri að ferðast um sveitirnar. Þétt net hleðslustöðva er grundvöllur þess að bílaleigur breyti sínum bílaflota og meðal annars þess vegna hvetjum við fleiri bændur til þess að stökkva á vagninn. Þetta er stórt umhverfismál og hefur sitt að segja við að minnka útblástur gróðurhúsalofttegunda,“ segir Tjörvi. Vilja fleiri bændur til samstarfs Í samstarfssamningi sem gerður var við Hleðslu ehf. kemur fram að fyrirtækið sér um sölu og uppsetningu á hleðslulausnunum auk þess að veita bændum ráðgjöf. Samstarfshópur BÍ, Orkuseturs og Hey Iceland mun hins vegar halda utan um tengslanet bændanna sem taka þátt og vinna að markaðssetningu þjónustunnar. Þeir sem hafa hug á því að kynna sér frekar möguleikana við uppsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla geta haft samband í netfangið berglind@heyiceland.is og skoðað vef Hleðslu ehf. sem er með slóðina www.hlada.is FRÉTTIR Samstarfssamningur á milli BÍ, Hey Iceland, Orkuseturs og Hleðslu ehf. um átak í uppsetningu á hleðslustöðvum til sveita var að sjálfsögðu undirritaður á húddi rafbíls. Frá vinstri: Tjörvi Bjarnason frá BÍ, Ólafur Davíð Guðmundsson frá Hleðslu ehf. og Berglind Viktorsdóttir hjá Hey Iceland. Gæðamál, sala þjónustu á erlendum bókunarvélum og nýliðun til umræðu á uppskeruhátíð Félags ferðaþjónustubænda: Hey Iceland-vörumerkið er eins árs Björgvin Jóhannesson í Höfðabrekku, formaður Félags ferðaþjónustu- bænda, og Sölvi Arnarsson í Efstadal, sem situr í stjórn félagsins. Sævar Skaptason. Sigurlaug Gissurardóttir, fyrrverandi formaður Félags ferðaþjónustu- bænda, var heiðruð á uppskeruhátíðinni og þökkuð vel unnin störf. Hér er hún að skera afmælistertusneið fyrir Bryndísi Pjetursdóttur, markaðsstjóra Hey Iceland. Hjónin Hulda E. Daníelsdóttir og Gunnlaugur Jónasson á Gistihúsinu Þau fengu staðfestingu þess efnis afhenta á uppskeruhátíð Hey Iceland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.