Bændablaðið - 22.02.2018, Qupperneq 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Fimm kokkar keppa til úrslita
laugardaginn 24. febrúar í Flóa
í Hörpu um nafnbótina Kokkur
ársins 2018. Undanúrslit fóru
fram í Hörpu 19. febrúar þar sem
átta kokkar kepptu um laus sæti
í úrslitum.
Úrslitafyrirkomulag verður
þannig að keppendur hafa fimm
tíma til að elda þrjá rétti fyrir
12 manns. Kokkur ársins verður
krýndur í lok kvölds frammi fyrir
fullu húsi veislugesta og hann öðlast
þátttökurétt í Nordic Chef-keppninni
á næsta ári, sem verður haldin á
Íslandi.
Eftirtaldir kokkar keppa til úrslita:
• Bjartur Elí Friðþjófsson,
Grillmarkaðnum
• Garðar Kári Garðarsson,
Eleven Experience-Deplar
Farm
• Iðunn Sigurðardóttir,
Matarkjallaranum
• Sigurjón Bragi Geirsson,
Garra
• Þorsteinn Kristinsson,
Fiskfélaginu
Opið hús verður frá kl. 13.00 til kl.
18.00. Eftir það munu gestir sem tryggja
sér miða á úrslitakvöldið fylgjast með
kepp endum og jafnhliða því fá fjögurra
rétta Kokkalandslið smáltíð.
Keppnin er haldin í samstarfi við
Nettó og IKEA á Íslandi.
Í fyrra var það Hafsteinn Ólafsson
á Sumac Grill + Drinks sem bar sigur
úr býtum. /smh
Kokkur ársins 2018:
Fimm manna úrslitahópur
keppir í Hörpu 24. febrúar
Formannsskipti hjá Landssamtökum sláturleyfishafa:
Mikilvægt að fjárfesta
í hagræðingu
– segir nýi formaðurinn, Ágúst Torfi Hauksson
Þann 1. febrúar síðastliðinn
tók Ágúst Torfi Hauksson,
framkvæmdastjóri Norðlenska,
við sem stjórnarformaður
Landssamtaka sláturleyfishafa.
Hann tekur við af Ágústi
Andréssyni, forstöðumanni
Kjötafurðastöðvar Kaupfélags
Skagfirðinga (KKS). Stjórnin verður
áfram óbreytt og er þannig skipuð:
Steinþór Skúlason, varaformaður
frá Sláturfélagi Suðurlands, Ágúst
Andrésson frá KKS/SKVH/Hella,
Ólafur Rúnar Ólafsson frá SAH
afurðum á Blönduósi og Geir Gunnar
Geirsson frá Stjörnugrís.
Samhljómur sláturleyfishafa
Ágúst Torfi segir að það sé of snemmt
að segja til um áherslubreytingar
því hann hafi tekið við embættinu
með skömmum fyrirvara. „Það
hefur hins vegar verið þokkalegur
samhljómur meðal sláturleyfishafa
um þau mál sem fjallað er um á
vettvangi samtakanna, svo þörf á
verulegum áherslubreytingum er
ekki mikil.
Á nýafstöðnum aðalfundi
Landssamtaka sláturleyfishafa var
samþykkt ályktun þess efnis að
fundurinn lýsti fullum stuðningi við
stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda
í tengslum við viðræður samtakanna
við hið opinbera varðandi
það að koma á tímabundinni
útflutningsskyldu sem lið í lausn
á vanda sauðfjárgreinarinnar,“
segir Ágúst spurður um hvort hann
styðji hugmyndir forvera hans um
að útflutningsskyldu verði aftur
komið á. „Ég hygg að allir aðilar
samtaka sláturleyfishafa standi að
baki þeirri ályktun.“
Mikilvægt að fjárfesta í
hagræðingu
Ágúst Torfi var einnig spurður
um hvort afurðastöðvarnar þyrftu
að fara í endurnýjun og uppfærslu
á sínum húsa- og tækjakosti
– og hvort endurskoða þurfi
samkeppnisumhverfi greinarinnar,
eins og forveri hans hefur talað fyrir.
„Ég er sammála fyrrverandi
formanni um að mikilvægt sé
að afurðastöðvar starfi við þær
aðstæður að þær hafi tök á því að
fjárfesta í hagræðingu. Því hefur
ekki verið að heilsa undanfarin ár
og stendur það greininni að mörgu
leyti fyrir þrifum, út úr þeirri stöðu
verðum við að komast,“ segir Ágúst
Torfi. /smh
Verðbreyting á fóðurverði
hjá Líflandi
Um síðustu mánaðamót hækkaði
Lífland verð á kjarnfóðri um 2%.
Hækkunin skýrist fyrst og fremst
af verðhækkunum á hráefnum.
Þar ber hæst talsverð hækkun á
heimsmarkaðsverði á sojamjöli sem
og verðhækkanir á vítamínum og
steinefnum sem eru tilkomnar vegna
minna framboðs.
Þess má geta að þrátt fyrir
þessa hækkun hefur fóðurverð
frá því í júlí 2016 lækkað að
meðaltali um tæp 9%, mismikið
eftir tegundum.
Verðskrá má finna á slóðinni;
http://www.lifland.is/static/files/
verdlistar/verdlisti-kjarnfodurs-1.
feb.-2018.pdf.
FRÉTTIR
Mynd / MÞÞ
Nautgripum frá Eystri-Grund
hefur verið fargað
Matvælastofnun tilkynnti
um það 12. febrúar að 110
nautgripum af bænum Eystri-
Grund við Stokkseyri hefði
nýverið verið fargað.
Bændablaðið sagði frá drætti
á förgun gripanna í 2. tölublaði
þessa árs, en atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytið fyrirskipaði
strax í mars á síðasta ári að þeim
yrði að farga. Í umfjölluninni kom
einnig fram að ekki væri hægt að
meta bæturnar fyrir bændurna á
Eystri-Grund fyrr en gripunum
hefði verið fargað.
Þar kom fram að ástæður
þess að fresta þurfti förgun hafi
meðal annars verið þær að eigandi
gripanna hafi óskað eftir frestun og
svo gátu sláturhúsin ekki tekið við
gripunum í sláturtíðinni í haust. Þar
kom fram að ekki var nein neyð
sem knúði fram neyðaraflífun
gripanna; þar sem engir áverkar
voru á gripunum né sjúkdómar sem
herjuðu á þá.
Í tilkynningu Matvælastofnunar
kom fram að notkun kjötmjöls
sem fóður eða til fóðurgerðar fyrir
dýr sem alin eru til manneldis
er bönnuð til að hindra að
heilahrörnunarsjúkdómar berist í
menn og dýr.
„Matvælastofnun lagði bann
á markaðssetningu afurða og
slátrun til manneldis og flutning
gripa frá bænum í mars sl. og
óskaði í kjölfarið eftir fyrirskipun
ráðuneytisins um niðurskurð allra
gripa sem höfðu haft aðgang að
kjötmjölinu á býlinu.
Niðurstaða atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins um
niðurskurð lá endanlega fyrir í lok
júní eftir að kröfu eiganda gripanna
um frestun réttaráhrifa hafði verið
hafnað af hálfu ráðuneytisins.
Í framhaldi niðurskurðar mun
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið ákvarða bætur til
umráðamanns gripanna,“ sagði í
tilkynningunni. /smh
Fiskeldisstöðin að Eyjarlandi í Bláskógabyggð:
Veiðifélag Eystri-Rangár sækir
um endurnýjun á starfsleyfi
Veiðifélag Eystri-Rangár hefur
sótt um endurnýjað starfsleyfi til
Bláskógabyggðar í þeim tilgangi
að sveitarfélagið veiti félaginu
jákvæða umsögn við umsókn
félagsins til Umhverfisstofnunar
og að umrædd umsókn skuli ekki
vera háð mati á umhverfisáhrifum.
Nú er félagið að sækja
um 19,9 tonna starfsleyfi til
Umhverfisstofnunar vegna
fiskeldisstöðvarinnar að Eyjarlandi
sem hefur verið starfrækt allt frá
árinu 1983. Stöðin nýtir ferskt vatn
úr lindum og varma úr borholu í
Útey við Laugarvatn. Stöðin er
starfrækt í dag sem seiðaeldisstöð,
aðallega á laxaseiðum, fyrir veiðiár
þ.m.t. Eystri-Rangá. Um er að ræða
507 fm seiðeldishús auk 409 fm
af útikerjum, staðsett á 40.000
fm iðnaðar- og athafnarlóð. Ekki
er verið að breyta fyrirkomulagi
fiskeldisstöðvarinnar frá því sem
verið hefur, eingöngu verið að
endurnýja starfsleyfi á starfsemi
sem hefur verið starfrækt á
sama stað og með svipuðum
hætti í áratugi. Sveitarstjórn
Bláskógabyggðar ákvað á síðasta
fundi sínum að fresta afgreiðslu
málsins fram að næsta reglubundna
fundi sveitarstjórnar sem verður í
næsta mánuði. /MHH
Samgöngumál á Suðurlandi:
Villingaholtsvegur fær
fimm daga þjónustu
Íbúar í Flóahreppi eru hæst-
ánægðir með þá ákvörðun
Vegagerðarinnar að eftir að
bætt var við framlög til sam-
göngu mála á Suðurlandi þá
fái Villingaholtsvegur 5 daga
þjónustu Vegagerðarinnar.
„Þetta er sannarlega góð viðbót
og ber að þakka það því að á
Villingaholtsvegi, sem er fjöl-
farinn, hafa oft skapast erfiðar
aðstæður, bæði ófærð og mikil
hálka. Á sama tíma verður aukin
þjónusta á Urriðafossvegi,“ segir
Eydís Indriðadóttir, sveitarstjóri
Flóahrepps. /MHH
Mynd / Sigurjón Ragnar