Bændablaðið - 22.02.2018, Qupperneq 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Versatile er upphaf lega
kanadískt fyrir tæki en
er í dag í eigu Rússa
og framleiðir land-
búnaðartæki og vélar
af ýmsum gerðum,
til dæmis jarðbora,
þreskivélar og ekki síst
dráttarvélar.
Árið 1946 tóku
Kanadamennirnir og
mágarnir Peter Pakosh og Roy
Robinson sig saman og settu
á stofn fyrirtæki í kjallaranum
á heimili Pakosh í Wineppeg.
Fyrirtækið kölluðu þeir The
Hydraulic Engineering Company.
Pakosh var á þeim tíma
verkfærahönnuður hjá Massey-
Harris en hafði verið hafnað
þegar hann sótti um flutning yfir
á framleiðslusvið MH. Fyrsta
tækið sem nýja fyrirtækið setti
á markað var kornsnigill sem
flutti korn af bílum eða vögnum
í síló. Salan gekk vel og í
kjölfarið fylgdi ávinnsluherfi og
síðan úðadælur. Árið 1963 var
nafni fyrirtækisins breytt
í Versatile Manufacturing
Ltd. Þremur árum síðar setti
það fyrstu dráttarvélina á
markað.
Dráttarvélaframleiðslan
kemst á skrið
Fyrsta dráttarvél Versatile
kom á markað á því herrans
ári 1966. Traktorinn var
fjórhjóladrifinn, 100 hestöfl
og með sex strokka Ford mótor
og kallaðist Versatile D-100.
Skömmu síðar sendi fyrirtækið
frá sér Versatile G-100 sem einnig
var 100 hestöfl en með V8 mótor
frá Chrysler. Báðar vélar voru
með þrjá gíra áfram og einn
afturábak og kostuðu um 10.000
Bandaríkjadali á þávirði.
Þrátt fyrir að verðið þætti
sanngjarnt voru einungis 100
dráttarvélar af gerðinni D-100 og
25 af gerðinni G-100 framleiddar.
Fyrirtækið var þó ekki af
baki dottið og á næstu tveimur
árum send það frá sér nokkrar
mismunandi týpur. Fyrst kom
Versatile D-118 og í kjölfarið
Versatile 125 og 145. Því næst
sjálfknúin þreskivél Versatile
SP430 og önnur dráttarvéladregin
SP400, auk þess sem fyrirtækið
hóf framleiðslu á
sláttuvélum árið 1968.
Á sjöunda áratug
síðustu aldar setti fyrirtæki
á markað nokkra týpur af
stórum og kraftmiklum
dráttarvélum. Versatile
700, 800, 850 og 900
sem voru á bilinu 220 til
300 hestöfl. Uppfærslur á
þessum týpum kölluðust
Versatile 750, 825 og 950.
Versatile á stærstu dráttarvél
síns tíma á sjöunda áratugnum.
Traktorinn sem var átta hjóla
tröll sem vó 26 tonn og kallaðist
Versatile 1080, eða Big Roy, og
var 600 hestöfl. Hann fór aldrei í
framleiðslu.
Tíð eigendaskipti
Árið 1977 keypti Cornat
Industries ráðandi hlut í Versatile
Manufacturing Ltd en seldi hann
tíu árum seinni til Ford New
Holland sem var að stórum hluta
í eigu Fiat og var nafni Vesatile
dráttarvélanna breytt í New
Holland. Aldamótaárið 2000
Keypti Buhler Industries
Versatile af Fiat þegar
Fiat og Case IH runnu
saman. Eftir að Versatile
komast í eigu Buhler
voru dráttarvélar frá því
fyrirtæki markaðssettar
sem Buhler Versatile. Árið
2007 eignaðist rússneski
v é l a f r a m l e i ð a n d i n n
RostSelMash 80% hlut í
Buhler Industries og sleppti
Buhler-hlutanum úr heitinu
Buhler Versatile og markaðssetur
í dag dráttarvélar undir heitinu
Versatile. /VH
Versatile – stórar og kraft-
miklar dráttarvélar
Gæsasteggurinn Thomas á Nýja-
Sjálandi er látinn, fertugur að
aldri. Steggurinn var ekki við
eina fjölina felldur eða kyn og
tegundina þegar kom að makavali.
Síðustu sex ár ævinnar var hann í
ástarþríhyrningi með svanapari.
Þrátt fyrir að líffræðilega sé
ómögulegt að gæsir og álftir geti
eignast saman unga tók Thomas
fullan þátt í útungun og ungauppeldi
svanaparsins sem hann var í
sambandi við.
Steggurinn Thomas tók snemma
upp á því að aðgreina sig frá öðrum
gæsum og kaus félagsskap með
svörtum svansstegg sem kallaðist
Henry og deildu þeir lífinu saman í
24 ár. Meðan á samvistum Thomasar
og Henry stóð tók Henry upp
samband við kvenkyns álft sem
kölluð er Henrietta. Þrátt fyrir það
hélt Thomas samvistum við Henry og
studdi álftaparið við ungauppeldið.
Þegar svanurinn Henry lést hélt
Thomas sér með Henriettu í nokkur
ár.
Frá 2013 hefur Thomas búið á
griðlandi fyrir fugla í Wellington
á Nýja-Sjálandi. Smám saman fór
sjón hans versnandi sökum aldurs og
undir lokin var hann blindur. Hann
lést 3. febrúar síðastliðinn og verður
sárt saknað, að sögn talsmanns
fuglaverndunarsvæðisins. „Thomas
var að mörgu leyti kynlegur fugl og
starfsmönnunum þótti afar vænt
um hann og gættu hans einstaklega
vel og hans verður sárt saknað.
Thomas verður jarðsettur við hlið
sálufélaga síns, Henrys, í grafreit
verndarsvæðisins.“ /VH
Til að efla dýravelferð hjá
norskum svínabændum hefur
nú verið ákveðið að fjölga skuli
heimsóknum dýralækna, lækka
skuli sláturverð til þeirra sem
ekki standa sig sem skyldi og
að sláturleyfishafar geti neitað
að taka við dýrum hjá þeim
bændum sem fara ekki eftir
dýravelferðarreglugerðum.
Matvælaeftirlitið í Noregi
skráði helmingsaukningu á
brotum á reglugerðinni í lok árs
2017 en á sama tímabili árið
áður. Í nóvember voru skráð
óvenjumörg tilfelli um vanrækslu
dýra, sérstaklega í Rogaland-fylki
þar sem til dæmis fundust 100
dauðir grísir á einu svínabúi við
eftirlitsferð dýralækna. Því verður
nú aukið eftirlit á öllum svínabúum
í landinu og viðurlög veitt við
þeim sem ekki halda sig innan
ramma laganna. Það sem einna
helst verður horft til er að sjúkum
og slösuðum dýrum verður fylgt
eftir, notkun á undirlagi kannað
sérstaklega, tilfelli um rófubit í
flokknum skráð hjá sláturhúsum,
þéttleiki í svínahúsunum kannaður
ásamt aðgangi að fóðri og vatni.
Forsvarsmenn svínabænda í
Noregi eru almennt ánægðir með
hinar auknu reglur og eftirlit og
vonast til að það verði jákvætt
fyrir greinina í heild sinni og
að hin alvarlega staða sem hún
stendur fyrir núna muni snúast
til betri vegar. Með samvinnu og
ráðgjöf fleiri aðila sé það hægt,
því lykilatriði sé hvernig dýrin hafi
það. /ehg - Bondebladet
Dýravelferð í Noregi:
Auka eftirlit með
svínabændum
UTAN ÚR HEIMI
Gæsasteggurinn Thomas tók fullan þátt í ungauppeldi svanapars:
Tvíkynhneigður, fjölþreifinn og
blindur gæsasteggur fallinn frá
Gæsasteggurinn Thomas tók fullan þátt í ungauppeldi svanaparsins sem hann var í sambandi við.
Holland:
Mykja, óþefur og umhverfisspjöll
Mykja frá hollenskum
mjólkurbúum er orðin svo
mikil að bændur eiga orðið svo
erfitt með að losna við hana
að til vandræða horfir út frá
náttúruverndarsjónarmiðum.
Alþjóðasjóður villtra dýra, WWF,
telur að fækka verði mjólkurkúm
í Hollandi um 40% til að stemma
stigu við vandanum.
Mjólkurframleiðsla í Hollandi er
mikil þrátt fyrir smæð landsins og
Holland fimmti stærsti útflytjandi
mjólkur og mjólkurafurða í heimi
enda um 1,8 milljón mjólkurkúa í
landinu.
Vandinn er aftur á móti sá að
meðan mjólkin selst vel þá hleðst
mykjan upp. Líkt og annars staðar
í heiminum nota hollenskir bændur
eins mikið af mykjunni eins og þeir
geta sem áburð en vegna gríðarlegs
magns hennar hafa þeir ekki undan
að losa sig við hana. Komist hefur
upp um kúabændur sem hafa gripið
til þess óþverrabragðs að losa sig við
mykjuna ólöglega með því að setja
hana á afvikna staði og þverbrjóta
þannig umhverfislög. Erfitt er að
leyna losunarstöðunum þar sem
mykja gefur af sér sterka og mjög
einkennandi lykt sem finnst langar
leiðir. Auk þess sem afrennsli hennar
mengar grunnvatnið.
Annað ráð sem bændur hafa
gripið til er að dæla allt of mikið af
henni á akra og tún þrátt fyrir að lög
í Hollandi geri ráð fyrir að bera megi
meira af henni á en almennt gerist í
löndum Evrópusambandsins.
Alþjóðasjóður villtra dýra, World
wildlife fund, telur að fækka verði
mjólkurkúm í Hollandi um 40% á
næsta áratug til að stemma stigu
við vandanum. Einnig hefur verið
bent á að Holland er það land í
Evrópu sem býr yfir hvað minnst
af villti náttúru eða einungis 15%
af flatarmáli landsins.
Talið er að um 80% kúabúa í
Hollandi framleiði talsvert meira
af mykju en þau geta losað sig við
löglega og á síðasta ári greiddu þeir
um 550 milljónir evra til að láta
farga umfram mykju. /VH
Hvort sem stigið er á spariskónum í
íslenska eða hollenska kúadellu er
það alltaf jafn vandræðalegt.