Bændablaðið - 22.02.2018, Page 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Meira um losun gróðurhúsalofttegunda úr votlendi
Þann 25. janúar skrifuðu
undirritaðir grein í Bændablaðið
sem bar heitið „hugleiðingar
um losun og bindingu kolefnis
í votlendi“. Í greininni ræddum
við nokkra óvissuþætti í mati
á losunartölum úr íslensku
votlendi þar sem okkur þótti
samfélagsumræðan einsleit og
ganga út frá því að þarna lægi
flest ljóst fyrir.
Greininni var ekki beint gegn
ákveðnum einstaklingum. Við
vildum benda á að þekkingu skorti
til að hægt væri að fara út í jafn
víðtækar aðgerðir og stefnt er að án
þess að meta betur hverju þær gætu
skilað í raun og veru.
Við höfum fengið mikil viðbrögð
við greininni og flest jákvæð
en nokkrir hafa þó brugðist hart
við. Við gerðum óvissuþætti á
þremur sviðum að umtalsefni í
greininni en í stað þess að rökræða
þá er reynt að gera höfundana
tortryggilega, farið í manninn en
ekki boltann. Við stöndum hins
vegar við öll meginatriði greinar
okkar en fögnum öllum góðum
ábendingum. Við tökum það skýrt
fram að við erum ekki að tala gegn
endurheimt votlendis, einungis að
benda á óvissuþætti sem ekki megi
horfa fram hjá. Við fengum ýmsar
fyrirspurnir í kjölfar greinarinnar
og ætlum að gera tvær þeirra að
umtalsefni í þessari grein.
Stöðvast losun
gróðurhúsalofttegunda við
endurheimt votlendis?
Ef lokað er fyrir aðgang súrefnis
að jarðveginum verður mjög lítil
losun á koltvísýringi vegna rotnunar
á uppsöfnuðu lífrænu efni en til
að stöðva losunina þarf að hækka
grunnvatnsstöðu upp undir yfirborð.
Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að við
grunnvatnsstöðu í 40-50 cm dýpt
er full losun á koltvísýringi og
hún eykst ekki endilega þó svo að
grunnvatnsstaða sé lækkuð og getur
jafnvel minnkað.
Þetta þýðir að ef grunnvatnsstaðan
er ofan 40 cm en nær ekki yfirborði
jarðvegsins getur orðið töluverð
losun á koltvísýringi. Hið sama á
við um hláturgas ef grunnvatnsstaða
er há en ekki við yfirborð. Þá geta
skapast skilyrði fyrir myndun þess
en hláturgas er mjög áhrifamikil
gróðurhúsalofttegund.
Til að tryggja að endurheimt
votlendis dragi verulega úr losun á
koltvísýringi og hláturgasi þarf því
sem næst að sökkva landinu. Losun
á metani eykst hins vegar þegar
landi er sökkt. Það er ekki alls staðar
auðvelt að breyta þurrkuðu landi til
fyrra horfs.
Víða hefur framræsla, byggingar,
vegir og önnur mannvirki breytt
vatnasviði landsvæða og skorið á
vatnsrennsli úr brekkum eða hlíðum
sem áður rann óhindrað á land sem
lægra liggur. Við þessar aðstæður er
ekki gefið að lokun skurða leiði til
þess að grunnvatn hækki nægilega
til að endurheimt hallamýra eða flóa
takist.
Það þarf því að huga vel að
aðstæðum og skipuleggja áður en
ráðist er í framkvæmdir, rétt eins og
á við um alla landnýtingu.
Til að endurheimt dragi úr
losun gróðurhúsalofttegunda
þarf að vera það mikið af lífrænu
efni í jarðveginum að það sé vel
umfram það sem jarðvegurinn
hefur eiginleika til að binda í
sér. Móajarðvegur inniheldur oft
10-15% kolefni í efstu lögunum.
Það má því vel ímynda sér að
framræst votlendi nái smám saman
jafnvægi í efstu lögum jarðvegsins
þegar kolefni er komið niður í það
sem gerist í móajarðvegi. Í neðri
lögum getur þó enn verið mór og
það er spurning hvort hægt sé að
koma í veg fyrir að hann rotni.
Skurðir hafa víða verið grafnir
í landi með lágt innihald kolefnis
og þar er tilgangslítið að moka
ofan í skurði. Það fer því eftir
aðstæðum og framkvæmd verksins
hversu mikill ávinningur verður af
endurheimt.
Er hægt að minnka losun úr
mýrarjarðvegi án þess að bleyta
landið upp?
Erlendis er víða verið að leita leiða
til að minnka losun úr þurrkuðum
mýrarjarðvegi án þess að bleyta
landið upp. Þar eru menn að
skoða mismunandi ræktunartækni,
nytjajurtir og meðferð á landinu.
Það er mikilvægt að landið sé þakið
gróðri allan ársins hring. Þannig
tapast minna af næringarefnum og
losun gróðurhúsalofttegunda verður
minni.
Við byggjum okkar
fóðurframleiðslu að stórum hluta
á grasrækt og því er lítill hluti af
mýrartúnum ógróinn yfir veturinn.
Gras hefur langan vaxtartíma og
eiginleika til að binda mikið kolefni
bæði ofan- og neðanjarðar. Þetta
eykur bæði bindingu og losun á
koltvísýringi sem að hluta er vegna
öndunar róta, rótarstöngla og örvera
sem lifa kringum rætur.
Það einkennir frjósaman jarðveg
að hann losar mikið af kolefni og
næringarefnum en stuðlar jafnframt
að mikilli bindingu séu afkastamiklar
plöntur ræktaðar. Til að vinna á móti
losun er því mikilvægt að velja
plöntur sem binda mikið kolefni á
móti því sem losnar. Uppskerumikil
grös eru dæmi um slíkar tegundir og
einnig hefur verið bent á skógrækt í
þessu samhengi.
Víða eru framræstar mýrar
mikilvæg beitilönd. Við framræslu
breytist gróðurfar, uppskera
úthagagróðurs eykst og öll umferð
um landið verður einfaldari og
hættuminni.
Áður en farið er í að endurheimta
votlendi á góðu beitilandi er rétt að
hugsa til framtíðar því þetta land
gæti orðið mikilvægt ræktunarland
ef loftslag heldur áfram að hlýna.
Þá gæti matvælaframleiðsla á
norðurslóðum orði mikilvægari en
nú er.
Ef land er á annað borð framræst
er mikilvægt að framræslan sé
góð þannig að landið þorni vel.
Hálfblaut tún draga úr sprettu
og þar með bindingu kolefnis og
geta einnig skapað skilyrði fyrir
losun gróðurhúsalofttegunda. Við
nefndum í síðustu grein að menn
væru erlendis að prófa sig áfram með
að hafa breytilega grunnvatnsstöðu,
að hækka hana þegar ekki er verið
að nota landið. Ef það er gert þá
verður að hækka vatnsstöðuna upp
undir yfirborð til að fullur árangur
verði. Þannig að annað hvort er að
hafa landið vel framræst eða bleyta
það vel.
Lokaorð
Mýrar eru afar mikilvægt vistkerfi en
eftir þurrkun oft besta ræktunarlandið
og mikilvægt beitiland. Endurheimt
votlendis til að viðhalda og byggja
upp þessi vistkerfi er góð og gild
sem slík. Einnig getur endurheimt
votlendis dregið verulega úr losun
á koltvísýringi þar sem losunin
er mikil en það er ekki allsstaðar
þannig eins og við höfum bent á.
Við þurfum að afla frekari
þekkingar um þetta viðfangsefni áður
en lagt er út í viðamiklar aðgerðir.
Á það hefur verið bent að þekking
okkar á áhrifum landgræðslu og
skógræktar á bindingu kolefnis sé
komin lengra en það sem að votlendi
snýr. Þá er spurning hvort ekki sé
eðlilegra að leggja meiri áherslu á
þessa þætti á meðan verið er að afla
frekari þekkingar á votlendinu.
Í landgræðslustarfinu væri
æskilegt að nota belgjurtir í ríkari
mæli en gert hefur verið til að
auka afköstin við bindinguna en
íslenskur þurrlendisjarðvegur hefur
eiginleika til að binda mjög mikið
kolefni einkum þegar nitur er ekki
takmarkandi.
Dr. Guðni Þorvaldsson,
prófessor í jarðrækt við LbhÍ.
Dr. Þorsteinn Guðmundsson
prófessor í jarðvegsfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL
Dr. Þorsteinn Guðmundsson. Dr. Guðni Þorvaldsson.
T il að tryggja að endur -heimt votlendis dragi veru lega úr losun á
koltví sýringi og hláturgasi
þarf því sem næst að sökkva
landinu. Losun á metani
eykst hins vegar þegar landi
er sökkt. Það er ekki alls
staðar auðvelt að breyta
þurrkuðu landi til fyrra horfs.
Finnski bóndinn og frumkvöðullinn Thomas Snellman
heldur erindi í Hörpu á vegum Matarauðs Íslands og
Bændasamtakanna.
The REKO
story, an easy
way to reach
consumers
directly
Thomas Snellman,
bóndi og frumkvöðull
Reynsla af
matarmarkaði
á Facebook
hérlendis
Brynja Laxdal,
verkefnastjóri
Matarauðs Íslands
Gerðu þér mat
úr Facebook
Arnar Gísli Hinriksson,
sérfræðingur í árangurs-
markaðssetningu
Opin ráðstefna og vinnustofa
um milliliðalaus viðskipti
með matvörur
Erindi
Þín skoðun skiptir máli
Eftir erindin verður vinnustofa þar sem ráðstefnugestum gefst kostur á að
leggja sitt af mörkum til þess að auðvelda viðskipti með matvörur á milli
framleiðenda, veitingamanna og neytenda.
Vinnustofa
Gerðu þér
mat úr
Faceb k
Björtuloft, efsta hæð í Hörpu
sunnudaginn 4. mars
kl. 14:00-16:30
Thomas Snellman er brautryðjandi í Finnlandi í sölu svæðisbundinna
matvara í gegnum svokallaða REKO-hringi sem eru vel skipulagðir
Facebook-hópar víðs vegar um Finnland.
Finnskir bændur og smáframleiðendur hafa náð
undraverðum árangri í sölu með þessum hætti.
Thomas Snellman hlaut Embluverðlaunin í fyrra
fyrir viðskiptahugmynd sína.
Samstarfsaðilar:
Skráning fer fram á bondi.is
Aðgangur er ókeypis.