Bændablaðið - 22.02.2018, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Þó svo að mjólkurframleiðsla í
Kína sé hreint ekki ný af nálinni
þá hafa orðið gríðarlega miklar
breytingar á kúabúskap þar í
landi undanfarna tvo áratugi.
Hagvöxtur í landinu hefur verið
umtalsverður og hagur íbúa
landsins vænkast og samhliða því
hafa neysluvenjur breyst verulega.
Þannig hefur t.d. sala bæði á
mjólk og mjólkurvörum aukist jafnt
og þétt en enn er neyslan þó alllangt
undir neysluviðmiðum stjórnvalda
enda hafa kúabú og afurðastöðvar
landsins engan veginn getað svarað
eftirspurninni.
Vegna mikillar eftirspurnar eftir
mjólk og mjólkurvörum hafa skapast
tækifæri á kínverska markaðinum
fyrir innfluttar mjólkurvörur en
samhliða hafa stjórnvöld í landinu
ýtt undir uppbyggingu kínverskrar
mjólkurframleiðslu, enda er það
stefna stjórnvalda að tryggja
matvælaöryggi landsins með sem
mestri innlenndri framleiðslu.
China Modern Dairy
Vegna þessa stuðnings hafa skapast
afar sérstakar aðstæður í Kína og
hafa víða í landinu verið sett upp
kúabú sem eru nánast landlaus, þ.e.
hafa ekki annað land en það sem
byggingarnar standa á.
Þessi bú kaupa að allt fóður og selja
svo bæði mjólk og mykju og vegna
þessa sérstaka rekstrarforms á kúabúi
hafa samhliða skapast tækifæri fyrir
mjólkurframleiðslufyrirtæki, þ.e.
fyrirtæki sem eiga og reka mörg
svona landlaus kúabú. Þessi fyrirtæki
geta átt frá nokkur þúsund kúm og
upp í tugi þúsunda kúa og stærsta
fyrirtækið heitir China Modern Dairy
og er með 125 þúsund mjólkurkýr
alls og er eitt af allra stærstu
mjólkurframleiðendum í heimi.
Kornungt fyrirtæki
China Modern Dairy Holdings
Ltd., sem í daglegu tali í Kína er
kallað Modern Dairy og mætti kalla
á íslensku „Nútíma Kúabúskapur“,
var stofnað árið 2005 af nokkrum
viðskiptajöfrum. Þeir sóttu sér
þekkingu á mjólkurframleiðslu
bæði til Bandaríkjanna og Mið-
Austurlanda og settu upp sitt fyrsta
bú með afurðavinnslu á sama stað
og var öll hönnun búsins miðuð
við að ekki myndu líða nema tvær
klukkustundir frá enduðum mjöltum
þar til mjólkin væri komin í fernur.
Áhugaverð leið til þess að vekja
athygli á sínum mjólkurvörum í
raun enda var enginn að bjóða upp
á sambærilega mjólk á þessum tíma.
26 kúabú
Fyrirtækið byggði svo upp kúabúskap
og afurðavinnslu á mismunandi
stöðum í landinu á örfáum árum og
nú er Modern Dairy með 26 kúabú
í rekstri og með mjólkurframleiðslu
á 15 búum og með uppeldi á hinum
búunum. Þá er fyrirtækið í dag með
125 þúsund mjólkurkýr og framleiðir
árlega rétt um 1,2 milljarða lítra af
mjólk.
Hvert kúabú Modern Dairy
er staðsett á svæði þar sem gróf-
fóðurframleiðsla er nokkuð góð og
Órangútanapar og páskaegg:
Eitt hundrað þúsund órangútan-
apar drepnir á 16 árum
Talning á órangútanöpum á
eyjunni Borneó, sem er þriðja
stærsta eyja í heimi, sýnir að ríflega
eitt hundrað þúsund órangútan
hafa verði drepnar þar á síðustu
sextán árum.
Talsmenn náttúruverndarsamtaka
sem láta sig velferð órangútanapa
varða segja að ein helsta ástæða
þess að aparnir sér drepnir sé
vegna eyðingu búsvæða þeirra
vegna skógareyðingar, ræktunar á
olíupálma til framleiðslu á pálmaolíu,
námuvinnslu og skógarhöggs til
pappírsvinnslu.
Auk þess sem órangútanapar eru
eltir uppi og skotnir á færi. Nýlegt
dæmi sýnir að órangútanapi sem
var krufinn hafði í sér 130 skot úr
hríðskotabyssu. Þegar skógar eru
felldir er kjörlendi fjölda annarra dýra
einnig eytt.
Ein ástæða þess að aparnir eru
miskunnarlaust drepnir sjáist til þeirra
er vegna þess að þeir eru sagðir spilla
pálmaolíuuppskerunni með því að éta
aldin pálmaolíutrjánna sem pálmaolía
er unnin úr.
Pálmaolía er gríðarlega
mikið notuð, meðal annars við
matvælaframleiðslu, til dæmis við
framleiðslu á súkkulaði sem er
vert að hafa í huga nú þegar tími
páskaeggjanna er að ganga í garð. /VH
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
China Modern Dairy er með 125 þúsund mjólkurkýr alls og er eitt af allra stærstu mjólkurframleiðendum í heimi. Í
forgrunni sést afurðavinnslan, þar fyrir aftan er „mjólkurhúsið“ sem er vissulega í stærra lagi miðað við það sem
maður á að venjast. Hvort sínum megin við mjólkurhúsið er mjaltaaðstaðan og í hvorri byggingu eru fjórar hringekjur
sem hver tekur 80 kýr. Þar utan við, hvort til sinnar handar, eru svo fjósin sjálf en í hverju þeirra eru 2.500 kýr og
eru átta slíkar byggingar á Bengbu. Á bak við mjólkurhúsið er hauggasframleiðsla og raforkuver, en öll bú Modern
Dairy eru með eigin raforkuframleiðslu úr eigin hauggasi. Í byggingunum handan við hauggastankana eru svo
geldneyti og kálfar ásamt burðaraðstöðu og sjúkrafjósi. Segja má að öll kúabú Modern Dairy séu meira eða minna
Mynd / SS
Öll mykja Modern Dairy er nýtt til hauggasframleiðslu áður en hún er seld
til gróffóðurbúa í nágrenni kúabúa fyrirtækisins. Mynd / SS
Á Bengbu kúabúinu koma daglega 50-100 kálfar í heiminn og er hver þeirra settur í sérstakt einstaklings kálfaskýli.
Fjöldi þessara skýla er eðlilega mikill á jafn stóru kúabúi og Bengbu er. Mynd / SS
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
China Modern Dairy – einn stærsti
mjólkurframleiðandi í heimi
hríðskotabyssu.
Ekkert mælir gegn því að fóðra nautgripi með þurrkuðum skordýrum í
formi fóðurbætis.
Fóður fyrir búfé:
Skordýr og þari
sem fóðurbætir
Samkvæmt yfirlýsingu frá
Alþjóðasjóði villtra dýra, WWF,
verður að finna nýjan valkost
við fóðrun búfjár til að draga
úr skógareyðingu og eyðingu
náttúrulegra svæða í heiminum.
Meðal hugmynda sem hafa komið
fram er að fóðra skuli jórturdýr,
sérstaklega nautgripi, á þara og
skordýrum. Samkvæmt því sem kom
fram á ráðstefnunni Extinction and
Livestock, sem haldin var í október
á síðasta ári, mælir ekkert gegn því
að ala búfé að hluta til á skordýrum
og þara.
Ræktun á fóðri, soja og maís
og framleiðsla á fiskimjöli til
framleiðslu á fóðri er gríðarlega
landfrek og krefst mikils fiskjar.
Samkvæmt rökum WWF er mun
ódýrara að fóðra búfé á skordýrum
og þara en því fóðri sem notað
er í dag og auk þess einnig mun
umhverfisvænna. Tilraunir við
notkun á þessu nýja fóðri er þegar
hafin og er sögð lofa góðu. Sem ætti
ekki að vera neitt nýtt fyrir íslenska
sauðfjárbændur sem hafa lagt stund
á fjörubeit fjár allt frá landnámi.
/VH