Bændablaðið - 22.02.2018, Page 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Ræktunarmarkmið fyrir íslenska
sauðfjárrækt voru samþykkt af
fagráði í apríl árið 2012. Þar með
voru skilgreind markmið fyrir
hvern eiginleika og stofninn í heild
í samræmi við þá stefnu sem fylgt
hefur verið um alllangt skeið.
Jafnframt voru settar fram „leiðir
til að ná settum markmiðum“ og
þar undir nefnd nokkur verkefni
sem leggja skyldi áherslu á að yrðu
unnin.
Fyrir liggur að endurskoða
þurfi ræktunarmarkmiðin og þann
verkefnalista sem þeim fylgir þar
sem sumt á ekki lengur við og annað
þarfnast uppfærslu.
Almennt um ræktunarmarkmiðin
Í stuttu máli má segja að markmiðið
sé að rækta frjósamar ær sem bera
að jafnaði ekki færri en einu lambi
veturgamlar og tveim lömbum eftir
það. Að ærnar séu mjólkurlagnar
og mjólki vel tveimur bráðþroska
lömbum. Lögð er áhersla á
vaxtarhraða og bráðþroska í
sumarhögum. Rækta skal þéttholda
en bollangt fé, þannig að skrokkarnir
séu kjötmiklir og hæfilega feitir
og staðið sé vörð um bragðgæðin.
Varðandi ullina er aðaláherslan á
hvíta ull, gæði og magn. Viðhalda
skal öllum helstu sérkennum íslensku
sauðkindarinnar (litir, ferhyrnt
fé, frjósemiserfðavísar), gæta að
nauðsynlegum erfðabreytileika
í stofninum og leggja áherslu á
heilbrigði og endingu fjárins.
Við höfum náð árangri í auknum
og bættum afurðum líkt og glögglega
má sjá ef skoðuð er sú þróun sem
átt hefur sér stað í afurðum eftir
hverja kind samkvæmt niðurstöðum
skýrsluhaldsins. Hlutfall vöðva í
lambsskrokknum hefur að öllum
líkindum aukist mikið á síðustu
árum. Holdfylling og þá ekki síst
þykkt bakvöðvans hefur aukist
umtalsvert og fitan hefur minnkað
líkt og niðurstöður EUROP
matsins og ómmælinga staðfesta
ef skoðuð er þróun frá síðustu
aldamótum. Framfarir sem ættu að
gera dilkakjöt að hagkvæmari og
betri vöru fyrir afurðastöðvar og
neytendur. Við getum verið stolt af
íslensku sauðkindinni sem þolir vel
samanburð við erlend fjárkyn þegar
horft er til lambakjötsframleiðslu.
Það eru þó ýmis sóknarfæri í
því að gera betur. Til að mynda er á
mörgum búum mikil tækifæri fólgin
í því að ná fleiri lömbum til nytja
og kannski aldrei mikilvægara en
nú þegar afurðaverð hefur hrapað
að reynt sé að hafa sem mest út úr
hverjum framleiðslugrip. Þá er fullt
tilefni til að ætla að vaxtarhraða og
mjólkurlagni megi bæta mikið, en
verið er að rannsaka þá eiginleika og
skoða hvernig megi þróa kynbótamat
fyrir þunga. Þá hafa nýlegar
rannsóknir sýnt að ekkert bendir til
þess að við séum komin að endastöð
í ræktun fyrir þykkari bakvöðva.
Til að geta fetað áfram veginn í
vali fyrir auknum afurðum verður að
teljast æskilegt að vera vel á verði
gagnvart þáttum sem lúta að endingu,
heilbrigði og kjötgæðum í víðum
skilningi. Þættir sem hafa áhrif á
hagkvæmni framleiðslunnar, ímynd
hennar og gæði. Því eru nokkur af
þeim áhersluverkefnum sem nefnd
eru hér að neðan liður í því að afla
gagna og þekkingar svo fylgja megi
eftir þeim fögru fyrirheitum sem
ræktunarmarkmiðin kveða á um.
Helstu breytingar
Í núverandi ræktunarmarkmiðum
er litið svo á að á Íslandi sé eitt
fjárkyn og því rætt um forystufé
sem undirstofn. Í grein sem birtist
í Náttúrufræðingnum árið 2015
ritaðri af Jóni Viðari Jónmundssyni,
Lárusi G. Birgissyni, Sigríði
Jóhannesdóttur, Emmu Eyþórsdóttur,
Þorvaldi Kristjánssyni og Ólafi R.
Dýrmundssyni er lagt til að litið
verði á forystufé sem sérstakt
fjárkyn. Þessi tillaga var síðar studd
af fagráði í sauðfjárrækt og staðfest
af Bændasamtökum Íslands. Því
er litið svo á í dag að á Íslandi séu
tvö fjárkyn. Því þarf að uppfæra
núverandi ræktunarmarkmið með
hliðsjón af þessari breytingu. Þá er
í kaflanum „leiðir til að ná settum
markmiðum“ nefndar viðbætur
sem þyrfti að gera á skýrsluhaldinu
s.s. að endursetja litalykil og birta
upplýsingar um vaxtarhraða, sem
hvorutveggja hefur verið framkvæmt.
Þar sem fjallað er um skrokk- og
kjötgæði í ræktunarmarkmiðunum
er tilgreint að „stefnt skal að því
að nær allir innlagðir dilkar fari í
holdfyllingarflokk R eða betri, þar
af 40% í holdfyllingarflokka E og
U. Lagt er til að þetta mark fyrir E
og U verði hækkað í 60% í ljósi þess
að í dag er 35% – 40% dilka sem ná
þessu marki.
Áhersluverkefni næstu ára
Hér á eftir eru listuð upp verkefni
sem fagráð leggur til að bætt verði
við kaflann „Leiðir til að ná settum
markmiðum“ og eru þá verkefni sem
stefnan er að leggja áherslu á næstu
misseri og ár.
• Setja þarf upp áætlun sem felur
í sér vöktun á þáttum sem lúta
að kjötgæðum (þ.m.t. þáttum
sem tengjast bragðgæðum).
Skilgreina þarf hvaða þætti
mikilvægast er að horfa á og
skilgreina viðmiðunargildi fyrir
íslenskt lambakjöt. Skoða þarf
hvort ástæða sé til að breyta
áherslum varðandi fituflokkun
með hliðsjón af niðurstöðum
kjötgæðarannsókna.
• Endurbæta þarf kynbótamat
fyrir skrokkgæði með því að
nýta gögn úr líflambadómum
og þar með gera kynbótamatið
öruggara.
•
• Vinna þarf að því að teknir
séu upp undirflokkar EUROP
kjötmatsflokkunarkerfisins við
mat á dilkakjöti svo nákvæmara
mat fáist á framleiðsluna.
•
• Unnið skal áfram að þróun
kynbótamats fyrir fallþunga.
• Hvetja þarf til aukinnar
skráningar á fullorðinsþunga
áa, m.a. til þess að hægt sé
að fylgjast með því hvernig
sá eiginleiki er að þróast í
stofninum.
• Skoða þarf hvaða þættir hafa
mest áhrif á endingu ánna út frá
skráningum á förgunarástæðum
og athuga áhrif erfða á þá
eiginleika.
• Skoða þarf með hvaða hætti
er hægt að nýta upplýsingar
um burðarvandamál í
ræktunarstarfinu.
• Kanna þarf möguleika á
nýtingu erfðamengisúrvals
í sauðfjárrækt og huga að
uppbyggingu gagnabanka af
DNA sýnum.
• Unnið skal að rannsóknum
á erfðagallanum bógkreppu.
Þróa þarf DNA-próf svo
arfgerðargreina megi gripi
m.t.t. gallans og vinna þannig
að útrýmingu hans.
• Stefna ber að þróun DNA-prófs
fyrir hinu svo kallaða Lóugeni
svo hagnýta megi þennan
stórvirka frjósemiserfðavísi í
ræktunarstarfinu á sama máta
og Þokugenið.
• Til að stuðla að bættum
ullargæðum, skal reynt að
auka úrvalið af hrútum á
sæðingastöðvunum sem eru
hreinhvítir eða vel hvítir með
góða og mikla ull.
Opinn fagráðsfundur
Þann 2. mars stendur fagráð í
sauðfjárrækt og Landsamtök
sauðfjárbænda fyrir opnum
fagráðsfundi þar sem mörg
áhugaverð erindi verða flutt sem
tengjast sauðfjárrækt.
Ræktunarmarkmiðin verða tekin
þar til umræðu og þar verður því
tækifæri fyrir þá sem vilja hafa
áhrif á áherslur í ræktunarstarfinu
að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri. Skoða má núgildandi
ræktunarmarkmið inn á heimasíðu
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
(www.rml.is).
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyþór Einarsson
ábyrgðarmaður í
sauðfjárrækt
ee@rml.is
Ræktunarmarkmið fyrir íslenska sauðfjárstofninn uppfærð
Mánadætur.
Mannvirkjagerð er mikil
áskorun og til að byggja
landbúnaðarbyggingu þurfa
margir að koma að með
mismunandi þekkingu. Þar
má nefna. ráðunauta, hönnuði,
verkfræðinga, iðnmeistara í
viðkomandi iðngrein og söluaðilar
á byggingarefnum og þeim
tækjabúnaði sem valinn er.
Til að allt gangi sem best þurfa
að vera mikil samskipti á milli aðila
og samræming að vera á milli þeirra
sem koma að byggingu hússins.
Framkvæmdir út í sveitum kallar
á flutning bæði á mannafla og
byggingarefnum sem nauðsynlegt er
að skipuleggja mjög vel til að halda
kostnaði í skefjum. Ákvörðun um
uppbyggingu jarða er oft ein stærsta
ákvörðun sem bændur taka á sinni
búskapartíð og felst í henni oft
áratuga skuldbindingar.
Framkvæmdir í kjölfar breytinga
á reglugerðum og stuðningi
Það hafa verið framkvæmdaár til
sveita í kjölfar breyttra krafna um
aðbúnað nautgripa samkvæmt
reglugerð nr.1065/2014 um velferð
nautgripa og fjárfestingarstuðning
til bænda samkvæmt samningi
um starfsskilyrði nautgripa- og
sauðfjárræktar frá 19 febrúar 2016.
Margir bændur hafa undirbúið
og hafist handa við framkvæmdir
á jörðum sínum í kjölfar þessara
samninga. Í mars 2017 var í fyrsta
skipti óskað eftir umsóknum til
MAST vegna fjárfestingarstuðnings
í nautgriparækt.
Samkvæmt upplýsingum frá
MAST bárust 178 umsóknir
vegna fjárfestingaráforma að
upphæð 4,9 milljarða með
tækjabúnaði, samkvæmt innsendum
kostnaðaráætlunum. Þegar árið 2017
er liðið þá hafði fækkaði, í hópi
umsækjanda, þeim aðilum sem
hófu framkvæmdir, niður í 99 og í
árslok höfðu þeir framkvæmt fyrir
2,2 milljarða á árið 2017.
Miðað við þann kraft sem er í
nautgriparæktinni í dag þá er útlit
fyrir að framkvæmdagleði verði hjá
bændum næstu árin og umfang á
áformum bænda umtalsverð. Það
lítur því út fyrir að það sé langt síðan
að viðlíka fjárfestingaráform hafi
verið uppi í íslenskum landbúnaði
eins og eru í dag.
Undirbúningur spara tíma og
peninga
Nútíma fjósbyggingar eru
stórar byggingar með miklum
tæknibúnaði. Vegna stærðar húsanna
og tæknibúnaðar, þá er um mikla
fjárfestingu að ræða sem þarf að
undirbúa mjög vel, hafa gott og
virkt eftirlit með öllum þáttum
framkvæmdarinnar til að tryggja
eins og kostur er að áætlanir um
fjárfestingu gangi eftir.
Mjög mikilvægt er fyrir
framkvæmdaaðila að ná utan um
verkefnið sem lagt er af stað með
og að undirbúa verkefnið eins og
kostur er áður enn lagt er af stað.
Ákvörðun um fjárfestingu og
síðan framkvæmdir er ferli sem
þarf að vanda og gefa sér tíma til
að fara í gegnum og þar gildir að
í upphafi skal endirinn skoðaður.
Uppbyggingar- og fjárfestingarferli
er hægt að skipta upp í eftirfarandi
þætti:
Forstig
• Mat á núverandi stöðu.
• Áform um uppbyggingu/
framtíðarsýn.
• Rekstrargreining/
fjárfestingargeta.
• Endurmat/ ákvörðun um
framhald.
Undirbúningur fjárfestingar
• Frumhönnun.
• Kostnaðarmat.
• Fjármögnun.
• Endurmat/ákvörðun um
framhald.
• Teikningar.
• Byggingaleyfi.
Undirbúningur framkvæmda
• Verkáætlun.
• Fjárstreymisáætlun.
• Val á innkaupa aðferðum t.d.
beinir samningar/útboð.
• Endurmat/ákvörðun um
framhald.
• Samningar um innkaup
undirritaðir.
• Skóflustunga.
Framkvæmdastig
• Byggingaframkvæmdir.
• Innkaup.
• Eftirlit með framvindu verkefnis.
• Fjármagnsflæði.
• Lokaúttekt.
• Gripir teknir í nýtt hús.
Framkvæmdir sem fara fram
úr áætlunum
Í gegnum tíðina hafa komið upp mörg
dæmi þar sem framkvæmdir hafi farið
fram úr áætlunum. Eina leiðin sem
til er til að komast hjá því að missa
tökin á framkvæmdakostnaðinum
er að vanda allan undirbúning,
ná samningum um eins mikið af
verkþáttum sem fyrirhugað er að
láta vinna og leggja ekki af stað
í framkvæmdir fyrr en búið er
að tryggja eins og mögulegt er
framkvæmdakostnaðinn.
Aðkoma RML getur sparað
umtalsverða fjármuni
RML hefur á að skipa starfsfólki
sem hefur yfirgripsmikla þekkingu
á öllum þáttum sem snúa að
undirbúningi fjárfestingar, bútækni og
byggingaframkvæmdum. Undanfarið
hefur RML unnið að því að styrkja
starf sitt til að geta sinnt þörf bænda
fyrir óháða ráðgjöf á öllum stigum
ákvörðunar um fjárfestingu og
framkvæmdir. Stór hluti er að greina
hvar hægt er að spara peninga í
framkvæmdum og greina hvar eru
„opnir tékkar“ og hvað þarf að gera
til að halda þeim innan áætlana.
Sigurður Guðmundsson
rekstrarráðunautur
hjá RML
sg@rml.is
Framkvæmdagleði