Bændablaðið - 22.02.2018, Side 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Þytur í laufi
Fallegur prjónaður púði með
gatamynstri.
Mál:
ca 45 x 45 cm – púðaverið passar fyrir kodda 50 x 50
cm það er fallegra ef það strekkist aðeins á verinu.
Garn: DROPS Merino Extra Fine, 400 g litur 08, ljós
beige.
Prjónar. Sokkaprjónar og hringprjónar 40 cm
nr 3 - eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og
32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd
og 10 cm á hæð.
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri
séð frá réttu.
AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að
affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella
af með ½ númeri grófari prjónum.
PÚÐI:
Stykkið er prjónað í hring í ferning á sokkaprjóna/
hringprjóna með byrjun frá miðju á ferning.
Prjónuð eru 2 alveg eins stykki sem síðan eru
saumuð saman.
Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 3 með Merino
Extra Fine. Prjónið mynstur hringinn eftir
mynsturteikningu A.1 (= 2 lykkjur) alls 4 sinnum
í umferð – lesið MYNSTUR að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón þegar aukið hefur
verið út nægilega margar lykkjur. ATHUGIÐ
PRJÓNFESTUNA! Þegar öll mynstureining A.1
hefur verið prjónuð til loka eru 128 lykkjur í
umferð. Setjið 4 prjónamerki án þess að prjóna
þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið í byrjun
umferðar, annað prjónamerki eftir 32 lykkjur,
setjið þriðja prjónamerkið eftir 32 lykkjur og
setjið fjórða prjónamerkið eftir 32 lykkjur, látið
prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið * A.2
(= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 28 lykkjurnar (=
2 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4 (=
2 lykkjur) *, prjónið *-* alls 4 sinnum í umferð.
Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina eru 60
lykkjur á milli hverra prjónamerkja (= 240 lykkjur
í umferð).
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið * A.2
(= 2 lykkjur), A.3 yfir næstu 56 lykkjurnar (=
4 mynstureiningar með 14 lykkjum) og A.4
(= 2 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 4 sinum í
umferð. Þegar A.2/A.3/A.4 er lokið á hæðina
eru 88 lykkjur á milli hverra prjónamerkja (=
352 lykkjur í umferð). Ferningurinn mælist ca 45
x 45 cm. Fellið laust af – lesið AFFELLING að ofan.
Prjónið annað stykki alveg eins.
FRÁGANGUR:
Leggið ferningana saman með röngu á móti
röngu. Saumið 3 af hliðunum kant í kant í ystu
lykkjubogana. Setjið kodda í verið og saumið síðan
meðfram síðustu hliðinni.
Mynstur:
= slétt frá réttu
= brugðið frá réttu
= 2 lykkjur slétt saman
= takið 1 lykkju óprjónaða eins og
prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
= takið 1 lykkju óprjónaða eins og
prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem
prjónaðar voru saman
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá
prjóninn
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá
prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður
snúinn svo að ekki myndist gat
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 1 5 8 2
3 9 4 1
7 5 8 1 4
5 8 2 4
5 9 4 6 3 1
1 4 7 9
1 3 7 5 9
6 2 5 3
2 5 9 4 7
Þyngst
4 6 2
7 6 5 4 9
8 3 7 6
9 1 2 7
1 2 3 8
5 6 8 3
9 3 2 4
3 5 2 7 1
7 8 5
8 3 2
1 5 7
3 4 8 9
1 4 8
6 7 8
7 3 5 4
9 5 7
2 6 1
9 4 1
8 4 3 5
9 1 2
5 2 3
4 2 9
6 7 3
1 7 8 5
3 5 4
Steig aldrei á
bremsur nar á Tenerife
Bergsteinn Jökull er níu ára og býr á
Melrakkasléttu.
Nafn: Bergsteinn Jökull Jónsson.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Reistarnes á Melrakkasléttu.
Skóli: Öxarfjarðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Frímínútur og smíðar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Pítsa.
Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld.
Uppáhaldskvikmynd: Maze runner.
Fyrsta minning þín? Þegar ég sat hjá
Dodda afa og borðaði matarkex.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi frjálsar íþróttir. Svo æfi
ég gítar og trommur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bílaviðgerðarmaður,
smiður, veiðimaður og You Tuber.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur
gert? Fara í Go Kart á Tenerife og ég
steig aldrei á bremsurnar.
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt
árinu? Hafa gaman og vera með
fjölskyldunni.
Næst » Bergsteinn ætlar að skora á Ísabellu á
Gilsbakka að svara í næsta blaði.
HANNYRÐAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ