Bændablaðið - 12.04.2018, Page 1
7. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 12. apríl ▯ Blað nr. 512 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Ný könnun Gallup á viðhorfum þjóðarinnar til skógræktar:
Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er
jákvæður fyrir skógrækt í landinu
– Ungir Íslendingar eru jákvæðastir fyrir skógrækt og 55 ára og eldri telja skógrækt mikilvægasta fyrir kolefnisbindingu
Ungir Íslendingar eru jákvæðastir
fyrir skógrækt og 55 ára og eldri
telja skógrækt mikilvægasta
fyrir kolefnisbindingu.
Ný könnun sem Gallup
hefur gert fyrir Skógræktina,
Skógræktarfélag Íslands og
Landssamtök skógareigenda sýnir
mjög jákvætt viðhorf landsmanna
til skógræktar. Langflestir
Íslendingar telja að skógrækt hafi
jákvæð áhrif á landið og telja
mikilvægt að binda kolefni með
skógrækt.
Könnunin var lögð fyrir dagana
8.–21. mars. Í úrtakinu voru
1.450 manns af öllu landinu, 18
ára og eldri, handahófsvaldir úr
viðhorfahópi Gallup. Alls svöruðu
814 manns spurningunum tveimur
og var svarhlutfallið 56,1%.
Spurt var annars vegar hvort fólk
teldi skóga hafa almennt jákvæð
eða neikvæð áhrif fyrir landið og
hins vegar hversu mikilvægt fólk
teldi að binda kolefni í skógum.
Unga fólkið jákvæðast
Jákvæðust áhrif á landið mælast
meðal ungra Íslendinga á aldrinum
18–34 ára. Nærri þrír af hverjum
fjórum þeirra telja skógrækt hafa
mjög jákvæð áhrif á landið og enginn
á því aldursbili telur áhrifin neikvæð.
Mikilvægi kolefnisbindingar mælist
hins vegar mest meðal fólks 55 ára
og eldra. Ríflega níu af hverjum tíu
þeirra telja það mikilvæga aðgerð.
Spurningarnar sem spurt var nú
voru samhljóða tveimur spurningum
í viðameiri könnun um viðhorf
til skógræktar sem gerð var árið
2004. Þegar þessar tvær kannanir
eru bornar saman kemur í ljós að
stuðningur við skógrækt í landinu
er svipaður og var 2004. Þó vekur
athygli að þeim sem voru neikvæðir
2004 fækkar marktækt þegar spurt er
um kolefnisbindingu með skógrækt.
Ef marka má þessa könnun
er því vaxandi stuðningur meðal
landsmanna við þá leið að rækta skóg
til að binda kolefni og hamla gegn
loftslagsbreytingum. Jafnframt telja
Íslendingar sem fyrr að skógrækt
hafi jákvæð áhrif á landið. /PH/HKr.
– Nánar er fjallað um könnunina
á bls. 18
4
AFSTAÐA ÍSLENDINGA TIL SKÓGRÆKTAR
Mynd / HKr.
Vilja viðhalda
kvótakerfinu og
2
við ESB um viðbótartryggingar
vegna salmonellu
Þurfum að
hagkvæmari
skógarauðlind
28–29