Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 1
7. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 12. apríl ▯ Blað nr. 512 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Ný könnun Gallup á viðhorfum þjóðarinnar til skógræktar: Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er jákvæður fyrir skógrækt í landinu – Ungir Íslendingar eru jákvæðastir fyrir skógrækt og 55 ára og eldri telja skógrækt mikilvægasta fyrir kolefnisbindingu Ungir Íslendingar eru jákvæðastir fyrir skógrækt og 55 ára og eldri telja skógrækt mikilvægasta fyrir kolefnisbindingu. Ný könnun sem Gallup hefur gert fyrir Skógræktina, Skógræktarfélag Íslands og Landssamtök skógareigenda sýnir mjög jákvætt viðhorf landsmanna til skógræktar. Langflestir Íslendingar telja að skógrækt hafi jákvæð áhrif á landið og telja mikilvægt að binda kolefni með skógrækt. Könnunin var lögð fyrir dagana 8.–21. mars. Í úrtakinu voru 1.450 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr viðhorfahópi Gallup. Alls svöruðu 814 manns spurningunum tveimur og var svarhlutfallið 56,1%. Spurt var annars vegar hvort fólk teldi skóga hafa almennt jákvæð eða neikvæð áhrif fyrir landið og hins vegar hversu mikilvægt fólk teldi að binda kolefni í skógum. Unga fólkið jákvæðast Jákvæðust áhrif á landið mælast meðal ungra Íslendinga á aldrinum 18–34 ára. Nærri þrír af hverjum fjórum þeirra telja skógrækt hafa mjög jákvæð áhrif á landið og enginn á því aldursbili telur áhrifin neikvæð. Mikilvægi kolefnisbindingar mælist hins vegar mest meðal fólks 55 ára og eldra. Ríflega níu af hverjum tíu þeirra telja það mikilvæga aðgerð. Spurningarnar sem spurt var nú voru samhljóða tveimur spurningum í viðameiri könnun um viðhorf til skógræktar sem gerð var árið 2004. Þegar þessar tvær kannanir eru bornar saman kemur í ljós að stuðningur við skógrækt í landinu er svipaður og var 2004. Þó vekur athygli að þeim sem voru neikvæðir 2004 fækkar marktækt þegar spurt er um kolefnisbindingu með skógrækt. Ef marka má þessa könnun er því vaxandi stuðningur meðal landsmanna við þá leið að rækta skóg til að binda kolefni og hamla gegn loftslagsbreytingum. Jafnframt telja Íslendingar sem fyrr að skógrækt hafi jákvæð áhrif á landið. /PH/HKr. – Nánar er fjallað um könnunina á bls. 18 4 AFSTAÐA ÍSLENDINGA TIL SKÓGRÆKTAR Mynd / HKr. Vilja viðhalda kvótakerfinu og 2 við ESB um viðbótartryggingar vegna salmonellu Þurfum að hagkvæmari skógarauðlind 28–29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.